Fréttablaðið - 21.05.2011, Page 42
21. maí 2011 2
Skúli Jón byrjaði sex ára að æfa
fótbolta hjá Breiðholtsliðinu Leikni
en skipti yfir í KR þegar hann
flutti í Vesturbæinn.
„Ég hugsa alltaf mjög hlýlega til
Leiknis og á þar enn marga vini.
Liðið var hársbreidd frá því að
komast í úrvalsdeildina í fyrra-
sumar og er með það í höndunum
nú, en þarf enga hjálp frá mér,
enda er ég orðinn of mikill KR-
ingur til að skipta upp í Breiðholt
aftur,“ segir Skúli Jón brosmildur.
KR mætir Stjörnunni í Garða-
bæ annað kvöld svo morgundag-
inn tekur Skúli Jón með ró, eins
og flesta sunnudaga á sumrin.
„Fyrir leiki sef ég aðeins út og
borða vel yfir daginn en er svo
bara í rólegheitunum að þrífa bíl-
inn eða rölta um bæinn með vin-
unum. Það er nauðsynlegt að
finna góðan milliveg því vont er
að liggja bara í leti og það þarf að
koma líkamanum aðeins í start-
holurnar fyrir leiki,“ segir Skúli
Jón, sem eins og fjörutíu aðrir
fótboltasnillingar bíður spenntur
eftir því hvaða 23 leikmenn verða
valdir í úrslitakeppni Evrópu-
móts U21-landsliða sem fram fer
í Danmörku í júní.
„Ég er afar spenntur því biðin
eftir þessu móti er orðin löng og
mikil tilhlökkun í hópnum. Það
bjóst enginn við að við kæmumst
áfram og þar af leiðandi er engin
pressa, svo við förum bara út til
að hafa gaman af og svo kemur
eitthvað meira í framhaldinu, hef
ég trú á,“ segir Skúli Jón og bætir
við að markmið um árangur sé enn
ekki sett því hópurinn sem fari
utan sé ekki ákveðinn.
„Enginn er öruggur um pláss
og allir koma til greina, en þeir
sem hafa spilað flesta landsleik-
ina ættu að vera þokkalega örugg-
ir. Sjálfur yrði ég mjög ósáttur
við að lenda ekki í liðinu, en svo
er líka alltaf hætta á meiðslum
og allt getur gerst í millitíðinni,“
segir Skúli Jón, bjartsýnn á góðan
árangur.
„Evrópumótið er klárlega lang-
stærsta mótið sem við höfum tekið
þátt í og vitaskuld er það draumur
allra að komast þangað. Ég held að
fæstir geri sér grein fyrir hversu
mikið afrek það var hjá okkur
strákunum að komast alla leið, og
að mínu mati höfum við ágætis
möguleika á að komast upp úr riðl-
inum og uppskera að launum sæti
á Ólympíuleikunum í Lundúnum
2012.“ thordis@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
Ljóðalestur, gjörningar, vídeóverk
og tónlist ráða ríkjum á skemmti-
staðnum Bakkusi við Tryggva-
götu frá klukkan 19 til miðnættis í
kvöld. Þar koma fram, meðal ann-
arra, skáldin Jón Örn Loðmfjörð,
Einar Ólafsson, Gregor Balazt
og Anton Helgi Jónsson. Snorri
Ásmundsson og Gerningaþjón-
usta Inferno 5 verða með gjörn-
inga, Steinunn Gunnlaugsdóttir
og Katrín Ólafsdóttir sýna vídeó-
verk og um tónlistina sjá meðal
annarra Arnljótur, Dean Ferrel,
Gjöll og Inside Bilderberg. Gest-
gjafi kvöldsins er ljóða-, tónlistar-
og gjörningahópurinn Burning
Brain and the Wheel of Work.
Dagskráin hefst stundvíslega
klukkan 19 og listamennirnir
koma fram í dadaískri röð.
Tónlist, ljóð og
gjörningar
UPPÁKOMA VERÐUR Á BAKKUSI
Í KVÖLD UNDIR YFIRSKRIFTINNI
HEIMSLISTAHÁTÍÐ.
Meðal þeirra sem fram koma á
Bakkusi í kvöld er ljóðskáldið
Anton Helgi Jónsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Fyrir leiki sef ég aðeins út og borða vel yfir daginn en er svo bara í rólegheitum að
þrífa bílinn eða rölta um bæinn með vinunum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Íslandsmót Smábílaklúbbs Íslands verður haldið á sunnudaginn í Gufunesi.
Þetta er fyrsta umferð af fimm sem eknar verða í sumar. Um er að ræða mót
í brautarakstri fjarstýrðra bíla, sem er mjög skemmtilegt að fylgjast með.
Keppnin hefst klukkan 10.15 og lýkur klukkan 16.
Við reynum auðvitað að hafa þetta
fjörugt og skemmtilegt til að halda
athygli yngstu kynslóðarinnar,“
segir Anna Bergljót Thorarensen,
sem skrifar leikgerðina að Mjall-
hvíti og dvergunum sjö og leikur
Mjallhvíti. „Ég breytti sögunni
líka svolítið, til dæmis er engin
vond stjúpa heldur er það frænka
Mjallhvítar sem er vonda drottn-
ingin, en að mestu leyti fylgdi ég
nú söguþræði ævintýrisins.“
Ný tónlist hefur verið samin
fyrir verkið en auk Önnu koma þar
að verki Rósa Ásgeirsdóttir, Oddur
Bjarni Þorkelsson og Baldur,
Helga og Snæbjörn Ragnarsbörn.
Leikstjórar eru Oddur Bjarni Þor-
kelsson og Margrét Sverrisdóttir,
tilvonandi stjórnendur Stundar-
innar okkar. „Þau hafa aldrei leik-
stýrt hjá okkur áður,“ segir Anna
Bergljót, „en þau eru svona að hita
sig upp fyrir veturinn.“
Alls leika fimm leikarar í sýn-
ingunni auk tónlistarmanns sem
er inni á sviðinu allan tímann.
Þessir fimm leikarar skipta á
milli sín öllum tólf hlutverkunum
og stundum þurfa meðal annars
að vera sjö dvergar inni á svið-
inu í einu. Hvernig er það hægt?
„Sjón er sögu ríkari,“ segir Anna
Bergljót og hlær. „Það verða þarna
ýmsar sjónhverfingar.“ Leikararn-
ir sem bregða sér í allra kvikinda
líki eru auk Önnu Bergljótar þau
Sigsteinn Sigurbergsson, Arnar
Ingvarsson, Baldur Ragnarsson
og Rósa Ásgeirsdóttir.
Frumsýningin fer fram í Elliða-
árdalnum klukkan 14, nánar til-
tekið í Hólmanum, en hann er
jafnframt aðalsýningarstaður
leikhópsins. Þar geta gestir séð
Mjallhvíti og dvergana sjö alla
miðvikudaga í sumar. Þeir sem
búa lengra frá þurfa þó ekki að
örvænta, því leikhópurinn mun
leggja allt landið undir sig og
á þremur mánuðum sýna ríf-
lega 75 sýningar á yfir fimmtíu
mismunandi stöðum á landinu.
Miðaverð á sýninguna er 1.500
krónur og ekki þarf að panta miða
fyrir fram heldur er alveg nóg að
mæta bara á staðinn.
Þetta er fimmta sumarið sem
Leikhópurinn Lotta setur upp úti-
sýningu. Áður hefur hópurinn tek-
ist á við Hans klaufa, Rauðhettu,
Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í
Hálsaskógi. fridrikab@frettabladid.is
Sýningin Mjallhvít og dvergarnir sjö er litrík og hressileg og leikararnir bregða sér í allra kvikinda líki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mjallhvít í Elliðaárdal
Leikhópurinn Lotta frumsýnir í dag nýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö. Leikgerðina gerði
Anna Bergljót Thorarensen og leikur hún einnig sjálfa Mjallhvíti. Hún lofar fjöri og sjónhverfingum.
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið
mán - fös 10-18,
laugardaga 10-16
Stuttkápur
verð frá
19.900
Yfi rhafnir, bolir og peysur í miklu úrvali.
Toppvö
rur
toppþjó
nusta.
Stutt kápa
með hettu
23.900 kr.
Nýjar vörur
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
Laugavegi 53 • s. 552 3737
Opið mánudag til föstudag 10-18,
laugardag 10-17
Vertu vinur á Facebook
Ný sending
full búð af nýjum vörum