Fréttablaðið - 05.05.2011, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 05.05.2011, Blaðsíða 56
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR44 bio@frettabladid.is Annie Mist Þórisdóttir, Íslandsmeistari í CrossFit, hefur æft íþróttina í tvö ár og náð ótrúlegum árangri á þeim stutta tíma. > ÚRVALSKOKKUR Daniel Craig reyndist vera ansi lunkinn matreiðslumaður á töku- stað Cowboy & Aliens sam- kvæmt mótleikara hans, Sam Rockwell. Craig eld- aði í hvert skipti þegar tökum lauk en þegar orðrómur um hæfileika hans á bak við eldavél- ina kvisaðist út kallaði hann á aðstoð frá starfs- fólki mötuneytisins. Þær gætu ekki verið ólíkari, kvik- myndirnar tvær sem frumsýndar eru um helgina í íslenskum kvik- myndahúsum. Annars vegar er það ekta bandarísk poppkornsmynd og hins vegar breskt raunsæi eins og það gerist best. Route Irish er nýjasta kvikmynd- in frá hinum virta Ken Loach, sem hlaut gullpálmann í Cannes fyrir kvikmynd sína The Wind that Shakes the Barley árið 2006. Að þessu sinni fjallar Loach um Íraks- stríðið sem hefur legið eins og mara á Bretum og er að breytast í hálfgert Víetnamstríð þjóðarinn- ar. Myndin segir frá Fergus Mol- ley, sem hefur nýverið misst besta vin sinn í Írak. Hann féll á hinni stórhættulegu leið Route Irish sem liggur frá flugvellinum í Bagdad inn á græna friðarsvæðið. Fergus á erfitt með að sætta sig við dauða hans og þegar hann kemst yfir ný gögn í málinu ákveður hann að grípa til eigin ráða. Með aðalhlut- verkin í myndinni fara þau Mark Womack og Andrea Lowe. Something Borrowed er dæmi- gerð bandarísk poppkorns rómantík með Kate Hudson og Ginnifer Goodwin úr Big Love í aðalhlut- verkum. Myndin segir frá því þegar hin vonlausa piparjómfrú Rachel fellur fyrir unnusta bestu vinkonu sinnar. Meðal framleið- enda myndarinnar er Óskarsverð- launahafinn Hillary Swank. Rómantík og breskt stríðsdrama STRÍÐ OG ÁST Kate Hudson leikur aðal- hlutverkið í kvikmyndinni Something Borrowed, sem fjallar um piparjómfrú sem fellur fyrir unnusta bestu vinkonu sinnar. Bandaríska leikstýran Kathryn Bigelow hefur óvænt fengið upp í hendurnar magnaðan söguþráð sem sennilega á eftir að reynast gullnáma. Hún hefur nefnilega, nánast frá fyrstu hendi, fengið innsýn inn í líf þeirra sem höfðu uppi á Osama bin Laden og drápu í Pakistan. Forsagan er þessi: Bigelow og samstarfsfélagi hennar, Mark Boal, hafa að undanförnu verið að vinna í stórmyndinni Triple Frontier sem Karl Júlíusson gerir leikmyndina í. Sú mynd tekur dágóðan tíma í undirbúningi og hefur Bigelow lýst yfir vilja sínum að gera harðsoðna hasarmynd í sumar. Sú átti að fjalla um leitina að Osama bin Laden og fylgja eftir sérsveit í bandaríska hernum. Svo skemmtilega vill til að Boal, sem skrifaði hand- ritið að The Hurt Locker og er reyndur blaðamaður, hafði í gegnum sambönd sín innan bandaríska hersins fengið að fylgjast með einni fremstu sérsveit bandaríska hersins og það var hún sem felldi bin Laden á sunnudaginn. Samkvæmt Empire Online er Boal nú á fullu við að endurskrifa handritið sem þau hugðust nota og færa inn mikilvægar breytingar. Ekki er hins vegar ljóst hvar myndin verður tekin upp enda mun þurfa töluverða öryggisgæslu í kringum tökustaðinn. Það eru ansi magnaðir hlutir að gerast hjá Dis- ney. Ekki að það sé eitt- hvað fréttnæmt heldur virðist nýjasta kvikmynd Spiderman-leikstjórans Sam Raimi innan veggja fyrirtækisins lofa góðu. Myndin er svokallaður for- leikur að Galdrakarlinum í Oz og segir frá sölumanni einum sem lendir í því að loftbelg- ur hans hafnar í hvirfilbyl og send- ir hann í töfralandið fræga. Þar kemst hann í kynni við töfrakonuna Theódóru með skelfilegum afleiðingum. Raimi hefur þegar geng- ið frá því að James Franco leiki sölumanninn og Mila Kunis leiki Theódóru. Þá var tilkynnt í gær að Rac- hel Weisz myndi leika vondu nornina í Oz sem leggur stein í götu systur sinnar og reynir að gera allt til að eyðileggja samband henn- ar og sölumannsins. Ráðgert er að tökur hefjist í júlí og er búist við miklu tæknibrellufjöri. Er vonda drottningin Bíó Paradís, kvikmyndahúsið við Hverfisgötu, hyggst blása til íslensks kvikmyndasumars og hefst það 6. maí. Í hverri viku verður sýnd íslensk kvikmynd með enskum texta og er þetta því kjörið tækifæri fyrir Íslend- inga sem vilja sýna útlendingum íslenska kvikmyndamenningu og jafnframt rifja upp gömul kynni við gamlar íslenskar kvikmyndir. Nýjar myndir verða sýndar í bland við gamlar en meðal þeirra eru meðal annars Börn náttúr- unnar, Tár úr steini, Kristnihald undir Jökli og Djöflaeyjan ásamt Brúðgumanum, Bjarnfreðarsyni, Gauragangi og Kaldri slóð. Allar nánari upplýsingar um sýningarn- ar er hægt að nálgast á heimasíðu Bíó Paradís, bioparadis.is. Íslenskar kvik- myndir í Bíó Paradís ÍSLENSK VEISLA íslenskar kvikmyndir verða sýndar í allt sumar í Bíó Paradís, meðal annars Börn náttúrunnar, Tár úr steini og Bjarnfreðarson. SAFARÍKT Kathryn Bigelow er með safaríkt efni í höndunum fyrir sína næstu kvikmynd en hún mun fjalla um leitina að Osama bin Laden. Bigelow heldur uppteknum hætti RACHEL WEISZ Þegar fyrsta kvikmyndin um bílatuddann Toretto og lögregluþjóninn Brian O‘Conner var frumsýnd fyrir áratug hefði engan kvikmyndaspekúlant grun- að að fjórar kappaksturs- kvikmyndir ættu eftir að fylgja í kjölfarið. En glæsi- kerrurnar trekkja að. Fast Five fór rakleiðis á toppinn í Bandaríkjunum enda skartar myndin þeim Paul Walker og Vin Diesel í aðalhlutverkum. Myndin tekur upp þráðinn þar sem Fast & Furious (nafnafrumleikinn er ekkert að þvælast fyrir) skildi við hann en þá unnu þeir Toretto og O‘Conner að því fyrir FBI að handsama mexíkóskan heróín- innflytjanda. Að þessu sinni hyggj- ast þeir félagar ásamt gamla góða genginu stela hundrað milljónum dollara frá hinum ofurspillta auð- jöfri Hernan Reyes. Verkefnið verður ögn snúnara þegar lög- reglumaðurinn Luke Hoobs nart- ar í hælana á þeim. Fyrsta myndin í þessum flokki sló nánast samstundis í gegn hjá bílaóðum kvikmyndahúsagestum árið 2001. The Fast and the Furio- us verður seint sökuð um að vera greindarleg hasarmynd, aðal- áherslan var lögð á kraftmikla bíla, fáránleg hasaratriði og suð- rænar stúlkur í magabolum. Sögu- þráðurinn var ekkert ýkja flók- inn og leikurinn í meðallagi góður en þetta kom ekki að sök; myndin skilaði 144 milljónum dala í gróða þrátt fyrir að kosta aðeins 38 millj- ónir. Sannkölluð gullnáma. Mynd númer tvö bar heitið 2 Fast 2 Furious og fékk afleita dóma þrátt fyrir að við stjórnvölinn sæti John Singleton, sá ágæti leikstjóri. Paul Walker var á sínum stað sem O‘Conner en Vin Diesel var víðs- fjarri. Í stað hans komu þau Tyrese Gibson og Eva Mendes. En „vondu“ dómarnir höfðu engin áhrif, ungir karlmenn flykktust í bíó til að sjá glæsikerrurnar spæna upp mal- bikið í æsilegum kappakstri lögg- unnar og bófaflokka. 127 milljón- ir dala komu í kassann. Ekki þarf að hafa mörg orð um The Fast and the Furious: Tokyo Drift; hún er aukaafurð (e. spinoff“)í Fast and the Furious seríunni og segir frá ungum vandræðagemsa sem sog- ast inn í götukappakstursmenningu Japans. Myndin fékk skelfilega dóma og aðsóknin var ekki upp á marga fiska. Aðstandendur flokks- ins lögðu saman tvo og tvo; Paul Walker og Vin Diesel voru tvíeyki sem ekki mátti aðskilja. Og í næstu mynd yrðu þeir að beina sjónum sínum að amerískum glæsikerrum. Og viti menn. Fast & Furious var frumsýnd 2009 með þeim Walker og Vin Diesel og herbragðið skil- aði sér fullkomlega; 155 milljónir dala komu í kassann og samanlagt hafa því myndirnar fjórar skil- að tæplega hálfum milljarði dala, eða 56 milljörðum íslenskra króna. Fimmta myndin virðist vera á góðri leið með að verða sú vinsælasta í röðinni og hefur þar að auki feng- ið viðunandi dóma. Það er því ekk- ert skrítið að þegar hefur verið til- kynnt um sjöttu myndina. freyrgigja@frettabladid.is KRAFTURINN SELUR GRIMMT FÁRÁNLEGAR VINSÆLDIR The Fast and the Furious flokkurinn hefur getið af sér fjórar myndir og eina aukaafurð. Myndirnar hafa rakað inn peningum þrátt fyrir að hafa aldrei verið vinsælar hjá kvikmyndagagnrýnendum. Fimmta myndin virðist þó ætla að slá öllum við; hún hefur fengið frábæra dóma og rauk beint á toppinn í Bandaríkjunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.