Fréttablaðið - 05.05.2011, Síða 64
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR52
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
C
IN
5
48
11
0
5.
20
11
OPIð TIL MIðNÆTTIS Í VERSLUN
OKKAR Í KRINGLUNNI Í DAG.
TILBOÐIÐ GILDIR Í ÖLLUM
VERSLUNUM CINTAMANI 5. MAÍ.
MIÐNÆTURSPRENGJA
Í KRINGLUNNI
30% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM KÓNGABLÁUM
CINTAMANI KLÆðNAðI
CINTAMANI AUSTURHRAUNI 3
210 GARÐABÆ, S. 533 3805
CINTAMANI BANKASTRÆTI 7
101 REYKJAVÍK, S. 533 3390
CINTAMANI KRINGLUNNI
103 REYKJAVÍK, S. 533 3003
FÓTBOLTI Stjarnan fékk í gær
liðsstyrk fyrir átökin sem eru
fram undan í Pepsi-deild karla,
en félagið gerði lánssamning
við danska leikmanninn Jesper
Jen sen sem er á mála hjá Vejle.
Hann er 22 ára miðvallarleik-
maður.
Fyrir hjá Stjörnunni er annar
lánsmaður frá Vejle – varnar-
maðurinn Nikolaj Hagelskjær.
Almar Guðmundsson, formaður
knattspyrnudeildar Stjörnunnar,
sagði þá verða hjá liðinu til loka
júní.
„Við þurftum að leysa ákveð-
in meiðslavandræði í liðinu þar
sem Baldvin (Sturluson) meidd-
ist í leiknum gegn Keflavík.
Atli Jóhannsson og Ólafur Karl
Finsen eru einnig meiddir og þá
er ekki von á Ellerti Hreinssyni
fyrr en í júní þar sem hann er í
námi í Bandaríkjunum,“ sagði
Almar. „Við ákváðum því að fá
annan lánsmann.“
Hann neitaði því ekki að félagið
gæti fengið fleiri leikmenn á
næstunni. „Við vitum af ein-
hverjum nöfnum en það er ekkert
ákveðið í þeim efnum.“ - esá
Stjarnan fékk lánsmann:
Nýr Dani til að
stoppa í götin
ÞJÁLFARINN Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Stjörnunnar, hefur fengið liðsstyrk frá
Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Kiel mátti í gær sætta
sig við sex marka tap gegn
Magde burg á útivelli í þýsku
úrvalsdeildinni, 30-24. Alfreð
Gíslason er þjálfari Kiel en hann
var áður þjálfari Magdeburg til
margra ára. Aron Pálmarsson
skoraði þrjú mörk í leiknum í gær.
Kiel varð Þýskalands- og Evr-
ópumeistari í fyrra en er nú fallið
úr leik í Meistaradeildinni og á
varla möguleika á að ná topp-
liði Hamburg að stigum í þýsku
úrvalsdeildinni.
Liðið er í öðru sæti deildarinn-
ar með 49 stig en Rhein-Neckar
Löwen og Füchse Berlin, lið
þeirra Guðmundar Guðmunds-
sonar og Dags Sigurðssonar, eru
tveimur stigum á eftir og eiga
bæði leik til góða.
Magdeburg var ávallt skref-
inu á undan í leiknum en staðan
í hálfleik var 15-12. Heimamenn
skoruðu svo fyrstu þrjú mörk-
in í seinni hálfleik og voru með
örugga forystu allt til leiksloka.
Kiel hefur ekki langan tíma
til að jafna sig á tapinu þar sem
úrslitahelgin í þýsku bikarkeppn-
inni er fram undan. Þar mætir
Kiel liði Göppingen í undanúr-
slitum á laugardaginn en úrslita-
leikurinn fer fram degi síðar. - esá
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel:
Tap á gamla
heimavellinum
ALFREÐ Tapaði fyrir sínu gamla liði í
gær. NORDICPHOTOS/BONGARTS
FÓTBOLTI Manchester United átti
ekki í vandræðum með þýska liðið
Schalke í síðari viðureign þeirra
í undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu í gær. Liðið vann 4-1 sigur
á heimavelli og samanlagt 6-1.
Sir Alex Ferguson gat leyft
sér að gera átta breytingar á
byrjunarliði sínu frá síðasta
leik. Skipti litlu þótt „varaliðið“
léki í gær – yfirburðirnir voru
algerir. Antonio Valencia og Dar-
ron Gibson – sem átti stórleik –
skoruðu mörk United í fyrri hálf-
leik en Anderson skoraði tvisvar í
þeim síðari. Jordao klóraði í bakk-
ann fyrir Schalke, sem átti aldrei
möguleika á Old Trafford.
Ferguson viðurkenndi eftir leik
að hafa velt fyrir sér hvort hann
væri að gera mistök með liðsval-
inu. „Ég er svo stoltur af strák-
unum. Þetta var undanúrslitaleik-
ur og ég var ekki viss hvort þetta
væri rétt ákvörðun hjá mér í svo
mikilvægum leik. En ég er glaður
að þetta fór svona vel.“
Manchester hefur þrisvar orðið
Evrópumeistari, fyrst árið 1968
eftir sigur á Eusebio og félögum í
Benfica í úrslitaleik sem fór fram
á Wembley-leikvanginum í Lund-
únum – þar sem úrslitaleikurinn
fer einmitt fram í ár.
Þetta var tíu árum eftir flug-
slysið skelfilega í München þar
sem átta leikmenn liðsins létust.
Matt Busby, stjóri liðsins, lifði
slysið af, sem og Bobby Charlton,
ein skærasta stjarna félagsins frá
upphafi. Þeir fóru fyrir liði United
sem vann Evróputitilinn árið 1968,
fyrst enskra liða. Charlton skor-
aði tvívegis í leiknum, sem United
vann 4-1.
Nú verður andstæðingurinn
Barcelona, sem vann allt sem
hægt var að vinna fyrir tveimur
árum og vill endurheimta titilinn
nú. Liðinu hefur verið lýst sem
einu því allra besta í knattspyrnu-
sögunni og ljóst er að leikurinn
hefur allt til að bera til að fara í
sögubækurnar.
Ferguson er nú að stýra United
í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
í þriðja sinn á fjórum árum. Hann
varð meistari með liðinu árið 1999
og svo aftur árið 2008. Liðið tap-
aði úrslitaleiknum árið 2009 fyrir
Barcelona.
„Þetta er frábært fyrir félagið,“
sagði Ferguson. „Ég hef margoft
sagt að við hefðum átt að standa
okkur betur í Meistaradeildinni í
gegnum árin og ég tel að þetta lið
geti unnið titilinn.“
eirikur@frettabladid.is
United á sögulegum slóðum
Fyrir 43 árum vann Manchester United sinn fyrsta Evróputitil á Wembley-leik-
vanginum, tíu árum eftir flugslysið í München. Nú fer United aftur á sama stað
og mætir einhverju besta liði knattspyrnusögunnar, Barcelona, í úrslitaleiknum.
FAGNAR MEÐ FYRIRLIÐANUM Darron Gibson skoraði eitt fjögurra marka Manchester
United í gær og fagnar því hér með fyrirliðanum John O‘Shea. NORDICPHOTOS/GETTY