Fréttablaðið - 05.05.2011, Side 6
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR6
SAMGÖNGUR Af þeim 195.715 bif-
reiðum sem í umferð eru í dag
gengur bara rétt rúmlega hálft
prósent fyrir öðru eldsneyti en
bensíni eða dísilolíu. Það eru 1.006
bílar. 73,4 prósent bílaflota lands-
ins ganga fyrir bensíni og 26,1 pró-
sent fyrir dísilolíu.
Tölur Umferðarstofu um skrán-
ingu bifreiða í lok apríl sýna að
af þessum 1.006 bílum er vel ríf-
lega helmingurinn, 568 bílar, svo-
nefndir tvinnbílar, en þeir eru
knúnir bæði bensín- og rafmótor.
Hlutdeild þeirra í heildarbílafjölda
nemur þó ekki nema rétt tæplega
0,3 prósentum.
Næststærstur er svo hlutur bíla
sem ganga fyrir metangasi, en
þegar teknir eru saman bílar sem
skráðir eru metanbílar og þeir sem
breytt hefur verið þannig að þeir
ganga bæði fyrir metani og bens-
íni þá eru þeir alls 411 talsins. Það
er tæplega 41 prósent bíla sem
ganga fyrir nýjum eldsneytisgjöf-
um og 0,21 prósent af bílum sem
eru á númerum í dag.
Aðrir orkugjafar eru í miklum
minnihluta. Vetnisbílar eru 16 á
númerum og rafmagnsbílar eru
ekki nema tíu. Þá er bara einn bíll í
umferð sem er með metanól skráð
sem eldsneyti.
Tölurnar ná til allra bíla, hvort
heldur það eru fólksbifreiðar, hóp-,
sendi-, eða vörubifreiðar. Skipting-
in er þó dálítið ólík innan hvers
flokks.
Þannig er ekki að finna aðra
„nýja“ orkugjafa en metan utan
fólksbílaflokks, nema í einu tilviki
þar sem ein sendibifreið er skráð
sem rafmagnsbíll.
Af þeim 171.448 fólksbílum sem
eru á skrá eru 80,4 prósent, eða
137.774, bensínbílar og 19,1 prósent,
eða 32.822, dísil. Bílar sem ganga
fyrir bensíni og metani eru 202
og 56 eru skráðir sem metanbílar
eingöngu. Tvinnbílar eru bara til í
flokki fólksbíla.
Þrír hópferðabílar ganga fyrir
metani eða bensíni/metani og 15
vörubifreiðar. Heldur fleiri nýta
svo metanið í flokki sendibifreiða,
eða 135 bílar.
Dísilolía er hins vegar ráðandi
í flokki hóp- og vörubifreiða með
94,6 og 95,2 prósenta hlutdeild.
Síðan ganga 65,7 prósent sendibif-
reiða fyrir dísilolíu og 33,5 prósent
fyrir bensíni. olikr@frettabladid.is
TILBOÐ
á 1 lítra
Kókómjólk
Nýjar
og betri
umbúðir!
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Bílafloti landsmanna og eldsneytið sem knýr hann
BENSÍN 73,433%
DÍSIL 26,053%
BENSÍN/RAFMAGN 0,290%
BENSÍN/METAN 0,131%
METAN 0,079%
VETNI 0,008%
RAFMAGN 0,005%
ETANÓL 0,001%
bensín
143.719 bílar
dísil
50.990 bílar
bensín/metan
256 bílar
bensín/rafmagn
568 bílar
etanól
1 bíll
metan
155 bílar
rafmagn
10 bílar
vetni
16 bílar
Heimild: Umferðarstofa
BANDARÍKIN, AP Bandarísk stjórn-
völd hafa leiðrétt lýsingar á vígi
sérsveitarmanna á hryðjuverka-
leiðtoganum Osama bin Laden á
mánudag. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um hvort mynd af líki
hans verði gerð opinber.
Ekki er rétt sem bandarísk
stjórnvöld höfðu sagt að bin Laden
hafi verið vopnaður þegar sérsveit-
armenn bandaríska flotans króuðu
hann af í húsi í borginni Abbott-
abad í Pakistan á mánudagsmorg-
un og skutu hann til bana. Ekki er
heldur rétt sem fullyrt var strax
eftir að hann var veginn að hann
hefði reynt að skýla sér á bak við
konu þegar hermennirnir höfðu
fundið hann.
Bandarísk stjórnvöld hafa enga
ákvörðun tekið um hvort mynd af
líki bin Ladens verði gerð opinber.
„Ég veit ekki hvað við ættum að
græða á því að sýna slíka mynd,“
segir Mike Rogers, formaður
leyniþjónustunefndar bandaríska
þingsins í samtali við fréttastofu
ABC. „Samsæriskenningasmiðir
munu skoða myndirnar og finna
tíu atriði sem þeim þykir benda
til þess að þær séu af einhverjum
öðrum.“ - bj
Osama bin Laden var hvorki vopnaður né reyndi að skýla sér bak við konu:
Stjórnvöld breyta sögu af drápi
MÓTMÆLI Vígi Osama bin Laden hefur
verið mótmælt víða. Hér mótmælir
hópur manna í Multan í Pakistan.
NORDICPHOTOS/AP
Nýir eldsneytisgjafar
nema hálfu prósenti
Bílar á númerum eru 195.715 talsins. Þrír fjórðu bílanna ganga fyrir bensíni
og fjórðungur fyrir dísilolíu. Af heildarfjöldanum ganga rúmlega þúsund bílar
fyrir öðrum orkugjöfum. Rafmagn og metan eru þar algengustu kostirnir.
UMHVERFISMÁL Ríkisstjórn Íslands
hefur samþykkt tillögu Svandísar
Svavarsdóttur umhverfisráðherra
um að veita 42 milljónir til brýnna
framkvæmda nú í vor og sumar á
friðlýstum svæðum sem jafnframt
eru vinsælir viðkomustaðir ferða-
manna.
Fyrir fjárveitingu ríkisstjórnar-
innar á þessu ári verður unnið að
verkefnum við Gullfoss, Geysi í
Haukadal, friðlandið í Dyrhólaey,
Friðland að Fjallabaki, náttúru-
vættið á Hveravöllum og náttúru-
vættið í Surtarbrandsgili.
Höfuðáhersla er lögð á að
tryggja verndargildi og öryggi, en
helstu verkefni sem unnið verður
að á næstu mánuðum eru göngu-
stígar, stikun gönguleiða, útsýnis-
pallar, öryggisgirðingar, merking-
ar, fræðsluskilti, viðvörunarskilti,
gróðurbætur og eftirlit. Fram-
kvæmdirnar eru brýnni en ella
vegna þess að spár gera ráð fyrir
metfjölda ferðamanna á þessu
ári. Það eykur álag á viðkomandi
svæði og undirstrikar nauðsyn
þess að búa vel að öryggi ferða-
manna og tryggja góða aðkomu á
vinsæl svæði. - shá
Ríkisstjórnin samþykkir að ráðast í framkvæmdir við ferðamannastaði:
Fjárveiting til friðlýstra svæða
AÐ FJALLABAKI Ástandi friðlýstra svæða er mjög ábótavant og við því bregst
umhverfisráðherra fyrir sumarið. MYND/UMHVERFISSTOFNUN
LÖGREGLUMÁL Vélsleðamaður
slaðaðist á öxl á Lyngdalsheiði í
fyrrakvöld. Lögreglan á Selfossi
fékk tilkynningu um slysið um
klukkan ellefu og var sjúkrabíll
sendur eftir manninum. Félögum
hans tókst að koma honum til
móts við bílinn á Gjábakkavegi.
Lögreglan á Selfossi þurfti
einnig að hafa afskipti af manni
sem ekið hafði bíl sínum út af
veginum ofan við Reykholt. Hann
hafði ekið dágóðan spöl í veg-
kantinum áður en hann missti
bílinn út af og festi í for. Hann
var einn í bílnum og er grunaður
um ölvunarakstur. - sh
Slys á Lyngdalsheiði:
Vélsleðamaður
slasaðist á öxl
Leiðtogafundar minnst
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti
samhljóma á þriðjudag tillögu full-
trúa Sjálfstæðisflokksins um að
standa fyrir dagskrá í tilefni af því að í
október verður aldarfjórðungur liðinn
frá leiðtogafundi Ronalds Reagan og
Mikhaíls Gorbatsjov í Reykjavík.
REYKJAVÍKURBORG
NEW YORK New York borg fær nýja
tegund leigubíla á göturnar árið
2013. Þeir verða framleiddir hjá
Nissan í Japan og eru heiðgulir að
lit, eins og hinir þekktu leigubílar
sem keyrt hafa um borgina í ára-
tugi.
Borgarstjóri New York, Michael
Bloomberg, greindi frá tíðindun-
um í vikunni. Borgin hefur gert
samning við bílaframleiðandann
til tíu ára, sem hljóðar upp á einn
milljarð Bandaríkjadala, eða um
111 milljarða króna. Bílarnir
verða búnir GPS-tækjum til að
fyrirbyggja það að leigubílstjórar
villist á götum stórborgarinnar.
- sv
111 milljarða samningur:
Nýir leigubílar
í New York
NÝ KYNSLÓÐ LEIGUBÍLA Nýju bílarnir
eru frá Nissan. Í dag eru um 13.000 gulir
leigubílar í New York. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fékkst þú vaxtaniðurgreiðslu úr
ríkissjóði um síðustu mánaða-
mót?
Já 49,8
Nei 50,2
SPURNING DAGSINS Í DAG
Tókst vel til með byggingu tón-
listarhússins Hörpunnar?
Segðu þína skoðun á visir.is
FRAKKLAND Franskir vínunnendur
geta nú glaðst því að drykkurinn
görótti absinth, eða malurtar-
brennivín, hefur verið leyfður
eftir að sölubann frá árinu 1915
var afnumið af franska þinginu.
Ættu flöskurnar af drykknum
grænleita að vera komnar í hillur
verslana á næstu dögum. Í frétt
BBC kemur fram að drykkurinn,
sem er alræmdur fyrir grænan lit
og görótt áhrif, hafi verið bannað-
ur á sínum tíma sökum meinlegra
áhrifa. Absinth hefur verið leyft í
öðrum ríkjum ESB síðan 1988. - þj
Sölubanni aflétt:
Absinth leyft í
Frakklandi á ný
KJÖRKASSINN