Fréttablaðið - 05.05.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 05.05.2011, Blaðsíða 4
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR4 Ranglega var farið með nafn Gunn- björns Þorsteinssonar í grein um Dylan-tónleika Hollvinafélags Minnesotaháskóla 15. maí. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTTING GENGIÐ 04.05.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,5963 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 111,12 111,66 183,39 184,29 165,00 165,92 22,123 22,253 20,993 21,117 18,320 18,428 1,3687 1,3767 179,98 181,06 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is FÓLK Sara Obama, stjúpamma Bar- acks Obama Bandaríkjaforseta í föðurætt, er á leið hingað til lands síðar í mánuðinum. Hún kemur á vegum Pauls Ramses Oduor og Rosemary Atieno og hjálparsam- taka þeirra. Að sögn Pauls kemur Sara Obama hingað til lands til þess að hjálpa þeim að vekja athygli á hjálparsam- tökum þeirra, Tears Children and Youth Aid, en þau vinna nú að því að safna fé til að byggja barnaskóla í nágrenni við heimabæ Obama. Hún er þriðja eiginkona föðurafa Banda- ríkjaforsetans, sem kallar hana Ömmu Söru. „Hún er svo mörgum innblást- ur,“ segir Paul en Sara rekur sín eigin góðgerðasamtök í Kenía. Paul segir hana og fylgdarlið hennar hafa fengið vegabréfsáritanir í gær og áætlað sé að þau komi hingað til lands 15. maí. Hann hefur fundað með forsetaembættinu um málið og kynnt fólki þar áformin. Örnólf- ur Thorsson forsetaritari staðfesti það við Fréttablaðið í gær, en nánari aðkoma forsetaembættisins liggur ekki fyrir. „Fyrsta kvöldið verðum við með einhvern formlegan fund til að kynna hana fyrir íslensku þjóð- inni. Svo ætlum við að heimsækja einhverja skóla bæði í Reykjavík og Hafnarfirði, við búum í Hafn- arfirði og viljum gera þetta fyrir fólkið okkar. Svo verða allavega tveir fyrirlestrar haldnir, vonandi í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Svo langar okkur að fara með hana gullna hringinn, og kynna hana fyrir Íslendingum.“ Paul og Rosemary vita hversu hart er í ári hjá mörgum á Íslandi en þau vilja nota tækifærið með komu Söru að hvetja íslensku þjóðina til dáða. Þau leita stuðnings almenn- ings við að fjármagna skólann, en hafa nú þegar fest kaup á þremur lóðum undir skóla. „Þessi skóli mun þjóna 700 börn- um, sem geta eftir útskrift leit- að sér meiri menntunar. Hversu mikið meira er hægt að biðja um? Þetta eru munaðarlaus börn, börn sem hafa verið misnotuð og enginn hefur viljað. Við töldum aðeins hægt að hjálpa þeim með því að mennta þau. Það er númer eitt, tvö og þrjú.“ „Við viljum að fólk þekki sam- tökin okkar og um hvað þau snú- ast. Við viljum líka sýna fólki hér hversu mikils virði 2.000 íslenskar krónur eru fyrir börnin í Kenía,“ segir Paul. „Við viljum styðja börn í Kenía eins og við vorum studd á Íslandi, við viljum sýna þeim sömu ástúð. Við viljum líka gefa þeim tækifæri til að komast á ný inn í sam félagið og vera samþykkt, eins og við vorum samþykkt hérna.“ Hægt er að fræðast meira um samtökin Tears Children and Youth Aid á http://www.tearschildren.org/. thorunn@frettabladid.is Föðuramma Obama að koma til Íslands Sara Obama, stjúpamma Bandaríkjaforsetans Baracks Obama, er á leið til Ís- lands. Hún ætlar að vekja athygli á hjálparsamtökum Pauls Ramses og Rosemary Atieno, sem nú vinna að byggingu barnaskóla nálægt heimkynnum Obama. AMMA OBAMA Sara Obama með íslenskan trefil ásamt sjálfboðaliðum í samtökum Paul og Rosemary í Kenía. MYND/TEARSCHILDREN PAUL OG ROSEMARY VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 21° 16° 15° 19° 21° 13° 13° 20° 18° 24° 19° 29° 13° 20° 19° 9°Á MORGUN Strekkingur með SA- strönd, annars hægari. LAUGARDAGUR Strekkingur með SA- strönd, annars hægari. 11 9 6 11 9 11 15 11 10 8 8 5 6 7 2 6 6 6 6 5 7 4 13 5 2 2 3 2 5 4 5 2 12 ÞOKULOFT verður líklega sums staðar með ströndum landsins norðan og austan til í dag og þar heldur svalt. Það ætti að sjást til sólar á suðvestur- horninu hluta úr degi og líklega léttir heldur til norðanlands þegar líður á daginn. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður LÍBÍA, AP Saksóknarar Alþjóð- lega sakadómstólsins í Haag óska eftir því að handtöku- beiðni verði gefin út á hendur þremur Líbíumönnum vegna glæpa gegn mannkyni. Luis Moreno-Ocampo, aðalsaksóknari dómstólsins, sagði rannsóknir dómstólsins hafa leitt af sér rökstuddan grun um að umfangsmiklar og skipulagðar árásir hefðu verið gerðar á almenna borg- ara í Líbíu. Öryggissveitir Múammars Gaddafís Líbíu- leiðtoga hefðu staðið fyrir þessum árásum. Saksóknar- inn nafngreindi ekki þá þrjá einstaklinga sem hann sagði líklega bera mesta ábyrgð á þessum glæpum. Hann sagð- ist þó ætla að nafngreina þá þegar hann legði ósk sína um handtökubeiðni fyrir úrskurðar nefnd dómstólsins. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á fundi sínum 26. febrúar að fela dómstólnum í Haag að hefja rannsókn á því hvort stríðs- glæpir hefðu verið framdir í Líbíu. - gb Stríðsglæpadómstóllinn vill handtökubeiðni á hendur þremur Líbíumönnum: Taldir vera sekir um stríðsglæpi LUIS MORENO-OCAMPO Hefur enn ekki nafngreint Líbíumennina þrjá sem hann vill láta handtaka fyrir glæpi gegn mannkyni. NORDICPHOTOS/AFP MEXÍKÓ, AP Fimm létust og níu er saknað eftir gassprengingu í kolanámu í Coahuila-héraði í Mexíkó á þriðjudag. Sprengingin var gríðarlega öflug og eru litlar líkur taldar á því að þeir níu sem enn er saknað finnist á lífi. Yfirvöld höfðu þegar óskað eftir aðstoð frá sérfræðingum frá Síle sem tókst að bjarga 33 náma- verkamönnum á lífi í október. Fjórir sérfræðingar eru vænta- legir á vettvang, en ólíklegt er talið að sú aðstoð komi að gagni. Verkalýðsfélag námuverka- manna í Mexíkó hefur gagnrýnt harðlega aðstæður og öryggismál í kolanámum í landinu. - bj Sprenging í námu í Mexíkó: Óttast um líf níu í námunni BÍÐA Fjölskyldur mannanna sem enn er saknað bíða nú milli vonar og ótta við námuna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Ódýrari garðar í Kópavogi Kópavogsbær heldur áfram að leigja út matjurtagarða og eru sumir þeirra þar sem skólagarðar voru áður eins og Reykjavíkurborg hefur tekið upp og nefnir fjölskyldugarða. Gjaldið er 2.500 krónur í Kópavogi miðað við 4.200 krónur í höfuðborginni. Að auki eru garðarnir í Kópavogi fjórðungi stærri og lögð eru til verkfæri í upp- hafi sumars. SVEITARSTJÓRNARMÁL VIÐSKIPTI Landsbankinn hefur yfirtekið rekstur Sólningar, sem rekur fjögur dekkjaverkstæði. Stefnt er að því að tilkynna um sölu fyrirtækisins innan sex mánaða frá yfirtökudegi. Fram að sölu fyrirtækisins verður fjárhagur þess endur- skipulagður. Yfirtaka Landsbank- ans er gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Sólning rekur dekkjaverkstæði í Kópavogi, Keflavík og á Sel- fossi undir nafni Sólningar, auk dekkjaverkstæðisins Barðans í Reykjavík. - bj Banki yfirtekur Sólningu: Tilkynna sölu innan hálfs árs UMHVERFISMÁL Allnokkurt mistur var víða á Suður- og Vesturlandi á mánudag og kemur fram á vef Umhverfisstofnunar að nokkur svifryksmengun hafi mælst á höfuðborgarsvæðinu. Dagurinn hafi verið yfir heilsuverndar- mörkum í Reykjavík. „Að þessu sinni var ekki um að ræða öskufok frá Eyjafjallajökli heldur sandfok frá Landeyja- sandi,“ segir á vef stofnunarinn- ar. Tekið er fram að Eyjafjalla- jökull, Skógaheiði og efri hluti Eyjafjalla séu snævi þakin. - óká Mistur á S- og Vesturlandi: Ekki gosaska heldur sandfok ÍTALÍA, AP Silvio Berlusconi, hinn umdeildi forsætisráðherra Ítalíu, útilokar ekki að bjóða sig fram til þingkosninga þegar kjörtímabil hans rennur út árið 2013. Þá verð- ur hann orðinn 76 ára. Fyrir fáeinum vikum sagðist hann reikna með því að tveggja áratuga pólitískum ferli sínum færi brátt að ljúka. Nú segist hann reiðubúinn að bjóða sig fram til forystu hægri- manna, telji hann það nauðsyn- legt. Að minnsta kosti muni hann þó vilja gegna lykilhlutverki áfram, til dæmis að vera áfram leiðtogi flokksins þótt hann bjóði sig ekki fram til þings. - gb Enginn bilbugur á Berlusconi: Útilokar ekki framboð næst SILVIO BERLUSCONI Dómsmálahrina stöðvar hann ekki. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.