Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.05.2011, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 05.05.2011, Qupperneq 54
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR42 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson TÓNLISTINN Vikuna 28. - 4. maí 2011 LAGALISTINN Vikuna 28. - 4. maí 2011 Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: Sæti Flytjandi Plata 1 Megas og Senuþjófarnir ..... (Hugboð) um vandræði 2 Ýmsir ......Eurovision Song Contest 2011: Düsseldorf 3 Valdimar ............................................................Undraland 4 Adele ................................................................................. 21 5 Skálmöld ...................................................................Baldur 6 Justin Bieber ....................................................My Worlds 7 Bubbi ..................................Sögur af ást, landi og þjóð 8 Eyfi ....................................Ykkur syng ég mína söngva 9 Anna Pálína .................................................................. Bezt 10 Úr leikriti ......................................Ballið á Bessastöðum Sæti Flytjandi Lag 1 Adele ..................................................Someone Like You 2 Jessie J ..................................................................Price Tag 3 Valdimar ..............................................................Yfirgefinn 4 Bubbi Morthens................................................... Ísabella 5 P!nk ............................................................. F**kin’ Perfect 6 Vinir Sjonna.............................................. Coming Home 7 Megas & Senuþjófarnir ...Lengi skal manninn reyna 8 Katy Perry .......................................................................E.T. 9 Mugison ....................................................................Haglél 10 Magni .....................................................Ég trúi á betra líf Franska hljómsveitin Nouvelle Vague hefur notið nokkurra vinsælda hér á landi og hélt meðal annars vel sótta tónleika í Hafnarhúsinu í apríl á því herrans ári 2007. Sveitin, sem er verkefni þeirra Marcs Collin og Oliviers Libaux, vakti fyrst athygli fyrir plötu samnefnda sveitinni sem kom út árið 2004 og innihélt gamla pönk og nýbylgju- smelli í ljúfum bozzanova útsetningum. Þar á meðal voru lög eftir The Clash, Undertones, XTC og Joy Division. Platan náði nokkrum vinsæld- um langt út fyrir heimalandið, sem gerði það kannski að verkum að plata númer tvö, Bande à part sem kom út tveimur árum seinna, var í sama stíl. Á þriðju plötunni 3, sem kom 2009, var sama formúlan enn notuð, en þá var komin greinileg þreyta í hana og augsýnilega kominn tími á að hrista aðeins upp í hlutunum. Nýlega heyrði ég svo fjórðu plötu sveitarinnar, Couleur sur Paris, en þar tekur sveitin annan pól í hæðina. Í fyrsta lagi eru öll lögin á henni eftir frönskumælandi listamenn frá átt- unda og níunda áratugnum og í öðru lagi eru útsetningarnar orðnar fjölbreyttari. Þeir Marc og Olivier hafa alltaf fengið ungar og upp- rennandi franskar söngkonur til að syngja lögin á plötunum, en á Couleurs sur Paris eru söngvararnir jafnmargir og lögin (18) og hluti þeirra er sunginn af karlsöngvurum. Á meðal söngvara á plötunni eru Vanessa Paradis, Camille, Helena Nougerra, Yelle og Coralie Clément. Lögin eru hvert öðru skemmtilegri, enda voru margar flottar franskar hljómsveitir starfandi á pönk- og nýbylgjuárunum. Þarna eru meðal annars lög eftir Oberkampf, Gamine, Lili Drop, Ellie & Jacno, Indochine, Rita Mitsouko, Noir Désir, Etienne Daho, Les Dogs, Taxi Girl, Lio og Mano Negra. Og svo hið bráðsmellna Putain, putain eftir Belgann Arno sem er ágætt innlegg í Evrópuumræðuna … Couleurs sur Paris kom út í nóvember á síðasta ári og fékk ágætar viðtökur. Horfa sér nær NOUVELLE VAGUE Nouvelle Vague tekur nýja stefnu á fjórðu plötunni sinni, Couleurs sur Paris. > PLATA VIKUNNAR Karl Hallgrímsson - Héðan í frá ★★★ „Blús- og þjóðlagaskotið íslenskt popp frá hæfileika- ríkum nýliða.“ - TJ Enska hljómsveitin Radiohead ætlar að flytja nýjustu plötu sína, The King of Limbs, í heild sinni fyrir breska ríkissjónvarpið, BBC. Tónleikarnir verða hluti af Live From The Basement tónleikaröð BBC og verða þeir sýndir 1. júlí. Upptökustjóri tónleikanna verður Nigel Godrich sem stjórnaði einnig upptökum á The King of Limbs. Þetta verður í fyrsta sinn sem Radiohead spilar mörg laganna af plötunni á tónleikum og væntanlega í eina sinn sem sveitin spilar plötuna í í heild sinni í réttri röð. The King of Limbs kom út í föstu formi 18. febrúar og er hún í sjöunda sæti á breska breiðskífu- listanum. Platan, sem er sú áttunda í röðinni frá Radiohead, hefur fengið misjafnar við- tökur. Fæstir telja hana á meðal bestu verka sveitarinnar. Tónleikar fyrir BBC THOM YORKE Radiohead spilar plötuna The King of Limbs í heild sinni fyrir BBC. Gríngengið Lonely Island getur ekki birt myndband á Youtube án þess að millj- ónir manna horfi á það. Ný plata er á leiðinni frá geng- inu og á meðal gesta eru Justin Timberlake og sjálf- ur Michael Bolton. Gríngengið Lonely Island sendir frá sér aðra breiðskífu sína seinna í maí. Platan heitir Turtleneck and Chain og fylgir eftir Incredibad sem kom út árið 2009. Lonely Island gengið saman- stendur af æskuvinunum Akiva Schaffer, Jorma Taccone og Andy Samberg, en þeir byrjuðu að semja grínlög og framleiða mynd- bönd í grunnskóla í Kaliforníu. Þeir reyndu að koma sér á fram- færi á ýmsan hátt þangað til Lorne Michaels, skapari skemmtiþátt- anna Saturday Night Live, tók eftir því sem þeir voru að gera og bauð þeim starf í þætti sínum. Saman sömdu þeir svo grínlagið Lazy Sunday, myndbandið var sýnt í Saturday Night Live og sló sam- stundis í gegn á netinu. Eftir það fylgdu gríðarlega vinsæl mynd- bönd á borð við Dick in a Box, sem Justin Timberlake flutti ásamt Andy Samberg, Jizz in My Pants og Like a Boss, sem skartaði leik- aranum Seth Rogen. Justin Timberlake hefur verið duglegur við að starfa með Lonely Island genginu. Hann kemur fram í laginu Motherlover, sem er eflaust elsta lagið á nýju plötunni. Myndbandið við lagið sló rækilega í gegn á netinu, eins og reyndar myndbönd hópsins. Snoop Dogg, Akon, Rihanna, Nicki Minaj, John Waters, Beck og enginn annar en Michael Bolton eru á meðal gesta á nýju plötunni. Lög Lonely Island eru ekki aðeins fyndin heldur afar gríp- andi tónlistarlega, en þar hafa þeir mikið á forskot á kollega sína í grínbransanum. Talað er um að það geti reynst erfitt fyrir Lonely Island gengið að toppa fyrri plöt- una, en Chris Coplan, blaðamaður vefritsins Consequence of Sound, segir ný lög á borð við hið magn- aða I Just Had Sex benda til þess að það eigi helling inni. atlifannar@frettabladid.is Æskuvinirnir frá Kaliforníu FYNDNIR Lonely Island er heitasta gríngengi Bandaríkjanna í dag og hefur slegið í gegn með bráðfyndnum lögum sínum. > Í SPILARANUM Bill Callahan - Apocalypse Jamie Woon - Mirrorwriting Fleet Foxes - Helplessness Blues Wild Beasts - Smother Beastie Boys - Hot Sauce Committee: Part Two BILL CALLAHAN FLEET FOXES                                  ! "#             $%  &' ( )  *+'! , &!  -.  /  #   0 '1 '  2  23*    4     5 6 #"   
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.