Fréttablaðið - 20.04.2011, Qupperneq 41
MIÐVIKUDAGUR 20. apríl 2011 29
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssam-
taka foreldra, verða afhent í sextánda sinn í
Þjóðmenningarhúsinu í maí. Af því tilefni er nú
óskað eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna
2011 frá einstaklingum, félögum eða hópum
sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum,
sem stuðla að eflingu á skólastarfi og jákvæðu
samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.
Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á
því fjölbreytta starfi sem fer fram innan leik-,
grunn- og framhaldsskóla og stuðlar að því að
efla jákvætt og öflugt samstarf heimila, skóla
og samfélagsins.
Til að senda tilnefningu má fylla út eyðu-
blað á heimasíðu Heimilis og skóla, www.heim-
iliogskoli.is. Síðasti skiladagur tilnefninga er
fimmtudagur 28. apríl 2011.
Óska eftir tilnefningum til foreldraverðlauna
Líkt og aðrar metsölubækur hefur
Biblían nú verið gefin út í kilju.
Markmiðið með þessu framtaki
er að gera texta Biblíunnar sem
aðgengilegastan flestum, ekki síst
ungu fólki.
JPV
útgáfa gefur
Biblíuna út í
samstarfi við
Hið íslenska
Biblíufélag.
Nýja útgáf-
an er tæpar
1.900 síður
en í þægilegu
broti sem fer
vel í hendi.
Biblían gefin út
í kiljuformi
Andri Björn Róbertsson bassi
heldur tónleika ásamt strengja-
kvartett, sem Halla Steinunn
Stefánsdóttir leiðir, í Lang-
holtskirkju á föstudaginn langa
klukkan 17.
Meðal verka eru einsöngs-
kantatan Ich habe genug BWV
82 eftir J. S. Bach og bassaaríur
úr Jóhannesar- og Mattheusar-
passíum. Andri Björn hefur alist
upp í kórastarfi í Langholtskirkju
frá níu ára aldri í gegnum Gra-
dualekór Langholtskirkju og Kór
og Kammerkór Langholtskirkju.
Hann lauk burtfararprófi frá
Söngskólanum í Reykjavík vorið
2010. Kennari hans var alla tíð
Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Hann
stundar nú nám við Konunglega
tónlistarskólann í London.
Fyrir nokkrum árum vakti
Andri athygli hinnar heimsfrægu
söngkonu Kiri Te Kanawa og hefur
verið undir sérstakri vernd hennar
síðan.
Miðar eru seldir á midi.is.
Bassaaríur í
Langholtskirkju
VERÐLAUNIN VEITT Frá afhendingu
foreldraverðlauna í fyrra.
Lummósveit lýðveldisins heldur
tónleika á Hótel Klaustri laugar-
daginn fyrir páska klukkan 21.
Hún mun flytja dægurlög frá 6.
áratug síðustu aldar ásamt söngv-
urunum Gunnari Pétri Sigmars-
syni og Lindu Agnarsdóttur. Sér-
stakur heiðursgestur verður Jón
Kr. Ólafsson söngvari frá Bíldu-
dal. Tónleikarnir eru liður í dag-
skránni Sigur lífsins sem að vanda
fer fram á Kirkjubæjarklaustri
um bænadagana.
Lummósveit lýðveldisins er
skipuð Skaftfellingum á breiðu
aldursbili. Aldursforsetinn er á
áttræðisaldri samkvæmt kirkju-
bókum og yngsti félaginn varð
sextán ára á dögunum. Leikið er
á píanó, trommur, bassa, og gítar.
Saxófónn, klarinett og harmón-
íka skreyta líka undirleikinn sem
félagarnir líta á sem vöggu fyrir
sönginn, aðal sveitarinnar. - gun
Djassperlur frá
sjötta áratug
LUMMÓSVEIT LÝÐVELDISINS Er skipuð
fólki á öllum aldri. MYND/ÍBÍ
BASSI Andri Björn syngur á tónleikum í
Langholtskirkju á föstudaginn langa.
Kjúklingabollur í drekasósu
www.ora.is
... einfalt, fljótlegt og go !
Smakkaðu
nýjung frá ORA
Kjúklingabollur í súrsætri sósu