Fréttablaðið - 05.05.2011, Qupperneq 62
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR50
sport@frettabladid.is
TEITUR ÖRLYGSSON hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna um tvö ár og verður því áfram við stjórnvölinn
í Garðabænum. Teitur hefur þjálfað Stjörnuna síðan í árslok 2008 og hefur síðan þá komið liðinu í hóp bestu liða
deildarinnar. Stjarnan fór í ár alla leið í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn, þar sem liðið tapaði 1-3 á móti KR.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Forsalan hafin – frumsýnt 27. apríl
HANDBOLTI Einbeittir, grimmir og
sterkir FH-ingar lögðu Akureyri,
28-24, í fjórða leik liðanna um
Íslandsmeistaratitilinn. FH vann
rimmuna 3-1 og er vel að titlinum
komið.
Það var algjörlega frábær stemn-
ing í Kaplakrika í gær. Um 3.000
manns troðfylltu kofann og mynd-
uðu stórkostlega stemningu allan
leikinn. Áhorfendamet var sett í
Krikanum. Svo mikill var hávaðinn
í húsinu að vart var hægt að tala
saman og húsið hreinlega nötraði
út af látunum.
FH-ingar mættu mun betur
stemmdir til leiksins. Voru miklu
grimmari í öllum sínum aðgerðum
á meðan norðanmenn voru hikandi
og stressaðir. Ef Sveinbjörn Péturs-
son hefði ekki átt í markinu hefði
FH líklega gengið frá leiknum í
fyrri hálfleik. Sveinbjörn varði
eins og berserkur og það skot í
öllum regnbogans litum.
Markvarsla hans varð þess
valdandi að Akureyri hékk inn í
leiknum. Pálmar var einnig sterk-
ur hinum megin og í sókn FH fór
Ólafur Guðmundsson mikinn. Eftir
þrjú misheppnuð skot kviknaði á
Guðmundi Hólmari og hann hélt
sóknar leik Akureyrar á floti með
fimm mörkum. Aðeins tveimur
mörkum munaði á liðunum í hálf-
leik, 13-11.
FH var með yfirhöndina áfram
í seinni hálfleik en ólseigir Akur-
eyringar neituðu að gefast upp og
komu hvað eftir annað til baka
leiddir af Heimi Erni Árnasyni.
Hinum megin var Daníel Andrés-
son kominn í markið og hann fór
mikinn í síðari hálfleik. Þegar á
reyndi voru FH-ingar beittari og
hreinlega betri. Akureyringar
virkuðu þreyttir og vantaði kraft
til þess að klára leikinn. Baráttan
og löngunin dugði ekki til. Akur-
eyri hreinlega tapaði fyrir betra
liði að þessu sinni.
Það hefur verið mikill stígandi
í leik FH-inga alla leiktíðina og
liðinu tókst að raða saman púslu-
bitunum og toppa þegar mest á
reyndi. Liðsheildin var sterk hjá
liðinu. Pálmar hefur verið fínn í
markinu og Daníel síðan stigið
upp síðustu vikur með miklum
látum. Ólafur Guðmundsson og
Ásbjörn hafa leitt sóknarleikinn
og Sigur geir Árni bundið saman
vörnina af myndarskap. Logi
Geirsson og Baldvin Þorsteinsson
hafa svo fært liðinu reynslu, kraft
og trú. Þeir Kristján og Einar
Andri bjuggu til flott lið í vetur
sem stóð undir þeim væntingum
sem voru gerðar til þess og lönd-
uðu þeim stóra.
„Þegar ég ákvað að koma aftur
í boltann vissi ég að þetta væri
möguleiki. Ég vissi líka að það
yrði mikil vinna að búa til sjálfs-
traust,“ sagði sigurreifur þjálf-
ari FH, Kristján Arason, en hann
þjálfaði einnig FH-liðið er það
vann síðast fyrir nítján árum.
„Þetta er búin að vera þrauta-
ganga. Flestir þessara stráka
eru rétt í kringum tvítugt en við
höfum verið á stöðugri uppleið
síðan í nóvember. Strákarnir voru
einbeittir í allan vetur að fara alla
leið og þeir eiga þetta svo sannar-
lega skilið. Ég á vart til orð að lýsa
því hversu stoltur ég er af þeim,“
sagði Kristján og brosti allan
hringinn. henry@frettabladid.is
Eyðimerkurgöngu FH-inga lokið
Nítján ára bið FH-inga eftir Íslandsmeistaratitli í handbolta lauk í gær eftir sigur á Akureyri. Kristján Ara-
son var þjálfari FH-liðsins sem vann árið 1992. Hann sneri aftur í Krikann í vetur og uppskeran sú sama.
LANGÞRÁÐ STUND Sigurgeir Árni Ægisson, fyrirliði FH, lyftir hér bikarnum góða á loft en félagið varð í gær Íslandsmeistari á ný
eftir nítján ára bið. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
FH - Akureyri 28-24 (13-11)
Mörk FH (skot): Ólafur Guðmundsson 8 (16), Ásbjörn Friðriksson 7/2 (11/4), Atli Rúnar
Steinþórsson 4 (4), Baldvin Þorsteinsson 4 (6), Ólafur Gústafsson 3 (6), Örn Ingi Bjarkason
1 (7), Halldór Guðjónsson 1 (3).
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 14 (29/1) 48%, Pálmar Pétursson 7 (16/1) 43%.
Hraðaupphlaup: 6 (Baldvin 3, Ólafur, Atli, Ásbjörn). Fiskuð víti: 4 (Baldvin 3, Atli).
Mörk Ak. (skot): Guðmundur Hólmar Helgason 8 (14), Heimir Örn Árnason 5 (9), Bjarni
Fritzson 4 (9), Oddur Gretarsson 4/2 (9/2), Hörður Fannar Sigþórsson 1 (2), Daníel Einars-
son 1 (2), Hreinn Hauksson 1 (1). Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 20/1 (48/8) 42%.
Hraðaupphlaup: 3 (Hreinn, Guðmundur, Oddur). Fiskuð víti: 2 (Halldór Logi, Bjarni).
Utan vallar: FH 8 mínútur - Akureyri10 mínútur
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson, mjög góðir
HANDBOLTI „Þetta er mjög sárt.
Sérstaklega þar sem við vorum
alltaf inni í leiknum og mér
fannst við síst vera lakara liðið,“
sagði Atli Hilmarsson, þjálfari
Akureyrar, og vonbrigðin leyndu
sér ekki á andliti hans.
Atli vann deildarmeistara-
titilinn með Akureyri í vetur,
fór með liðið í bikarúrslit og
síðan í úrslit á Íslandsmótinu.
Deildarmeistara titillinn var
fyrsti titill Akureyringa.
„Ég óska FH-ingum til ham-
ingju. Þeir eru með flott lið og
vel að þessu komnir. Ég er samt
hrikalega stoltur af mínum
strákum og því sem við gerðum
í vetur. Ég á eftir að vera stoltur
af því lengi. Því miður dugði það
ekki alveg til en það munaði litlu.
Mér fannst þessi rimma hafa
getað farið á hvorn veginn sem
var,“ sagði Atli. - hbg
Atli Hilmarsson:
Ég er stoltur af
strákunum
TEKIÐ Á ÞVÍ Guðmundur Hólmar Helga-
son, leikmaður Akureyrar, í baráttunni í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
HANDBOLTI Stórskyttan unga í liði
FH, Ólafur Guðmundsson, fór mik-
inn í liði FH í gær og ljóst var að
hann vildi klára dæmið á heima-
velli. Ólafur var að leika sinn síð-
asta leik fyrir FH í bili en hann
spilaði sem lánsmaður frá danska
liðinu AGK, sem keypti hann síð-
asta sumar.
„Það kom ekki til greina að fara
aftur til Akureyrar. Við vildum
vinna þetta í Krikanum enda helm-
ingi sætara þannig. Þetta kvöld
var fullkomið. Ég hefði ekki getað
ímyndað mér þetta betra,“ sagði
Ólafur og brosti breitt.
„Baráttan og liðsheildin var
meiri hjá okkur. Við vildum þetta
meira en Akureyringarnir. Við
lögðum ansi mikið á okkur til þess
að klára dæmið. Löngunin var
gríðarleg hjá okkur og við upp-
skárum eftir því. Ég er búinn að
skila öllu sem ég get til félagsins
og það er frábært að skilja á þenn-
an hátt.“
Logi Geirsson kom heim fyrir
tímabilið og átti að vera lykillinn
að meistaraliði FH. Þrálát meiðsli
hafa haldið Loga mikið utan vallar
en hann hefur gefið það sem hann
getur til liðsins og honum fannst
ljúft að uppskera í gær.
„Ég sagði fyrir tímabilið að
við yrðum Íslandsmeistarar. Ég
stóð við það en þetta var erfitt.
Ég skipti mér inn á í dag því mér
fannst ég geta hjálpað liðinu. Það
gekk og þessir strákar eru frábær-
ir. Þetta er mikill gleðidagur.“ - hbg
Ólafur Guðmundsson og Logi Geirsson:
Þetta var fullkomið
ÞJÁLFARI Á FLUGI Kristján Arason gerði
FH að meisturum árið 1992 og aftur nú,
nítján árum síðar. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG