Fréttablaðið - 05.05.2011, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 05.05.2011, Blaðsíða 59
FIMMTUDAGUR 5. maí 2011 47 Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010 Kvikmyndir ★★★ Thor Leikstjóri: Kenneth Branagh Leikarar: Chris Hemsworth, Natalie Portman, Anthony Hopkins, Tom Hiddle- ston, Stellan Skarsgård, Rene Russo Það er til ágætis flökkusaga um Bubba Morthens og þegar honum var boðið aðalhlutverkið í Hollywood- kvikmynd um teiknimyndasöguhetj- una Thor. Því miður varð ekki af gerð þeirrar myndar, en núna, rétt um aldar fjórðungi síðar, er loksins komin kvikmynd um þennan vinsæla Marvel-garp. Sagan er beint eftir uppskriftinni. Ofurhetja berst við ófreskjur og svik- ula fyrrverandi samherja, verður ást- fanginn af „venjulegri“ stúlku sem veit ekki að hann er ofurhetja, missir ofurmátt sinn tímabundið en öðlast hann að lokum aftur og bjargar heim- inum. Eða í það minnsta deginum. Ég er ekki að skemma neitt fyrir ykkur þar sem þið hafið séð þetta þúsund sinnum áður. Thor er skemmtileg mynd að mestu. Ég átti erfitt með fyrstu 25 mínúturn- ar, en þær gerast allar í hinum tölvu- gerða Ásgarði (sem lítur út eins og framtíðarlegt hommadiskótek) og ég var orðinn smeykur um að ég fengi aldrei að sjá hinum megin við green- screen tjaldið. En þegar Thor missir mátt sinn og er sendur til jarðar byrj- ar myndin fyrir alvöru. Chris Hemsworth er þrælskemmti- legur í titilhlutverkinu og efni- leg hasarmynda hetja. Hann hefur skrokkinn sem til þarf, er fyndinn og leikur ágætlega. Hopkins er fæddur í hlutverk Óðins og Portman er sæt og fín. Það þarf víst ekki meira til að þessu sinni. En Thor kemst langa leið á húmornum og andrúmsloftið er létt og skemmtilegt eins og teiknimynda- sögur voru í gamla daga. Niðurstaða: Nokkuð vel heppnað ævin- týri, þrátt fyrir fjarveru Bubba Morthens. Haukur Viðar Alfreðsson Allt eins og það á að vera hjá Þór THOR Chris Hemsworth og Anthony Hopkins leika Þór og Óðin í hasarmyndinni Thor. Talið er að endurkoma frægustu útgáfunnar af Guns N‘ Roses sé á næsta leiti. Hljómsveitin hefur gengið í gegnum ótal breytingar frá því að hún var stofnuð árið 1985. Samkvæmt fjölmiðlum í Banda- ríkjunum ku Guns N‘ Roses koma fram í hálfleik á Ofurskálinni í febrúar á næsta ári. Þekktasta uppröðun Guns N‘ Roses hefur ekki komið saman frá árinu 1994, en síðan þá hefur söngvarinn Axl Rose verið með hljómsveitar nafnið í gíslingu og gefið út eina plötu, hina rándýru Chinese Democracy, árið 2008. Ólíkindatólið Rose neitar að endur koma sé væntanleg, en íþróttabloggarinn Kent Sterling fullyrðir að viðræður við Axl, Slash og Duff séu í gangi. Hann segir málið þó á byrjunarstigi og bætir við að ekkert sé í hendi. Slúðrað um endurkomu ÓLÁTABELGIR Strákarnir í Guns N‘ Roses eru mikil ólíkindatól, en gætu snúið aftur á næsta ári. Leikkonan Penelope Cruz segir að líf sitt hafi gjörbreyst eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn í janúar. „Allir segja manni að hlutirnir breytist og allar þessar klisjur um barneignir og móður- hlutverkið eru sannar,“ sagði hin 37 ára Cruz, sem eignaðist soninn Leo með eiginmanni sínum, leikaranum Javier Bardem. Gjörbreytt líf BREYTT LÍF Líf Cruz hefur breyst mikið eftir að hún eignaðist soninn Leo.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.