Fréttablaðið - 20.04.2011, Síða 32
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR2
er langt haf milli raflínustaura.
Þetta var einföld sveitalína en
ég var svo heppinn að hún lenti
á góðum stað á vélinni þannig að
hún slitnaði. Púlsinn fór töluvert
upp en ég setti á fullt afl og fann
að vélin brást rétt við og svo lenti
ég á túni í grenndinni. Bóndinn á
bænum kom á vaðandi siglingu á
fjórhjóli og ég bjóst við skömm-
um. Þá kom í ljós að hann hafði
flogið með mér sumarið áður
svo við vorum málkunnugir og
meðan ég beið eftir lögreglunni
bauð hann mér heim í kaffi. Á
veröndinni var maður að pumpa
gamaldags prímus og ég, borgar-
drengurinn, spurði: „Hvað, eruð
þið enn að nota svona prímusa?“
Þá svaraði hinn kurteislega. „Já,
við erum nú bara rafmagnslaus
hér þessa stundina.“
Styrmir kveðst yfirleitt vera
í slagtogi með öðrum í fluginu.
„Við fljúgum mikið tveir og tveir
saman öryggisins vegna, hvor
á sinni vél. Leggjum oft af stað
síðdegis, finnum okkur bænda-
gistingu á leiðinni og lendum á
vegum eða í fjörum því ef við
höfum einhvern vind þurfum við
bara 100-150 metra braut,“ lýsir
hann og bætir við að lokum. „Alls
staðar er tekið vel á móti manni.
Flugið er svo jákvætt í hugum
Íslendinga.“ gun@frettabladid.is
„Þetta eru góðviðrisvélar eins og aðrar
litlar flugvélar,“ segir Styrmir sem hér er
í essinu sínu.
Ein af mörgum listrænum myndum sem Styrmir hefur smellt af úr lofti.
Þessa mynd tók Styrmir í Landmannalaugum í júlí 2009.
Framhald af forsíðu
Skartgripir ættu í flestum tilfellum að verða eftir heima þegar haldið er í
ferðalag. Sama hversu erfitt er að skilja þá við sig er það betra en að týna
dýrgripum á sólarströnd, í siglingu eða skoðunarferð. Giftingarhringurinn
má vitanlega fara með ef hann er til staðar en best er að láta þar við sitja.
Sumargjöfin
25% afsláttur af öllum
barnavörum í dag!
ÍSLENSKT
KISUNAMMI
Fæst í Bónus, Samkaup,
10-11, Fjarðarkaup og Inspired
Keflavíkurflugvelli
Harðfisktöflur sem
kisur elska
VINSÆLVARA
Sunnudaga og
sunnudagskvöld á Stöð 2.
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 16, sími 553 7300
Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17
Toppur
margir litir – S/M/L
3.990 kr.
Teygjutoppar
margir litir – SM/ML
1.990 kr.
Stuttbuxur
drapp, hvítt, svart
S/M/L
3.990 kr.
Opið á skírdag
kl. 12–15
Opið laugardag
kl. 12–17
ATHUGIÐ