Fréttablaðið - 21.05.2011, Síða 2
21. maí 2011 LAUGARDAGUR2
Dagbjartur, eru drukknir
ökumenn staurblindir?
„Ég er hræddur um að þeir sjái
stundum tvöfalt eða þrefalt.“
Gatnadeild borgarinnar á í erfiðleikum
með að fá upplýsingar um nöfn og trygg-
ingafélög þeirra sem aka á ljósastaura og
umferðarljós ef ökumenn eru drukknir
eða dópaðir. Dagbjartur Sigurbrands-
son hefur í yfir fjóra áratugi unnið hjá
gatnadeild borgarinnar.
DÝRALÍF Kuldatíðin undanfar-
ið hefur sennilega haft nokkur
áhrif á dýralíf um land allt, ekki
síst á þeim stöðum þar sem snjór
hefur fallið. Verði vorhretið lang-
varandi gæti það raskað verulega
varpi ýmissa fuglategunda og
höggvið skörð í skordýrastofna.
„Þetta hefur í sjálfu sér áhrif á
allt líf. Ef gróð-
urinn er byrj-
aður að bruma,
þ á h e f u r
svona kulda-
kast áhrif og
það sama gild-
ir um fuglana
og skordýr-
in,“ segir Þóra
Hrafnsdóttir
líffræðingur
sem starfar hjá
Náttúrufræði-
stofnun Kópa-
vogs.
Spurð um
áhrif á geitung-
astofninn sem
ma rgi r ót t-
ast segir Þóra:
„Maður varð
var við stöku
geitunga áður
en það kólnaði en þeir hafa lítið
sést eftir að kuldakastið byrjaði
þannig að kuldinn kemur mjög
illa við þá. Sums staðar á landinu
er svo snjór á jörðu sem getur
haft nokkur áhrif á þær tegundir
sem gera sér bú í holum á jörðinni
eins og til dæmis holugeitungar.“
Guðmundur A. Guðmundsson,
dýrafræðingur hjá Náttúrufræði-
stofnun, telur að sama skapi lík-
legt að kuldakastið tefji varp.
„Þetta getur haft slæm áhrif,
sérstaklega fyrir þær tegundir
þar sem ungar hafa þegar komið
úr eggjum,“ segir Guðmundur og
bætir við: „Þessa dagana er þröst-
ur að klekja út ungum, auðnutitt-
lingur líka sem og endur. Hretið
nú kemur því illa við þessa fugla.“
Þá segir Guðmundur að full-
orðnir fuglar þoli kuldatíð nokk-
uð vel en litlir ungar megi hins
vegar ekki við mikilli truflun
á þessum árstíma. Ungar þoli
hvorki kulda né raunar mikinn
ágang manna. Kuldi hafi þó lítil
áhrif á egg.
Veðurspár benda til áframhald-
andi kuldatíðar næstu daga þótt
það versta sé sennilega yfirstað-
ið. magnusl@frettabladid.is
Smáfuglar og skordýr
finna fyrir vorhretinu
Vorhretið sem landsmenn hafa fundið fyrir undanfarið er líklegt til að hafa
nokkur áhrif á dýralíf. Geitungum mun sennilega fækka nokkuð haldi kulda-
kastið áfram auk þess sem það kemur illa við endur, þresti og auðnutittlinga.
AUÐNUTITTLINGAR Fjölmargar fuglategundir hafa þegar hafið varp. Vorhretið er
líklegast til að koma verst við þær tegundir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GUÐMUNDUR A.
GUÐMUNDSSON
ÞÓRA
HRAFNSDÓTTIR
ÚTFÖR Þóru Elínar Þorvaldsdótt-
ur sem lést fimmtudaginn 12.
maí síðastliðinn verður gerð frá
Sauðárkrókskirkju á mánudag-
inn klukkan fjórtán, að því er
segir á Feykir.is.
Barnsfaðir Þóru Elínar er
grunaður um að hafa banað
henni og situr í gæsluvarðhaldi.
Hann ók líki Þóru á bráðamót-
töku Landspítalans en hefur
ekki játað að hafa orðið henni að
bana og ber við minnisleysi.
Í tilkynningu frá fjölskyldu
Þóru Elínar kemur fram að
blóm og kransar séu afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast henn-
ar er bent á Framtíðarreikning
Jóhanns Einars, tveggja ára
sonar Þóru Elínar, í Sparisjóði
Skagafjarðar. Númer reikn-
ingsins er 1125-18-560510 kt.
051008-3080. Þóra var tvítug
þegar hún lést.
Þóra jarðsett
á mánudaginn
SVÍÞJÓÐ Einn karlmaður og 23
konur voru í gær ákærð í Falun
í Svíþjóð vegna barnakláms.
Karlmaðurinn sendi konunum,
sem eru á aldrinum 37 til 70 ára,
myndir og myndbönd sem sýndu
meðal annars börn beitt grófu
kynferðislegu ofbeldi.
Lögreglan komst á slóðir
mannsins í fyrrasumar eftir vís-
bendingu. Sumar kvennanna eiga
yfir höfði sér allt að tveggja ára
fangelsisdóm en maðurinn allt að
sex ára fangelsi. - ibs
Barnaklám í Svíþjóð:
Yfir tuttugu
konur ákærðar
DÓMSMÁL Stjórn Samtaka eig-
enda sjávarjarða krafðist í gær
lögbanns á lagafrumvarp Jóns
Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra
um stjórn fiskveiða.
„Frumvarp þetta gengur alveg
gegn og tekur ekkert tillit til
stjórnarskrárvarinna eignarrétt-
inda sjávarjarða sem fyrirmæli
eru um í lögum,“ segir í lögbanns-
beiðninni sem lögð var fram hjá
sýslumanninum í Reykjavík sem
nú skoðar beiðnina. Vísað er til
álits Mannréttindadómstóls Evr-
ópu um eignarrétt sjávarjarða.
„Marg ítrekað hefur íslenskum
stjórnvöldum verið bent á þennan
grundvallareignarrétt sjávarjarða
en hann hefur samt algerlega
verið hundsaður síðastliðina tæpa
þrjá áratugi.“ - gar
Eigendur sjávarjarða ósáttir:
Vilja lögbann á
kvótafrumvarp
JÓN BJARNASON Sjávarútvegsráðherra
hefur fengið á sig lögbannsbeiðni vegna
frumvarps um stjórn fiskveiða.
BANDARÍKIN, AP Benjamin Netan-
jahú segir að leiðtogar Palestínu-
manna, og á þá við leiðtoga Fatah
á Vesturbakkanum, verði að velja
á milli þess að semja um frið við
Ísrael eða sættast við Hamas.
Þetta sagði hann eftir að hafa
rætt góða stund við Barack
Obama Bandaríkjaforseta í Hvíta
húsinu. Daginn áður hafði Obama
lýst yfir stuðningi við landa-
mærakröfur Palestínumanna,
en Netanjahú vísar þeim kröfum
algerlega á bug.
Sjaldgæft er að bandaríska og
ísraelska ráðamenn greini jafn
mikið á um málefni Ísraels og
Palestínumanna, en Obama sagði
ágreining þeirra vera ágreining
milli vina. Þeir komu brosandi út
af fundinum og sögðust hafa rætt
málin í bróðerni. - gb
Obama og Netanjahú funda:
Greinir á um
landamærin
SKIPULAGSMÁL Söfnuður Moskvu-
patríarkats rússnesku rétttrúnað-
arkirkjunnar hefur nú sýnt frum-
tillögu sína að kirkjubyggingu og
safnaðarheimili ofan við Mýrar-
götu í Reykjavík. Yfirbragðið er
nokkuð frábrugðið öðrum guðs-
húsum hérlendis og víst að bygg-
ingin mun setja mikinn svip á
Vesturbæinn.
Skóflustunga var tekin að kirkj-
unni 12. maí síðastliðinn en skipu-
lags- og byggingayfirvöld í Reykja-
vík eiga enn eftir að veita blessun
sína yfir hönnun mannvirkisins
sem þarf að uppfylla hefðbundna
skilmála sem gilda í borgarland-
inu. - gar
Moskvu-patríarkatið tilbúið með útlitsteikningar að kirkju sinni á Mýrargötu:
Framandi kirkjustíll í Vesturbænum
RÉTTTRÚNAÐARKIRKJAN Á MÝRARGÖTU
Einkenni kirkna rússnesku rétttrúnaðar-
kirkjunnar eru meðar annars hinir fagur-
löguðu kúplar ofan á turnum þeirra. MYND/SÖFNUÐUR MOSKVU-PATRÍARKATSINS
LÖGREGLUMÁL Eldur kom upp í
verslun KS á Hofsósi í gær. Versl-
unin er sú eina á staðnum.
Haft er eftir Vernharði Guðna-
syni slökkviliðsstjóra á Feyki.is að
eldurinn hafi líklega komið upp í
frystiskáp og breiðst um búðina.
Eldurinn hafi svo að líkindum
koðnað niður af súrefnisskorti.
Starfsmaður sem kom til vinnu
í gærmorgun varð var við reyk
og mikla brunalykt. Alls innvols
verslunarinnar er ónýtt og því
þurfa íbúar að gera aðrar ráðstaf-
anir í matarinnkaupum í bili. - þeb
Húsið er ónýtt að innan:
Eldur í einu
búð Hofsóss
STJÓRNMÁL Á flokksráðsfundi
Vinstri grænna verður í dag
gengið til atkvæða, meðal annars
um ályktun þar sem lagt er til að
flokkurinn harmi úrsögn þeirra
Lilju Mósesdóttur, Atla Gíslasonar
og Ásmundar Einars Daðasonar úr
þingflokknum.
Þau eru með þessu sögð hafa
gefið flokkssystkinum sínum langt
nef og þverbrotið gegn lýðræðis-
legum vilja og ákvörðunum stofn-
ana flokksins. Þau tóku öll þátt í
flokksráðsfundinum í gær.
Einnig liggur fyrir fundinum
ályktun gegn hernaði Atlantshafs-
bandalagsins í Líbíu. Þá verður
borin undir fundinn stuðnings-
yfirlýsing við ríkisstjórnina.
Katrín Jakobsdóttir, formað-
ur flokksráðsins, setti fundinn
á Grand Hóteli síðdegis í gær en
síðan ræddi Steingrímur J. Sig-
fússon stjórnmálaástandið. Að því
búnu hófust umræður í fjórum
starfshópum og um kvöldið voru
ályktanir kynntar.
Í dag verða ályktanirnar síðan
afgreiddar og lýkur fundinum á
hádegi. - gb
Ályktun um úrsögn úr þingflokki borin undir flokksráðsfund Vinstri grænna í dag:
Sögð hafa misnotað traust
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Ræddi
stjórnmálaástandið við félaga sína í
flokksráði Vinstri grænna í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
lengra
geymsl
uþol
nú með
tappa
Ljúffengar uppskriftir með matreiðslurjóma
er að finna á www.gottimatinn.is