Fréttablaðið - 21.05.2011, Síða 30
21. maí 2011 LAUGARDAGUR30
en ekki hjá konum sem hreyfðu
sig þrátt fyrir að þær væru undir
sams konar álagi. Svo virðist sem
streita bæli lága en nauðsynlega
virkni telomerasa-ensímsins sem
leiðir til þess að litningaendum er
ekki viðhaldið eðlilega.“
Má þá segja að Blackburn hafi
tekist að sanna fullyrðingar um
skaðsemi streitu og ávinning
hreyfingar og omega-3 inntöku?
„Já en við verðum þó að fara var-
lega í að heimfæra niðurstöðurn-
ar á einstaklinga,“ segir Sigríður
Klara. „Hér er um að ræða meðal-
töl en það eru ótal margir erfða-
og umhverfisþættir sem spila inn
í og breytileiki á milli einstaklinga
er mikill.“
Rannsóknir Sigríðar Klöru sem
hún vann undir leiðsögn Jórunn-
ar Eyfjörð á rannsóknarstofu í
krabbameinsfræðum leiddi í ljós
að litningaóstöðugleiki í ættlæg-
um brjóstaæxlum sem bera stökk-
breytingu í brjóstakrabbameins-
geninu BRCA2 tengist mjög oft
þessum litningaendum. „Þarna
virðist þó ekki endilega um að
ræða styttingu heldur samruna
og vandamál við pökkun litninga-
enda.“ Sigríður Klara segir þetta
undirstrika breytileikann á milli
einstaklinga. „Við getum þó verið
nokkuð viss um það að með því að
draga úr streitu, hreyfa okkur og
taka inn omega-3 er hægt að fyrir-
byggja ýmsa sjúkdóma og jafnvel
lengja lífið.“ Fyrirlestur Black-
burn hefst klukkan 14 í dag.
Á
stralsk-bandaríski
Nóbelsverðlauna-
hafinn Elizabeth
Blackburn gerði
uppgötvun á átt-
unda áratugnum
sem átti eftir að breyta skiln-
ingi manna á langlífi, myndun
krabbameina og annarra öldrun-
arsjúkdóma. Fyrir vikið hlaut hún
Nóbelsverðlaunin í læknisfræði
haustið 2009 ásamt samstarfs-
mönnum sínum Carol Greider og
Jack Szostak. Hún er nú stödd hér
á landi og flytur erindi í hátíðarsal
Háskóla Íslands í dag.
Nóbelsverðlaunin hlaut Eliza-
beth fyrir rannsóknir á svokölluð-
um telomera-röðum á litningaend-
um og á ensíminu telomerasa sem
viðheldur þeim. Telomera-raðirn-
ar styttast við hverja frumuskipt-
ingu sem leiðir að endingu til hæg-
ari frumuskiptinga og öldrunar.
Styttingin getur valdið því að litn-
ingarnir skemmast og að einstak-
lingur fái í framhaldinu krabba-
mein. Auk þess hafa Blackburn
og félagar sýnt fram á að stytt-
ing litningaenda tengist aukinni
hættu á hjarta- og æðasjúkdómum
og nú síðast á áunninni sykursýki,
en allt eru þetta öldrunartengdir
sjúkdómar.
Fyrstu rannsóknir Blackburn
og félaga voru gerðar á frumstæð-
um einfrumungi en fljótlega var
farið að yfirfæra niðurstöðurnar
á manninn og tengja við krabba-
mein. Nú er stytting litninga-
enda talin ein meginorsök þess að
krabbameinstilfellum fjölgar eftir
því sem aldurinn færist yfir. Á það
einkum við um þekjuvefskrabba-
mein en meðal þeirra eru brjósta-
og blöðruhálskirtilskrabbamein.
„Stuttar telomera-raðir tapa
verndunargildi sínu þannig að
litningarnir verða útsettir fyrir
göllum sem getur meðal annars
leitt til krabbameinsmyndunar,“
segir Sigríður Klara Böðvars-
dóttir, rannsóknarsérfræðingur
við læknadeild Háskóla Íslands,
sem hefur unnið að rannsóknum
sem byggja á uppgötvunum Black-
burn. „Undanfari æxlismyndunar
eru gallar í eftirlitskerfi frumunn-
ar sem hleypa frumum með stutta
litningaenda áfram í skiptingu
sem að lokum leiðir til yfirtján-
ingar ensímsins telomerasa sem
viðheldur litningaendunum. Þessi
yfirtjáning telomerasa er einn af
drifkröftum æxlisvaxtar og gerir
æxlisfrumum kleift að skipta sér
hömlulaust. Telomerasi er yfir-
tjáður í langflestum æxlum en
að jafnaði ekki í nema mjög litlu
magni í öðrum frumum líkam-
ans,“ útskýrir Sigríður Kara.
Hún segir Elizabeth líklega ekki
hafa órað fyrir því hvaða áhrif
rannsóknir hennar áttu eftir að
hafa á sínum tíma en hún hefur
síðan tekið virkan þátt í áfram-
haldandi rannsóknum sem hafa
einkum miðað að því að skoða
samspil umhverfisþátta við lengd
telomere-raða á litningaendum.
„Síðustu ár hefur henni tek-
ist að sýna fram á sterk tengsl
milli streitu af ýmsum toga og
styttingar litningaenda en streita
virðist með öðrum orðum flýta
fyrir öldrun. Þetta á við um lang-
varandi streitu til að mynda hjá
mæðrum langveikra barna og
konum sem verða fyrir heimil-
isofbeldi,“ segir Sigríður Klara
og heldur áfram: „Það er í raun
ótrúlegt hversu sterk tengsl eru
á milli streitu af ýmsum toga við
styttingu litningaenda og að það
skuli vera mælanlegt.“ Þá hefur
verið sýnt fram á að með því að
neyta omega-3 fitusýra og lifa
heilbrigðu lífi sé hægt að vinna
gegn eyðingu litningaenda og eru
vísbendingar um að hún gangi til
baka. Nýlegar uppgötvanir Black-
burn benda auk þess til þess að
áhrif streitu á styttingu litninga-
enda gæti eingöngu hjá kyrrsetu-
fólki.
„Hún gerði rannsókn á konum
sem annars vegar hreyfðu sig
reglulega og hins vegar lítið.
Hún lagði fyrir þær streitupróf
og komst að því að hjá kyrrsetu-
konum undir streituálagi mátti
merkja styttingu á litningaendum
Er lykillinn að langlífi fundinn?
MEÐAL ÁHRIFAMESTU EINSTAKLINGA HEIMS Fyrstu rannsóknir Blackburn og félaga voru gerðar á frumstæðum einfrumungi en
fljótlega var farið að yfirfæra niðurstöðurnar á manninn og tengja við krabbamein og aðra sjúkdóma. NORDICPHOTOS/AFP
BYGGIR Á UPPGÖTVUNUM BLACKBURN
Sigríður Klara hefur unnið að rann-
sóknum á ættlægum brjóstaæxlum
sem byggja á uppgötvunum Blackburn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Uppgötvarnir Nóbelsverðlaunahafans dr. Eliza-
beth Blackburn hafa breytt skilningi manna á
öldrun. Hún hefur sýnt fram á slæm áhrif streitu
á litningaenda og ávinning hreyfingar. Vera
Einarsdóttir kynnti sér hennar störf og ræddi við
rannsóknarsérfræðinginn Sigríði Böðvarsdóttur.
B lackburn, sem hefur hlotið fjölda heiðursdoktorsnafnbóta
frá helstu háskólum Bandaríkj-
anna og var valin ein af hundrað
áhrifamestu einstaklingum heims
af Time Magazine árið 2007, hefur
tekist að sýna fram á sterk tengsl
milli streitu og styttingar litninga-
enda og virðist langvarandi streita
flýta fyrir öldrun. Með því að neyta
omega-3 fitusýra er hægt að vinna
gegn þessari þróun og jafnvel
snúa henni við. Nýlegar upp-
götvanir Blackburn benda
til þess að áhrifa streitu
á styttingu litningaenda
gæti þó eingöngu hjá
kyrrsetufólki.
■ STERK TENGSL MILLI STEITU OG SJÚKDÓMA
FLÝTIR FYRIR ÖLDRUN Streita
veldur styttingu litningaenda og
eykur hættu á sjúkdómum, sam-
kvæmt Blackburn.
Landsbyggð tækifæranna
Haldin verður ráðstefna um þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands
Fundarstjóri: Hjalti Þór Vignisson Umræðustjórar: Steingerður Hreinsdóttir, Sigurborg Kr. Hannesdóttir og Njörður Sigurjónsson.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til mennta- og menningarmálaráðuneytisins á postur@mrn.is
Þekkingar- og fræðastarf á landsbyggðinni
M E N N TA - O G
M E N N I N G A R M Á L A R Á Ð U N E Y T I Ð
13:00 Setning
Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs.
13:10 Fjölbreytni vísinda og þekkingarstarfs á landsbyggðinni
Þórarinn Sólmundarson, mennta- og menningarmálaráðuneyti.
13:20 Þekkingarsetur sem samnefnari
Valdimar O. Hermannsson, Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi.
13:30 Náttúrustofur – samstarf og sérkenni
Sveinn Kári Valdimarsson, Náttúrstofu Reykjaness.
13:40 Umræður
14:15 Náttúra, samfélag, verðmætasköpun - Jarðvangur á Suðurlandi
Sigurður Sigursveinsson, Háskólafélagi Suðurlands.
14:25 Samþætting akademíu og atvinnulífs
Óli Halldórsson, Þekkingarsetri Þingeyinga.
14:35 Menntun í þágu samfélagsins
Anna Guðrún Edvardsdóttir, Rannsóknasetri Háskóla Íslands Austurlandi.
14:45 Kaffi hlé og umræður
15:20 Úrvinnsla umræðna
15:50 Innviðir þekkingarstarfs á Íslandi – samþætting skólastiga
Sigurbjörg Jóhannesdóttir, mennta- og menningarmálaráðuneyti.
16:00 Háskólar og þekkingarsetur
Jón Atli Benediktsson, Háskóla Íslands.
16:10 Þekkingarsetur og Ísland 2020
Héðinn Unnsteinsson, forsætisráðuneyti.
16:20 Samantekt og almennar umræður
16:40 Lokaorð
Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Mánudaginn 23. m
aí
kl. 13:00 - 17:00
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n