Fréttablaðið - 05.05.2011, Qupperneq 37
Fyrirtæki þeirra Kristjáns
Sveinssonar og Arinbjarnar
Snorrasonar, Flísaverk, hefur
vaxið hratt frá því að það var
stofnað fyrir um einu og hálfu
ári, en í dag vinna átján manns
hjá fyrirtækinu.
Flísaverk sérhæfir sig í endur-
gerð og uppsetningu baðherbergja
frá a til ö, auk þess að sjá um
alla alhliða uppsetningu og við-
haldsvinnu við flísalagnir, múr-
verk, pípulagnir, rafmagnsvinnu
og smíðar svo eitthvað sé nefnt,
ásamt því að aðstoða við hönnun
og útfærslur. Hjá þeim getur fólk
fengið alla þjónustu hvað þetta
varðar. Það þarf því ekki að elt-
ast við iðnaðarmennina, hvern á
sínu sviði, út um allan bæ. Þeir
hjá Flísaverk sjá um allt saman.
„Þegar kreppan skall á fórum
við að vinna meira og meira
saman í smærri viðhaldsverk-
um sem óx jafnt og þétt og fórum
að taka að okkur sífellt fleiri og
stærri verkefni. Áður en við viss-
um af vorum við komnir með í
kringum okkur teymi af alls konar
fagmönnum og iðnaðarmönnum,
hvort sem eru rafvirkjar, smiðir,
pípulagningamenn, múrarar og
þannig mætti lengi telja,“ segir
Kristján.
„Það er mikil hagræðing í því
að taka höndum saman og vinna
sameiginlega að margbreytileg-
um verkum. Einnig höfum byggt
upp náið samstarf við verslun-
ar- og þjónustuaðila sem tengjast
okkar starfsemi. Má þar nefna
Tengi, Vídd, Íspan, Innréttinga-
þjónustu Bjarnarins, hönnuði og
arkitekta. Hafa viðskiptavinir
okkar og verkkaupar notið góðs af
þessu öllu saman, bæði hvað varð-
ar ódýrari og öruggari þjónustu
og svo hagkvæmari kaup á öllum
tækjum og búnaði sem þarf til.
Þegar við tökum að okkur verk-
efni þá getum við séð um allt. Allt
frá niðurrifi til fullnaðarfrágangs,
ásamt því að útvega öll hreinlæt-
istæki, flísar, gler, sturtuklefa,
nýjar pípulagnir eða allt sem þarf
til. Einnig erum við mikið í endur-
nýjun skólplagna, allri almennri
múrvinnu innanhúss sem utan,
raflögnum, lýsingahönnun, palla-
smíði og allri almennri smíða-
vinnu. Við bjóðum föst tilboð í
heildarpakkann. Viðskiptavinur-
inn getur verið rólegur, við sjáum
um þetta allt saman.“
Flísaverk leggur áherslu á að
vinna hratt og örugglega með
engu hléi milli verkþátta á hvaða
sviði sem er. Fólk verður því fyrir
litlu raski þegar framkvæmdir
eiga sér stað. Menn eiga það til að
mikla verkefnin fyrir sér í öllu því
sem þarf að gera, en það kemur
mönnum á óvart hversu aðgengi-
legt þetta er fyrir samhentan hóp-
inn sem starfar hjá Flísaverk að
leysa verkefnin eins og ekkert sé.
Enda vanir menn þar að störfum
með breiða yfirsýn og þekkingu.
„Þessi uppgangur hjá okkur
hefur komið sumum á óvart og þá
sérstaklega á þessum tímum, en á
móti kemur að það hefur færst í
vöxt að menn einblíni meira á við-
hald og það sem þarf að endurnýja
í húsnæði í stað þess að breyta
um húsnæði eða standa í nýbygg-
ingasmíði. Svo er það bara þann-
ig að fólk á erfiðara með en áður
að selja húsnæðið sitt og ákveð-
ur frekar að endurnýja, breyta og
gera upp. Á síðasta ári gerðum við
upp meira en eitt hundrað baðher-
bergi í húsum sem voru á ýmsum
aldri og í misjöfnu ástandi. Einn-
ig höfum við komið eldra fólki og
hreyfihömluðum til hjálpar og
gert aðstæður þeirra aðgengi-
legri. Breytt því sem þarf að
breyta, til að mynda baðherbergj-
um, gert aðgengi fyrir hjólastóla.
Oft er um að ræða fólk sem situr
fast í húsnæði sínu og getur ekki
selt og breytt í húsnæði sem hent-
ar því. Höfum við getað hjálpað
þessu fólki mikið,“ segir Kristján.
Átakið „Allir vinna“ hefur
komið hjólunum af stað og gert
fólki auðveldara með að sinna
viðhaldi á sínu húsnæði. Það skil-
ar sér baka til kúnnans í beinni
endurgreiðslu virðisaukaskatts
og skattaívilnun,“ segir Kristján.
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2011 3baðherbergi ●
Viðhald baðherbergja frá a til ö
Arinbjörn Snorrason og Kristján Sveinsson, eigendur Flísaverks ehf.