Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 10
5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR10 Aðalfundur SA 2011 verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl á Hilton Reykjavík Nordica og hefst opin dagskrá kl. 14.00. Vilmundur Jósefsson Jóhanna Sigurðardóttir Jóhann Jónasson Sigríður Margrét Oddsdóttir Guðmundur Þorbjörnsson Ingibjörg G. Guðjónsdóttir Rannveig Rist OPIN DAGSKRÁ KL. 14-16 Ávarp Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins Ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra ATVINNULEIÐIN ER FÆR Jóhann Jónasson, framkvæmdastjóri 3X Technology Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já Guðmundur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri EFLU verkfræðistofu Ingibjörg G. Guðjónsdóttir, stjórnarformaður Íslenskra fjallaleiðsögumanna Fundarstjóri er Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi. Skráning á www.sa.is MEISTARANÁM Í VIÐSKIPTAFRÆÐI OPNIR FUNDIR Nánari upplýsingar má finna á: www.hr.is/vidskiptadeild/msc MBA | Kennslustund Dr. Marc Sachon 7. apríl, kl. 11:30–12:30 OBTM | Kennslustund Organisational Behaviour & Talent Management Dr. Gerhard Apfelthaler 7. apríl, kl. 12:30–13:30 DÓMSMÁL Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópa- vogi, á ekki að sæta því að hafa verið kallaður „holdgervingur spillingar og valdhroka“ segir Héraðsdómur Reykjaness, sem dæmir Gunnari 300 þúsund króna bætur vegna tveggja ummæla Þór- arins Hjartar Ævarssonar, íbúa á Kársnesi. Ummæli Þórarins um Gunnar birtust í grein Þórarins í Morgunblaðinu 14. júní 2009. Gunnar bað Þórarin að draga þau til baka og stefndi honum síðan þegar því var ekki svarað. Alls var stefnt vegna fimm ummæla. Dómur- inn taldi þrjú þeirra e k k i m e i ð a nd i fyrir Gunnar. Hin ummælin sem dæmt var fyrir voru „nú eða kenna embætt- ismönnum, sem n.b. hafa verið hand- valdir af þér, um ástand mála“. Ummælin þrjú sem ekki var dæmt fyrir voru: „sem er fylgifiskur nýjasta hneykslisins sem þú hefur náð að draga flokkinn inn í“, „þú hefur skarað eld að eigin köku og hyglað ættmennum með eign- arhlut þínum í Klæðningu og með óafsakanlegum viðskiptum við fyrirtæki dóttur þinnar“ og „beitt þér fyrir hönd þröngs hóps verk- taka og lóðareigenda sem ætluðu að græða ótæpilega á lóðabraski“. Um þessi þrjú ummæli segir dómurinn að ekki verði talið „að þessi ummæli séu með öllu staðlaus“. Gunnar verði að þola gagnrýna umfjöllun á opinberum vettvangi, „jafnvel þótt hvassyrt sé“. Ummæli Þórarins hafi verið „hluti af pólitískri umræðu“ í aðdraganda síð- ustu bæjarstjórnarkosn- inga í Kópavogi. - gar Dæmdur vegna tveggja af fimm umdeildum fullyrðingum í Morgunblaðinu: Skal þola ummæli um að skara eld að eigin köku og hygla ættmennum GUNNAR I. BIRGISSON Fær bætur fyrir meiðyrði sem dæmd voru dauð og ómerk en er jafnframt sagður þurfa að þola „hvassyrta“ umfjöllun. 1. Hversu stórt hlutfall pilta yfir átján ára hefur reykt marijúana? 2. Hvað heitir stúlkan sem um helgina varð sú fyrsta til að sigra í Gettu betur? 3. Hvaða prestur varð Íslands- meistari í einliðaleik í borðtennis um helgina? SVÖR 1. Þriðjungur 2. Laufey Haraldsdóttir 3. Hjörtur Magni Jóhannsson 17% 33% 30,2% 11,7% 8,1% Mjög ánægð(ur) Frekar ánægð(ur) Hvorki né Frekar óánægð(ur) Mjög óánægð(ur) Afstaða til starfa forsetans Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta Íslands? KÖNNUN Helmingur þeirra sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönn- un MMR segist frekar eða mjög ánægður með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Alls sögðust sautján prósent mjög ánægð og 33 prósent frekar ánægð með störf forsetans. Ríf- lega þrjátíu prósent sögðust hvorki ánægð né óánægð. Tæplega tólf prósent sögðust frekar óánægð með frammistöðu Ólafs og um átta prósent sögðust mjög óánægð. Mikill munur var á afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokk það myndi kjósa í þingkosningum. Þannig voru 75 prósent stuðn- ingsmanna Framsóknarflokksins ánægð með störf forsetans og 51 prósent stuðningsmanna Sjálf- stæðisflokksins. Um 39 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna sögðust ánægð með Ólaf Ragn- ar, og 24 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar. Ánægja með störf forsetans var almennt meiri hjá yngra fólki en hjá eldri aldurshópum. Könnunin var gerð 8. til 11. mars á netinu og í síma. Þátttak- endur voru 902 og tóku 97 prósent afstöðu til spurningarinnar. - bj Mikill munur á ánægju með störf Ólafs Ragnars eftir stuðningi við flokka: Helmingur ánægður með forsetann FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira úrval afþreyingar, frétta og myndskeiða í topp-upplausn með greiðara og einfaldara aðgengi fyrir allar tölvur og farsíma. Horfðu, hlustaðu og fylgstu með öllu því sem gerist, hvar og hvenær sem er á Vísi. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. LÖGREGLUMÁL Einn maður var handtekinn eftir að tveir menn lentu í átökum í heima- húsi í Hveragerði aðfaranótt sunnudags. Mennirnir voru að slást þegar lögreglan var kölluð á staðinn. Þegar lögreglumenn reyndu að handtaka annan þeirra streittist sá á móti og sparkaði í höfuð lög- reglumanns. Þrátt fyrir ofsa- fengna framkomu mannsins tókst lögreglunni að handtaka hann. Hann var fluttur á lögreglustöð- ina á Selfossi og yfirheyrður. - jss Slagsmál í heimahúsi: Sparkaði í höfuð lögreglu VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.