Fréttablaðið - 21.05.2011, Qupperneq 40
21. MAÍ 2011 LAUGARDAGUR4 ● kynning ● söfn fyrir alla
Söfn eru heimar út af fyrir sig
og hægur vandi að gleyma
þar stund og stað tímunum
saman. Meðal skemmtilegustu
safna að heimsækja í London
og París eru Viktoríu og
Albertssafnið í Kensington og
d‘Orsay-safnið á vinstri bakka
Signu.
Viktoríu og Albertssafnið í Suður-
Kensington í London er stærsta safn
heims hvað varðar skreytilist og
hönnun. Þar eru til sýnis rúmlega
4,5 milljón hlutir. Safnið er nefnt
eftir Viktoríu drottningu og Albert
eiginmanni hennar og var stofnað
árið 1852. Mikið hefur verið byggt
við húsakost safnsins síðan það
var opnað og í dag er gólfflöturinn
51.000 fermetrar og sýningarsalirn-
ir eru 145. Munir safnsins spanna
5.000 ára listasögu, frá fornöld til
dagsins í dag, og eru frá Evrópu,
Norður-Ameríku, Asíu og Norður-
Afríku.
Þar er að finna stærsta safn
af síðklassískum höggmyndum í
heiminum, stærsta safn ítalskrar
endurreisnarlistar utan Ítalíu, as-
íski hluti safnsins er meðal þeirra
bestu í Evrópu, einkum hvað varð-
ar leirkerjalist og málmhluti, og
íslamski hluti safnsins er meðal
þeirra stærstu í heiminum.
V&A, eins og Bretar nefna safn-
ið gjarnan, er í þeim hluta Kensing-
ton sem gengur undir nafninu Al-
bertopolis og þar er meðal annars
að finna Náttúrugripasafn og Vís-
indasafn Breta. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis eins og að flestum
ríkisreknum söfnum í Bretlandi og
það er opið frá 10 til 17.45 alla daga
nema föstudaga þegar opið er frá 10
til 22.
D‘ORSAYSAFNIÐ Í PARÍS
Musée d‘Orsay stendur á vinstri
bakka Signu í París. Byggingin
var upphaflega járnbrautarstöð,
Gare d‘Orsay, sem byggð var á ár-
unum 1898-1900. Árið 1977 tóku
frönsk stjórnvöld þá ákvörðun að
breyta henni í listasafn. Miklar
endurbætur og viðbætur áttu sér
stað undir stjórn ítalska arkitekts-
ins Gae Aulenti á árunum 1980-
1986. Safnið var síðan opnað með
viðhöfn af þáverandi Frakklands-
forseta, François Mitterrand, hinn
1. desember 1986.
d‘Orsay er frægast fyrir að hýsa
stærra safn verka eftir impressjón-
ista og síð-impressjónista en nokk-
urt annað safn í veröldinni. Meðal
þeirra sem eiga verk í impressjón-
istadeild safnsins eru Monet, Manet,
Degas, Renoir, Cézanne, Seurat,
Sisley, Gauguin og van Gogh.
Á torginu fyrir framan safnið eru
sex bronsstyttur, sem eiga að tákna
heimsálfurnar og voru búnar til
fyrir Heimssýninguna í París árið
1878.
Safnið er opið frá 9.30 til 18 alla
daga nema fimmtudaga, þegar opið
er frá 9.30 til 21.45, og mánudaga
þegar það er lokað. Almennur að-
gangseyrir er átta evrur og miði á
sérstakar sýningar kostar tíu evrur.
Í allt öðrum heimum
Séð inn í almenning d’Orsay-safnsins.
d’Orsay-safnið er til húsa í gamalli járn-
brautarstöð á vinstri bakkanum.
Mikið úrval fatnaðar frá ýmsum tímum er í tískudeild V&A. Hér eru þrír bowler-
hattar, sem lengi þóttu hluti af þjóðareinkennum Breta.
V&A er í þeim hluta Kensington sem Bretar kalla Albertopolis.
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkum koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin sjálfstæð Apótek selja einnig Proactiv Solution:
REYKJAVÍKURAPÓTEK, Seljavegi 2 // LYFJABORG APÓTEK,
Borgartúni 28 // GARÐSAPÓTEK, Sogavegi 108
URÐARAPÓTEK, Grafarholti // RIMA APÓTEK, Grafarvogi
APÓTEK HAFNARFJARÐAR, Tjarnarvöllum 11
ÁRBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 115 // LYFJAVER Suðurlandsbr. 22
Upplýsingar á www.mk.is og á
skrifstofu skólans í síma 594 4000
WWW.MK.IS
STÚDENTSNÁM
• Félagsfræðabraut
• Mála- og ferðafræðibraut
• Náttúrufræðibaut
• Viðskipta- og hagfræðibraut
• Listnámsbraut
GRUNNDEILD MATVÆLAGREINA
fyrir þá sem stefna á að vera:
• Bakari
• Framreiðslumaður
• Kjötiðnaðarmaður
• Matreiðslumaður
FRAMHALDSSKÓLABRAUT
Hvert skal stefna í lífinu?
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á WWW.MK.IS
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar
á visir.is/dreifing
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á Vísi eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.