Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 48
21. maí 2011 LAUGARDAGUR4
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
MP banki leitar að duglegum og sjálfstæðum einstaklingum með brennandi áhuga á að taka virkan þátt í uppbyggingu atvinnulífs og
markaða á Íslandi. Við ætlum að láta verkin tala og stuðla að eflingu virks fjármálamarkaðar sem mun efla atvinnulíf og skapa samfélaginu
öllu tækifæri og hagsæld. Ef þú vilt vinna með kraftmiklum hópi fagmanna sem horfa til framtíðar þá erum við að leita að þér.
Forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar
Leitað er að einstaklingi sem hefur mikið traust á markaði, góð tengsl og mikla getu til að
skapa bankanum viðskipti. Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegri stjórnun fyrirtækjaráðgjafar
og verkefnastjórnun ráðgjafarverkefna. Viðkomandi er auk þess ábyrgur fyrir markaðs-
setningu, kynningu og sölu á þjónustu fyrirtækjaráðgjafar auk þess að sinna ráðgjöf til
viðskiptavina bankans á sviði endurskipulagningar fyrirtækja og annarri fjármálaráðgjöf.
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af stjórnun, ráðgjöf og rekstri fyrirtækja
Framúrskarandi þekking á sviði fjármála, á efnahagsmálum og á rekstrarumhverfi fyrirtækja
Mjög gott vald á íslensku og ensku
Leiðtogahæfileikar sem og hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og faglegur metnaður
Háskólamenntun, framhaldsmenntun æskileg
Próf í verðbréfaviðskiptum skv. lögum um verðbréfaviðskipti
Framkvæmdastjóri eignastýringar
Leitað er að einstaklingi til að leiða eignastýringarsvið bankans og bera ábyrgð á
daglegum rekstri. Viðkomandi mun koma að mótun fjárfestingarstefnu, greiningu
fjárfestingarkosta og eflingu samskipta við núverandi og nýja viðskiptavini MP banka.
Skilyrði er að viðkomandi hafi mikið traust á markaði, góð tengsl við fagfjárfesta og
mikla getu til að skapa bankanum viðskipti.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Reynsla af stjórnun og rekstri
Reynsla af störfum á sviði eignastýringar
Leiðtogahæfileikar sem og hæfni í mannlegum samskiptum
Framúrskarandi þekking á sviði fjármála og á efnahagsmálum
Frumkvæði og faglegur metnaður
Háskólamenntun, framhaldsmenntun æskileg
Próf í verðbréfaviðskiptum skv. lögum um verðbréfaviðskipti
Mjög gott vald á íslensku og ensku
Yfirlögfræðingur
Leitað er að einstaklingi með yfirgripsmikla þekkingu og brennandi áhuga á lögfræði
og fjármálamörkuðum til að stýra lögfræðisviði bankans. Viðkomandi heyrir undir
forstjóra og sinnir almennri lögfræðiráðgjöf á sviði bankaréttar, verðbréfaréttar,
kröfuréttar og félagaréttar. Meðal annarra verkefna er samningagerð, almenn túlkun
laga og reglna, samskipti við eftirlitsstofnanir og þátttaka í samstarfsnefndum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Meistara- og/eða embættispróf í lögfræði
Reynsla af stjórnun
Reynsla af störfum á fjármálamarkaði
Gott vald á íslensku og ensku
Færni til að tjá sig í ræðu og riti
Leiðtogahæfileikar sem og hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og faglegur metnaður
Sérfræðingur í gjaldeyrismiðlun
Við erum að leita að sérfræðingi í gjaldeyrismiðlun til þess að sinna miðlun á
gjaldeyri og tengdum afurðum innan markaðsviðskipta. Viðkomandi mun sinna
gjaldeyrismiðlun til núverandi viðskiptavina samhliða því að vinna að fjölgun þeirra.
Auk þess mun viðkomandi vinna með einstökum deildum bankans við þróun nýrrar
þjónustu tengdri gjaldeyrismiðlun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Reynsla af sambærilegu starfi skilyrði
Próf í verðbréfaviðskiptum skv. lögum um verðbréfaviðskipti
Skilningur á fjármálum og verðbréfum
Greiningarhæfni, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
Söludrifni og hæfni til að vinna undir álagi
Háskólamenntun á sviði hagfræði, stærðfræði eða viðskiptafræði
Vilt þú taka þátt
í uppbyggingu
Íslands?
Sérfræðingur í greiningardeild
Leitað er að sérfræðingi í greiningardeild til þess að sinna greiningu og umfjöllun um
þróun helstu hagvísa og stöðu á fjármálamörkuðum. Viðkomandi mun veita starfsmönnum
og viðskiptavinum bankans upplýsingar um þróun efnahagsmála og fjármálamarkaða
sem settar eru fram jafnt á rituðu formi sem á kynningum innanhúss sem utan.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Meistarapróf í hagfræði eða skyldum greinum
Reynsla af störfum á fjármálamarkaði
Greiningarhæfni og skilningur á fjármálum og verðbréfum
Hæfni til að setja fram efni á skýran og skilmerkilegan hátt í ræðu og riti
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi
Umsjón með störfunum hafa Hilmar G. Hjaltason (hilmar.hjaltason@capacent.is),
Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) og Ragnheiður S.
Dagsdóttir (ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir
að sækja um störfin á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.
Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.