Fréttablaðið - 05.05.2011, Síða 50

Fréttablaðið - 05.05.2011, Síða 50
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR38 38 menning@frettabladid.is ÍSLENSKA ÓPERAN KVEÐUR GAMLA BÍÓ OPIÐ HÚS LAUGARDAGINN 7. MAÍ KL. 13  15 í tilefni flutninga Íslensku óperunnar í tónlistarhúsið Hörpu Gestum velkomið að skoða húsið Kaffi á boðstólum í græna herberginu Búningamátun Leikskrár, plaköt og myndbönd úr sýningum Íslensku óperunnar til sölu á vægu verði Allir velunnarar óperunnar og aðrir áhugasamir hjartanlega velkomnir! 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 10 árum yngri á 10 vikum Þorbjörg Hafsteinsdóttir Konan í búrinu - kilja Jussi Adler Olsen Ég man þig - kilja Yrsa Sigurðardóttir Betri næring - betra líf Kolbrún Björnsdóttir Matur sem yngir og grennir Þorbjörg Hafsteinsdóttir Handbók um íslensku Jóhannes B. Sigtryggsson ritst. METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 27.04.11 - 03.05.11 Engan þarf að öfunda - kilja Barbara Demick Djöflastjarnan - kilja Jo Nesbø Myrkraslóð - kilja Åsa Larsson Morð og möndlulykt Camilla Läckberg Kristín Svava Tómasdóttir stimplaði sig inn sem eitt efnilegasta ljóðskáld lands- ins með frumraun sinni, Blótgælum, árið 2007. Önnur ljóðabók hennar, Skrælingjasýningin, kom út á dögunum. Krass! Búmm! Harmafregn! Stríð á okkar tímum. Skrælingjasýningin, önnur ljóðabók Kristínar Svövu Tómas- dóttur, hefst á stríðsyfirlýsingu. Kannski rökrétt framhald af frumraun hennar sem skoraði á hólm þægindi hversdagslífsins með nístandi háði, munnsöfnuði og gálgahúmor. Tæpum fjórum árum síðar er Kristín Svava við sama heygarðshornið – eða svo segir hún að minnsta kosti sjálf. „Blótgælur voru hrárri en Skrælingjasýningin, sem er meira unnin. Munurinn á bókunum helg- ast kannski af því. Ég held að sá tónn sem birtist í þessum verkum sé mér nokkuð eðlislægur. Ég velti því stundum fyrir því hvort fólk myndi sjá mikið framhald í þess- ari bók frá þeirri fyrri, sjálf geri ég mér ekki endilega grein fyrir því. Það má vera að tónninn sé á köflum myrkari eða kaldrana- legri; á vissum stöðum má sjálf- sagt greina aðra afstöðu til hlutanna en þó enga grundvallar- breytingu að ég held.“ Kristín Svava byrjaði á ljóðun- um fyrir Skrælingjasýninguna fljótlega eftir að Blótgælur kom út. Hún segir misjafnt hversu lengi hún þurfi að sitja við hvert ljóð. „Ég byrja yfirleitt á því að skrifa í belg og biðu og vinn úr textanum síðar. Það veltur síðan á því hversu mótaðar hugsanirnar eru þegar þær spretta fram hvað ég er lengi að ljúka við hvert ljóð.“ Kristínu Svövu var á dögun- um úthlutað ritlaunum. Hún býst því við að biðin í næstu bók verði styttri en á milli Blótgælna og Skrælingjasýningarinnar og ætlar að halda sig við ljóðið. „Ég finn enga hvöt hjá mér til að skrifa „hefðbundinn“ prósa og hef enga ástríðu fyrir skáldsögunni. Mér finnst miklu meira ögrandi að skrifa knappari texta og fyrir mitt leyti býður þetta form upp á fleiri og áhugaverðari möguleika.“ bergsteinn@frettabladid.is Fínpússaðir skrælingjar HEIMILI Handáburður sleipiefni meik kólnandi blotnandi lófi botnslef og stubbar í flösku afklipptar táneglur, blóðrönd, hár í niðurfalli gleymdur klámgluggi í opinni fartölvu rasskinn er lyft svo lítið ber á ástarjátningar skilja eftir óbragð í munninum skepnur nudda sér hver upp við aðra klukkan sex á allt að vera hreint fjarlægið yfirhafnir og skótau úr augsýn máið jafnóðum burt sporin og þið stígið þau á parketinu klukkan sex er heimilið heilagt allt og andartakið frosið og við ekki hér með óhreindin okkar að setja bletti á alla hluti Kristín Svava Tómasdóttir - Skrælingjasýningin KRISTÍN SVAVA TÓMASDÓTTIR „Það má vera að tónninn sé á köflum myrkari eða kaldranalegri; á vissum stöðum má sjálfsagt greina aðra afstöðu til hlutanna en þó enga grundvallarbreytingu að ég held.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir mánaðarlegum hádegistónleikum þetta starfsárið. Þar mun Björn Steinar Sólbergs- son, organisti Hallgrímskirkju, meðal annars flytja Orgelbüchlein eftir Johann Sebastian Bach í heild í tengslum við kirkjuárið. Laugardaginn 7. maí verða tón- leikar í þessari tónleikaröð og bera þeir yfirskriftina „Páskar“. Þá flytur Björn Steinar einnig Andante con moto, op. 16 nr. 1 og Offertoire sur ´O filii´ pour la fete de Paques, op. 49 nr. 2 eftir franska tónskáldið Alexandre Guilmant. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson flyt- ur ávarp og les úr ritningunni. Aðgangur er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum við kirkju- dyr til styrktar Listvinafélagi Hall- grímskirkju. Orgeltónleikaröð LÍFSSÝN UNGLINGA Sýning nemenda í 9. og 10. bekk Varmárskóla og Lágafellsskóla verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar klukkan 16 á föstudag. Verkefnið er samstarf listgreinakennara á unglingastigi í skólunum tveimur. Nemendur í myndmennt, textíl og matreiðslu unnu verk sín út frá framtíðarsýn sinni á líf unglinga í Mosfellsbæ árið 2050.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.