Fréttablaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 72
21. maí 2011 LAUGARDAGUR40
Sjónarhorn
Ljósmynd: Anton Brink
UNGT OG LEIKUR SÉR Þessir tveir kettlingar virtust una sér ágætlega í Kattholti, húsi Kattavinafélags Íslands, í
vikunni. Við stofnun félagsins árið 1976 hófst sú starfsemi að taka til geymslu heimilislausa óskilaketti, sem fengu mat,
umönnun og húsaskjól í sérstöku herbergi heima hjá fyrsta formanninum, Svanlaugu Löve.
Á þessum degi, 21. maí árið 1992, var hin 17 ára gamla Amy Fisher handtekin í Massapequa í New York-fylki, grunuð um að hafa skot-
ið húsmóðurina Mary Jo Buttafuoco á heimili þeirrar síðarnefndu. Það
sem fylgdi í kjölfarið var eitt af safaríkustu hneykslis- og fjölmiðla-
málum Bandaríkjanna í seinni tíð.
Rannsóknin leiddi í ljós magnaða sögu um ástríður, afbrot og meiri-
háttar siðleysi. Amy hafði staðið í ástarsambandi við Joey Buttafuoco,
38 ára gamlan eiginmann Mary Jo. Samband þeirra hófst nokkru áður,
þegar Amy kom með bíl foreldra sinna á réttingaverkstæði Joeys.
Amy einsetti sér að sitja ein að elskhuga sínum og mætti því á heimili
Buttafuoco-fjölskyldunnar vopnuð byssu. Hún tilkynnti Mary Jo fyrst
að Joey stæði í ástarsambandi við yngri konu. Því til „sönnunar“ dró hún
fram bol sem var merktur réttingaverkstæðinu. Hún dró því næst upp
byssuna og skaut Mary Jo í andlitið og flúði af vettvangi.
Skotið reyndist ekki banvænt og gat Mary Jo gefið greinargóða lýs-
ingu á Amy, auk þess sem bolurinn bendlaði Joey við glæpinn. Við yfir-
heyrslur benti hann svo á Amy sem var handtekin skömmu síðar.
Réttarhöldin urðu sannkallaður fjölmiðlasirkus en endaði með því að
Amy var dæmd fyrir árás og hlaut 5 til 15 ára dóm. Joey var dæmdur í
hálfs árs fangelsi fyrir samræði við stúlku undir lögaldri.
Amy slapp úr fangelsi árið 1999 eftir að Mary Jo hafði talað máli henn-
ar. Þau skötuhjú, Amy og Joey, dúkka enn upp öðru hvoru þar sem þeim
leiðist víst ekki að vera í kastljósi fjölmiðlanna.
Amy hefur ekki setið auðum höndum og hefur meðal annars gefið út
ævisögu sína og reyndi á tímabili að hasla sér völl í klámiðnaðinum. Hún
er nú meðal þátttakenda í raunveruleikaþáttunum Celbrity Rehab þar
sem hún tekst á við áfengis- og lyfjafíkn. Hjónaband Joey og Mary Jo
Buttafuoco stóð af sér storminn í fyrstu, en þau skildu árið 2003. Hann
stýrir nú útvarpsþætti um hvernig megi bæta líf sitt.
Þetta mikla hneykslismál tröllreið fjölmiðlum um langt skeið og hefur
getið af sér kvikmyndir, heimildarmyndir og endalaust marga mis-
smekklega brandara. - þj
Heimildir: History.com og Wikipedia.
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1992
Amy Fisher handtekin fyrir
skotárás á eiginkonu elskhuga
Var hún miskunnarlaust tálkvendi eða auðsveipur stúlkukjáni?
Viðskipti Íslands og Kína
Hver er staðan í Kína? Hvar liggja tækifærin?
Hvað gerist þegar Norðursiglingaleiðin opnast?
Í tilefni af 40 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Kína stendur Íslensk
kínverska viðskiptaráðið fyrir ráðstefnu um viðskiptatengsl Íslands og Kína,
fimmtudaginn 26. maí, kl. 14-17 á 20. hæð Turninum Smáratorgi.
Opnunarávörp:
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra
Dr. Su Ge, Sendiherra Kína á Íslandi
Aðalerindi:
Kjeld Erik Brødsgaard, Prófessor við Copenhagen Business Scool.
"The political and economic consequences of China's integration into the global
economy - background and perspectives."
Húni Heiðar Hallsson, Heimskautalögfræðingur.
,,Ísland í lykilhlutverki í samgönguneti framtíðar.“
Aðrir mælendur:
Vala Valtýsdóttir, Deloitte.
Magnús Oddsson, Össur hf.
Kjartan Pierre Emilsson, CCP.
Magnús Björnsson, sérfræðingur í málefnum Kína.
Fundarstjóri: Elín Björg Ragnarsdóttir, verkefnastjóri ÍKV.
Skráning með tölvupósti á ift@ift.is eða í síma 588 8910.
Enginn aðgangseyrir!
Samstarfsaðilar: