Fréttablaðið - 05.05.2011, Qupperneq 8
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR8
Haraldshádegi í Arion banka
Í dag, kl. 12.15–13.00 fjallar Haraldur Sigurðsson prófessor,
eldfjallafræðingur og forstöðumaður Eldfjallasafns í Stykkis-
hólmi um viðskipti og vísindi í fyrirlestrarsal Arion banka
Borgartúni 19. Haraldur mun fjalla um áhrif eldgosa á
viðskipti í alþjóðlegu samhengi, þar á meðal um gosið í
Eyjafjallajökli og hugsanleg áhrif Kötlugoss.
Nýlega kom út bókin Eldur niðri sem fjallar um ævi og störf
Haralds. Verk í eigu Eldfjallasafnsins í Stykkishólmi verða til
sýnis í bankanum.
Verið velkomin.
SKIPULAGSMÁL Kópavogs-
bær efnir til íbúafund-
ar í dag þar sem gerð nýs
aðalskipulags verður til
umræðu. Guðný Þóra
Gestsdóttir, formaður
skipulagsnefndar bæjarins,
segir í samtali við Frétta-
blaðið að þar kynni nefnd-
in forsendur yfirstandandi
vinnu að aðalskipulagi bæj-
arins og nýjar áherslur sem
og nýja aðferðafræði þar
sem samráð við íbúa verður í for-
grunni.
„Þetta er fyrsti fundurinn í
ferð okkar hjá skipulagsnefnd um
bæinn, en í framhaldinu verðum við
með rýnihópafundi í hverfunum.“
Guðný Þóra segir fundina verða
haldna í þessum mán-
uði og svo aftur í haust
og verða þátttakendur í
rýnihópunum valdir með
slembiúrtaki úr þjóðskrá.
Hún segir að meirihlut-
inn í bæjarstjórn, sem tók
við í fyrravor, hafi auðvi-
tað sínar áherslur í skipu-
lagsmálum, en vilji heyra
frá bæjarbúum, sem hún
segir hafa látið sig skipu-
lagsmál miklu varða
undan farin ár.
„Við viljum gjarnan eiga samtal
við bæjarbúa um þessi mál og köll-
um eftir hugmyndum frá fólkinu.“
Fundurinn fer fram í Hörðuvalla-
skóla við Baugakór og hefst klukkan
17. - þj
Skipulagsmál í brennidepli á íbúafundi í Kópavogi:
Boða náið samráð
við bæjarbúa
GUÐNÝ ÞÓRA
GESTSDÓTTIR
IÐNAÐUR Á næstu vikum verður farið yfir
gögn vegna forvals Vaðlaheiðarganga. Í til-
kynningu Vegagerðarinnar segir að búast
megi við því að tilboð í gerð ganganna verði
opnuð í ágúst eða september.
Vegagerðin upplýsti í gær að sex hefðu
skilað inn gögnum vegna forvals Vaðlaheiðar-
ganga. Þá var ekki útilokað að einhver bættist
í hópinn því hafi einhver sett gögn í póst fyrir
klukkan fjögur 3. maí verða þau tekin gild.
Fyrirtæki sem vilja fá að bjóða í gerð gang-
anna á eigin vegum eru Ístak á Íslandi og
svo Leonard Nilsen & Sønner AS í Noregi.
Þá standa saman að tilboði ÍAV hf. á Íslandi
og Marti Contractors Lts. í Sviss; Suðurverk
hf. á Íslandi og Metrostav a.s. í Tékklandi; og
svo danska fyrirtækið Per Aarsleff a/s og JK
Petersen Contractors P/F í Færeyjum.
Eins sækist samstarfshópur undir merkj-
um Norðurverks á Íslandi eftir því að fá að
bjóða í gerð ganganna, en að honum standa
Árni Helgason ehf., SS Byggir ehf., Skútaberg
ehf., GV Gröfur ehf., Rafeyri ehf. og Norður-
bik ehf.
Í útboðsgögnunum kemur fram að um sé
að ræða 9,5 metra breið, 7,2 kílómetra löng
jarðgöng í bergi, styrkingu ganga, raf- og
stjórnbúað þeirra, um 320 metra langa stein-
steypta vegskála og um fjögurra kílómetra
langa vegi. - óká
Tilboð í gerð Vaðlaheiðarganga verða opnuð í ágúst eða september:
Sex í forvali vegna Vaðlaheiðarganga
VIÐ VAÐLAHEIÐI Í marslok óskaði Vegagerðin eftir þátt-
takendum í forval vegna jarðganga milli Eyjafjarðar og
Fnjóskadals, Vaðlaheiðarganga. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
IÐNAÐUR Stjórn Landsvirkjunar
hefur ákveðið að hefja fram-
kvæmdir við Sauðárveitu. Í
sumar hefst vinna við vegagerð
og aðstöðusköpun. Framkvæmd-
um á að ljúka haustið 2012.
„Um er að ræða veitingu
Innri-Sauðár og Ytri-Sauðár
í Grjótárlón, en þær eru tvær
austustu árnar á virkjunar-
svæði Hraunaveitu,“ segir á vef
Landsvirkjunar. Upphaflega
átti að gera veiturnar árin 2008
og 2009 en framkvæmdum var
frestað vegna óviss efnahags-
ástands.
Aukning orkugetu vegna
framkvæmdanna er áætluð um
40 gígavattsstundir á ári. Fljóts-
dalsstöð framleiddi í fyrra um
5.000 gígavattsstundir. - óká
Orkugetan eykst lítillega:
Framkvæmdir
hefjast við
Sauðárveitu
1. Hvaða verkalýðsforkólfi fæddist
barnabarn 1. maí?
2. Hvað heitir forseti Slóveníu, sem
er í opinberri heimsókn á Íslandi?
3. Hvaða markahrókar skoruðu
fyrir Víking í 2-0 sigri liðsins á Þór?
SVÖR
1. Vilhjálmi Birgissyni, formanni verka-
lýðsfélags Akraness 2. Danilo Türk 3.
Helgi Sigurðsson og Björgólfur Takefusa
BRETLAND Kosið verður í Bretlandi
í dag um breytingar á kosninga-
kerfinu, sem notað er í þing-
kosningum. Samkvæmt skoðana-
könnunum er vart von til þess að
breytingarnar verði samþykktar.
Kosningakerfið sem borið er
undir kjósendur í dag er svipað því
sem notað var við stjórnlagaþings-
kosningarnar hér á landi á síð-
asta ári. Í báðum kerfunum eru
atkvæði frambjóðenda sem ná
ekki kjöri flutt yfir á aðra fram-
bjóðendur en í kerfinu sem Bret-
ar kjósa um í dag eru umfram-
atkvæði þeirra frambjóðenda sem
ná kjöri einnig flutt yfir á aðra
frambjóðendur.
Gamla kerfið, sem notað hefur
verið áratugum saman, er mun ein-
faldara. Þar hlýtur einfaldlega sá
frambjóðandi, sem flest atkvæði
fær, þingsætið í sínu kjördæmi.
Áfram verður kosið í einmenn-
ingskjördæmum, en breyting-
in, verði hún samþykkt, er lík-
leg til að koma smærri flokkum
til góða. Stóru flokkarnir tveir,
Íhalds flokkurinn og Verkamanna-
flokkurinn, sem hafa grætt á
núverandi kerfi, munu því væntan-
lega fá færri þingmenn og oftar
þurfa að reiða sig á stjórnarsam-
starf með öðrum flokkum.
Bresku stjórnarflokkarnir eru á
öndverðum meiði um ágæti kosn-
ingakerfanna. Íhaldsflokkurinn,
með David Cameron forsætis-
ráðherra í fararbroddi, vill halda
í gamla kerfið en Frjálslyndi
flokkur inn, með Nick Clegg utan-
ríkisráðherra í fararbroddi, vill
breytingar.
Stjórnarandstaðan er einnig
klofin í málinu, því þótt Ed Mili-
band, leiðtogi Verkamannaflokks-
ins, vilji breytingar stendur flokk-
urinn ekki einhuga að baki honum
í þessu máli.
Þeir Clegg og Miliband segja
núverandi kerfi vera ósanngjarnt,
sérstaklega nú þegar kjósend-
ur hafi sterkari tilhneigingu en
áður til að greiða smærri flokkum
atkvæði sitt.
Þetta hefur breyst töluvert, því
fyrir hálfri öld kusu 95 prósent
breskra kjósenda annað hvort
Verkamannaflokkinn eða Íhalds-
flokkinn, en undanfarið hafa 35
prósent kjósenda kosið aðra flokka
– og flestir þeirra reyndar Frjáls-
lynda flokkinn.
Þeir sem vilja halda í gamla
kerfið segja hins vegar að nýja
kerfið verði allt of flókið og
kosninga úrslitin verði ekki jafn
skýr. Samsteypustjórnir verði
algengari þar sem flokkarnir geti
ekki staðið við þá stefnu sem þeir
boðuðu fyrir kosningar.
Í dag er einnig kosið til þings
í Skotlandi, Wales og á Norður-
Írlandi, auk þess sem kosið verður
til sveitarstjórna í Englandi.
gudsteinn@frettabladid.is
Kosið um nýtt
kosningakerfi
í Bretlandi
Bretar halda þjóðaratkvæðagreiðslu í dag í fyrsta
sinn síðan 1975. Kosið er um hvort breyta eigi kosn-
ingakerfinu. Stjórnarflokkarnir eru á öndverðum
meiði og stjórnarandstaðan er klofin í málinu.
NICK CLEGG OG DAVID CAMERON Leiðtogar stjórnarflokkanna eru ekki sammála um
ágæti breytinganna sem bornar verða undir kjósendur í dag. NORDICPHOTOS/AFP
VEISTU SVARIÐ?