Fréttablaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 74
21. maí 2011 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
45
Merkisatburðir
1481 Hans konungur tók við
af föður sínum Kristjáni
1. sem konungur Dan-
merkur og Noregs.
1502 Portúgalar uppgötvuðu
eyna Sankti Helenu.
1904 FIFA var stofnað í París.
1927 Charles Lindberg flaug
fyrstur manna einn yfir
Atlantshafið.
1979 Miklar verðhækkanir á
bensíni urðu til þess að
bifreiðaeigendur mót-
mæltu og þeyttu flautur
í tvær mínútur.
1997 Björn Ólafsson, Einar
Stefánsson og Hallgrím-
ur Magnússon voru
fyrstir Íslendinga til að
stíga á tind Everest.
Fimleikafélagið Björk fagnar sextíu ára
afmæli sínu um helgina og af því tilefni
verða haldnar tvær afmælissýningar í
dag. „Það verða tvær sýningar í Strand-
götunni í Hafnarfirði, önnur er klukkan
tvö og hin klukkan fimm,“ segir Ragn-
hildur Guðmundsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Fimleikafélagsins Bjarkar. Hún
segir alla nemendur félagsins taka þátt
í sýningunni, bæði stelpur og stráka,
fimleikafólk og klifrara. „Það er mikill
metnaður lagður í sýninguna sem æft
hefur verið fyrir í nokkra mánuði.“
Á sýningunni verður meðal annars
hópur sem samanstendur af fimleika-
stelpum úr Björkinni sem urðu Íslands-
og bikarmeistarar á tímabilinu 1976 til
2004. „Þetta eru þrjár kynslóðir sem
flestar eru hættar að æfa fimleika en
koma saman á afmælum eða viðburðum
hjá Björkinni,“ segir Ragnhildur en þær
hafa hist á hverju kvöldi til að æfa fyrir
sýninguna.
„Við erum búnar að æfa flottan dans
sem Steinunn Ketilsdóttir samdi og
kenndi okkur,“ upplýsir Ragnhildur en
Steinunn lærði dans í New York. Ragn-
hildur segir að flestar í hópnum séu
enn þá í mjög góðu formi. „Við gerum
okkur lítið fyrir og skellum okkur í
heljarstökk á æfingum,“ segir Ragn-
hildur brosandi. Að sögn hennar er
góð samstaða innan hópsins eins og hjá
öðru íþróttafólki í Björkinni. En hver
er ástæða þessarar samstöðu, sem
þó spannar þrjár kynslóðir fimleika-
kvenna? „Við vorum allar með sama
þjálfarann, Hlín Árnadóttur. Hún er
enn að þjálfa í Björkinni og hefur gert
það í rúm fjörutíu ár,“ útskýrir Ragn-
hildur og bætir við að félagið sé eins og
hálfgerð fjölskylda. „Það verður til þess
að við komum alltaf aftur.“
Ragnhildur segir fimleikakrakka
vera skipulagða. „Þetta er mjög metnað-
argjarnt fólk. Þegar við hittumst 25 ára
vorum við allar í háskólanum og núna
erum við allar komnar með fjölskyldu
og börn. Við erum svolitlar öfgamann-
eskjur en fimleikar eru góður grunnur
fyrir lífið.“ martaf@frettabladid.is
FIMLEIKAFÉLAGIÐ BJÖRK: FAGNAR 60 ÁRA AFMÆLI SÍNU UM HELGINA
Góður grunnur fyrir lífið
METNAÐARGJARNAR FIMLEIKAKONUR Hópurinn hefur æft öll kvöld fyrir afmælissýninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LISA EDELSTEIN leikkona er 45 ára
„Það sem er erfiðast við að vera grænmetisæta eru skórnir. Ég meina
það er eini erfiði hlutinn, að finna skó sem ekki eru gerðir úr leðri.“
BORGARHÓP EHF.
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA OG MJÖG VÖNDUÐ VINNUBRÖGÐ
KIRKJUGARÐAÞJÓNUSTA
FYRIR ÞÁ SEM VILJA HAFA LEIÐI ÁSTVINA SINNA FALLEG
893 4034 • 893 4007 • borgarhop@simnet.is
Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com
GRANÍT OG LEGSTEINAR
Fallegir legsteinar
á einstöku verði
Frí
áletr
un
Gjótuhrauni 8, 220 H fnarfirði Sími 571 400 ranit@granit.is
Hjartans þakkir sendum við öllum
þeim fjölmörgu sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns, föður og afa,
Erlings Þórs Proppé
Sérstakar þakkir til þeirra starfsmanna á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ sem sinntu honum af virðingu
og alúð síðastliðin ár.
Fanney Proppé Eiríksdóttir
Anna María Proppé Þormar Sigurjónsson
Ástráður Þór Proppé
Erling Proppé Sturluson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Bergþóra Kristjánsdóttir
Húnabraut 7, Blönduósi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Blönduóss mánudaginn
9. maí. Útför verður gerð frá Blönduósskirkju
laugardaginn 21. maí klukkan 11.00.
Þórunn Pétursdóttir
Kristján Pétursson
Pétur Arnar Pétursson Helga Lóa Pétursdóttir
Guðrún Soffía Pétursdóttir Guðjón Guðjónsson
ömmubörn, langömmubörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
Aðalheiður Jóna
Guðmundsdóttir
Gulaþingi 9, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir, laugardaginn 14. maí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
24. maí kl. 13.00.
Anna Júlíana Sveinsdóttir Rafn A. Sigurðsson
Einar Sveinsson
Margrét Heinreksdóttir
barnabörn og langömmubörn
Útför móður minnar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sigurbjargar Gísladóttur
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn
25. maí kl. 15.00.
Margrét Friðbergsdóttir Bergþór Halldórsson
Högni Bergþórsson
Sigurbjörg H. Bergþórsdóttir Karl Sæberg Jónsson
Halldóra Bergþórsdóttir Gestur Svavarsson
og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð vegna andláts
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu
Ingellu Þórðardóttur
Sóleyjargötu 10, Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A-7
Landspítalanum Fossvogi.
Margrét Ármannsdóttir Þorvaldur Jónasson
Ármann Ármannsson Sigurbjörg Ragnarsdóttir
Þóra Emilía Ármannsdóttir
Ásmundur Ármannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Hólmfríður Björnsdóttir
Furugrund 32, Kópavogi,
lést mánudaginn 16. maí. Jarðsungið verður frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn 25. maí kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarsjóð L5
Landakoti, sími 543-9890.
Elsa Jóhanna Ólafsdóttir Rúnar Jónsson
Droplaug Ólafsdóttir
Þorsteinn Ólafsson Jóna Fanney Kristjánsdóttir
ömmu- og langömmubörn.