Fréttablaðið - 05.05.2011, Side 28

Fréttablaðið - 05.05.2011, Side 28
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR28 timamot@frettabladid.is Varðberg, samtök um vestræna sam- vinnu og alþjóðamál, heldur fund á Hótel Sögu í hádeginu í dag. Hann hefst klukkan 12.15. James Townsend, aðstoðarráðherra varnarmála í Banda- ríkjunum, flytur þar erindi um sextíu ára varnarsamstarf Íslands og Banda- ríkjanna en í dag eru sextíu ár liðin frá því samningur um það var undirritað- ur. „Þetta er merkileg saga, sextíu ára saga varnarsamstarfsins, bæði pólit- ískt og þegar horft er á hernaðarlegu þróunina. Það er líka áhugavert hvaða hlutverki Íslendingar gegndu í þessu öllu,“ segir Björn Bjarnason, for maður Varðbergs. Hann rifjar í framhaldinu upp brot úr þessari sögu. „Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna varð til á tímum kalda stíðsins vegna aukinnar styrjaldar- hættu í heiminum, meðal annars eftir að kommúnistar réðust inn í Kóreu. Menn töldu að ákveðin ógn væri á ferðum, ekki síst að verja þyrfti Kefla- víkurflugvöll. Það var skrifað undir samninginn 5. maí og bandarísku her- mennirnir komu 7. maí,“ byrjar Björn. Spurður hvort miklar umræður hafi farið fram áður svarar hann: „Viðræð- urnar voru kannski ekki langar en þær komust á rekspöl í upphafi árs 1951.“ Björn segir Keflavíkurstöðina hafa tekið breytingum á þeim 60 árum sem hún var starfrækt. „Þegar Bandaríkja- menn komu hingað 1951 var flugher- inn aðalstjórnandi á Vellinum en upp úr 1960 tók sjóherinn við stöðinni og hún var flotastöð þangað til yfir lauk. Varnarlínan var dregin í hafinu frá Grænlandi um Ísland til Skotlands. Í stöðinni var fylgst með ferðum kafbáta með hlustunarbúnaði og haldið úti eft- irlitsflugvélum í sama skyni. Á níunda áratugnum fóru Rússar að láta meira að sér kveða með flugvélum. Þá urðu flugvélar hersins meira sýnilegar er þær flugu í veg fyrir vélar frá Sovét- ríkjunum og af Kólarskaganum.“ Þegar stöðinni var lokað voru rúm- lega þrjú þúsund manns þar. „Ætli það hafi ekki verið fimm til sex þús- und þegar flest var?” segir Björn „Ég giska á það.“ Björn fagnar því að fá James Towns- end til að halda ræðu um varnarmál- in á hádegisfundi Varðbergs enda hafi hann margra ára reynslu af samskipt- um við Íslendinga. „Þegar ég fór til Bandaríkjanna með utanríkismála- nefnd Alþingis 1995 hittum við Towns- end í Varnarmálaráðuneytinu. Hann hafði þá verið að sýsla með málefni Íslands.“ gun@frettabladid.is VARÐBERG: MINNIST 60 ÁRA AFMÆLIS VARNARSAMNINGS ÍSLANDS OG BANDARÍKJANNA Fylgst með ferðum kafbáta BJÖRN BJARNASON, FORMAÐUR VARÐBERGS Hann hitti Townsend í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna 1995 og hlakkar til að hlýða á erindi hans í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 56 SÉRA PÉTUR ÞORSTEINSSON hjá Óháða söfnuðinum er fimmtíu og sex ára í dag.„Þó að sumum finnist aðalsyndin sú að vera fyndinn eru hinir fleiri sem kunna að meta léttleika.“ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og amma, Pensri Stefánsson Tunguheiði 14, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánu- daginn 18. apríl 2011. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 9. maí kl 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Einstakar þakkir færum við starfs- fólki Landspítalans fyrir frábæra umönnun og gott viðmót. Guðmundur Skúli Stefánsson Chakkaphan Thakham Kiattisak Thakham Yuna Ír Thakham Wattanee Boodudom MOSAIK Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, sambýliskona og amma, Guðrún Ása Brandsdóttir Reynimel 74, lést á gjörgæsludeild á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 3. maí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 10. maí kl. 15.00. Ásrún Laila Awad Sylvía Kristín Ólafsdóttir Kjartan B. Björgvinsson Ágúst Þór Guðsteinsson og barnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Jónsson Birnustöðum, lést á Landspítalanum 29. apríl sl. Jarðsungið verður frá Skálholtskirkju laugardaginn 7. maí nk. kl. 14.00. Sigrún Kristbjörnsdóttir Valgerður Guðmundsdóttir Þórarinn Óskarsson Guðlaug Guðmundsdóttir Haraldur M. Kristjánsson Kristbjörn Guðmundsson Sigrún Magnúsdóttir Jóna Guðmundsdóttir Gísli Sigurðsson Jón Guðmundur Guðmundsson Kristín Guðmundsdóttir Ágúst Guðmundsson Jóhanna Valgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar og bróðir, Tryggvi Jón Jónatansson Eyrarvegi 18, Akureyri, lést á heimili sínu 2. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jónatan S. Tryggvason Sigurósk R. Aðalsteinsdóttir Ásta F. Reynisdóttir Heimir F. Heimisson Eygló Jóhannesdóttir Freyja P. Jónatansdóttir Ísak Már Friðriksson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Dís Ragnheiður Stehn Atladóttir Álfhólsvegi 18a, Kópavogi, lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi 26. apríl sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Breki Már Lúthersson Susanne Nyholm Lúthersson Hrefna Dís Minshull Simon Minshull Dana Lind Lúthersdóttir Magnús St. Einarsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Pétur Breiðfjörð Sigurjónsson Dvalarheimilinu Fellaskjóli, Grundarfirði, verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 7. maí kl. 14. Guðrún Hansdóttir Kristín Pétursdóttir Kristján Runólfsson Sigurður Pétursson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sjöfn Gestsdóttir áður til heimilis að Sólvallagötu 31, lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk 29. apríl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 6. maí kl. 11.00. Gestur Þorsteinsson Gunnvör Braga Björnsdóttir Svava Þorsteinsdóttir Sigurgeir Guðmundsson Ragnar Þorsteinsson Hólmfríður Kristjánsdóttir Ársæll Þorsteinsson Katla Steinsson barnabörn og barnabarnabörn. Átján nemendum framhaldsskóla býðst að dvelja í Landbúnaðarháskóla Íslands dagana 23.-26. maí. Þessir dagar eru kallaðir Vísindadagar unga fólksins og mark- miðið með þeim er að kynna heim raunvísinda fyrir þátttakendum. Þeir munu skoða gróður, rannsaka jarð- veg og greina sýni. Farið verður í skóga í nágrenni skól- ans og þeir skoðaðir, sýni tekin og rannsökuð. Matur og gisting er nemendum að kostnaðarlausu. Dagskráin liggur fyrir og er komin á vef skólans – www.lbhi.is en áhugasamir þurfa að sækja um pláss fyrir 6. maí. Vísindadagar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.