Fréttablaðið - 21.05.2011, Síða 36
21. maí 2011 LAUGARDAGUR36
Feilnótur og fánaruglingur
Þótt hljóðnemavesen Diktu á opnunarhátíð Hörpu um síðustu helgi hafi verið fremur neyðarlegt hlýtur það að teljast barna-
leikur miðað við fjölmörg önnur vandræðaleg augnablik tónlistarfólks á sviði. Kjartan Guðmundsson tók nokkur slík saman.
PopMart-tónleikaferð rokk-sveitarinnar U2, sem farin
var árið 1997, var hugsuð sem
kaldhæðinn óður til auglýs-
ingamennsku og nútíma popp-
kúltúrs. Sveitin hafði áður gert
lagið Lemon gríðarlega vinsælt
og því var miðpunkturinn á
sviðinu risavaxin og sítrónu-
laga diskókúla sem meðlimir
U2 áttu að stíga út úr í upp-
hafi tónleika og byrja að rokka.
Áhorfendur á hljómleik-
um í Osló urðu þó ekki
vitni að þessu glæsta
upphafi, því þar bil-
aði sítrónan stóra
og opnaðist ekki,
svo írsku popp-
goðin neyddust
til að skríða út
úr henni í gegn-
um lítinn neyðar-
útgang við mikinn
hlátur viðstaddra.
■ SÚRT UPPHAF Á TÓNLEIKUM U2
Endurkomutónleikar R&B-hipphopptríós-ins Fugees í Ósló árið 2005 voru hrein-
asta hörmung frá flestum hliðum litið.
Meðlimir sveitarinnar, þau Lauryn Hill,
Wyclef Jean og Pras Michel, voru alls ekki
tilbúin að koma saman aftur eftir langt
hlé, yrtu ekki á hvort annað baksviðs né
á sviðinu, og pirringurinn smitaði út frá
sér til áhorfenda. Í miðju laginu „Ghetto
Superstar“, um miðbik tónleikanna, gerði
Pras þó heiðarlega tilraun til að gleðja gest-
ina með því að skella sér út í áhorfendahópinn og
„crowdsurfa“ lítið eitt. Ekki fór betur en svo að í hama-
gangnum missti rapparinn spánnýja Blackberry-símann sinn úr
vasanum og týndi honum. Pras eyddi því sem eftir var af tónleik-
unum í að svipast um eftir símanum og grátbiðja áhorfendur um að
skila sér honum, við lítinn fögnuð þeirra sem borguðu stórfé fyrir
miðann.
■ SVARTUR SÍMADAGUR HJÁ FUGEES
Titillag Duran Duran úr Bond-myndinni A View to a Kill sat á toppi vinsældalista um allan heim í júlímánuði ársins 1985 þegar
sveitin kom fram á Live Aid á JKF-leikvanginum í Fíladelfíu, en
samtímis fóru risagóðgerðartónleikarnir fram á Wembley í London.
Ósætti hafði ríkt um nokkra hríð hjá meðlimum sveitarinnar og
samskipti milli þeirra voru í algjöru lágmarki. Frammistaða þeirra
á Live Aid þótti hörmuleg og er talin ein af ástæðum þess að sveitin
leystist upp í kjölfarið (Roger og Andy Taylor gengu úr skaftinu)
og kom ekki saman aftur í upprunalegri mynd fyrr en átján árum
síðar. Segja má að botninum
hafi verið náð þegar söngv-
arinn Simon Le Bon rak upp
eina hrikalegustu, og jafn-
framt frægustu, feilnótu tón-
listarsögunnar í viðlagi téðs
A View to a Kill, enda urðu
100.000 áhorfendur á JFK-
leikvanginum og yfir tveir
milljarðar sjónvarpsáhorf-
enda vitni að ósköpunum.
Síðar viðurkenndi Le Bon
að atvikið hefði verið það
neyðarlegasta á ferlinum
og þegar Live Aid tónleikarnir voru gefnir út á DVD fékkst ekki
leyfi frá hljómsveitinni til að hafa þetta ákveðna lag með á disk-
inum. Það er þó hægt að finna á vefsíðunni YouTube, eins og flest
annað, og þykir svipur gítarleikarans Andy Taylor rétt eftir feilnótu
söngvarans sérlega lýsandi fyrir ástandið innan sveitarinnar.
■ FEILNÓTAN SEM HEIMURINN HEYRÐI
Fátt var um vandræðaleg augnablik á tónleikum Busta Rhymes í Vodafone-höllinni síðastliðinn
þriðjudag þrátt fyrir meintar opinberar kannabis-
reykingar, enda hefur rapparinn væntanlega lært
sína lexíu eftir frammistöðu sína á tónleikum sem
hann hélt í Kaupmannahöfn árið 2003. Eins og
hipphoppara er siður gerði Rhymes víðreist um
sviðið og hvatti viðstadda til að standa upp og baða
út öngunum sem mest þeir mættu. Þegar hann tók
eftir því að einn tónleikagestur í fremstu röð sat
sem fastast brá Rhymes á það ráð að segja við-
komandi að „drulla sér á lappir,“ því
hann hefði sko ekki „ferðast yfir hálf-
an heiminn til að sjá fólk
sitja á rassinum“. Rhymes
gerði sér greinilega ekki
grein fyrir því að viðkom-
andi gestur var bund-
inn við hjólastól, enda
baðst hann innilega
afsökunar daginn eftir.
■ „DRULLAÐU ÞÉR Á LAPPIR!“
Áhorfendur á tónleikum Black Eyed Peas í San Diego árið 2005 urðu vægast sagt hissa þegar þeir urðu þess
áskynja, í miðjum stærsta smelli sveitarinnar „Let‘s Get
It Started“, að dökkur blettur myndaðist í klofinu á ljós-
gráum buxum söngkonunnar Fergie. Bletturinn varð
stærri eftir því sem leið á lagið og fljótlega varð ljóst að
Fergie hafði hreinlega pissað í buxurnar. Ljósmyndir af
atvikinu breiddust eins og eldur í sinu um alnetið undir
hnyttnum fyrirsögnum á borð við „Black Eyed Pees“ og
sjálf viðurkenndi Fergie síðar í viðtali að hún hefði aldrei
lent í neinu jafn neyðarlegu. Hún hefði hreinlega ekki
haft tíma til að fara á salernið fyrir tónleikana og því fór
sem fór.
Úrgangur víða til vandræða
Úrgangur hefur raunar víða verið til vandræða á tónleik-
um. Sálin hans Jóns míns tróð upp á Þjóðhátíð í Eyjum
sumarið 1992, þegar einn gesta lagði á sig að príla upp á
þakið á sviðinu, leysa niður um sig og spræna á kollana á
meðlimum sveitarinnar. Stefán Hilmarsson, söngvari Sál-
arinnar, tók atvikinu með stóískri ró, þótt nokkurra sár-
inda gætti í orðum hans til áhorfenda eftir að afbrotaung-
lingurinn hafði verið dreginn inn í lögreglubíl: „Það er
ekki þakklætinu fyrir að fara hér í Eyjum. Maður kemur
hingað til að spila og það er bara pissað á mann!“
Einnig rauk Will Berman, trommari bandarísku popp-
sveitarinnar MGMT, af sviðinu á tónleikum í Manchester
á síðasta ári þegar óprúttinn aðili í áhorfendahópnum
kastaði glasi með þvagi í bringuna á trommaranum. Á
svipuðum tíma þurftu rokkararnir í Kings of Leon að
flýja sviðið undan skítandi dúfum í hundraðatali á tón-
leikum í St. Louis. Tilvonandi Íslandsvinurinn Cyndi
Lauper náði þó ekki að forða sér frá fugla-
driti á tónleikum í Massachusetts árið
2004 og fékk það beint upp í munninn. Þá lagði metal-meistarinn Alice Cooper í vana
sinn að vefja risastórum og lifandi snáki um hálsinn á sér á tónleikum í yfir þrjá ára-
tugi, allt þar til snákurinn tók upp á því að kúka á söngvarann á tónleikum í Los Ange-
les árið 2000. „Lyktin var svo vond að ég þurfti að æla. Og það voru tíu lög eftir,“ sagði
Cooper í viðtali og bætti við að saurinn úr snáknum hefði verið svo mikill að hann hefði
búist við slíku úr Doberman-hundi, en alls ekki skriðdýri.
■ FERGIE NÁÐI EKKI Á KLÓSETTIÐ Í TÆKA TÍÐ
Sígilt ráð til að koma áhorfendum í gott stuð og fá þá á þitt band er að vefja utan um sig þjóðfána áhorf-
endanna sem þú ert að skemmta þá stundina. Þetta
veit Axl Rose, söngvari bárujárnssveitarinnar Guns
N‘Roses, og hugðist hann nýta sér trixið á tónleikum í
Ósló á síðasta ári. Axl klikkaði einungis á litlu smáat-
riði. Hann vafði sænska fánanum utan um sig en ekki
þeim norska, og virtist nokkuð hissa þegar uppátækið
hlaut dræmar undirtektir hjá tónleikagestum. Næstu
tónleikar Guns N‘Roses eftir þá í Ósló voru í Svíþjóð
og mistökin því skiljanleg. Í það minnsta þegar Axl
Rose á í hlut.
■ MISLUKKAÐ FÁNATRIX