Fréttablaðið - 21.05.2011, Qupperneq 96
21. maí 2011 LAUGARDAGUR64
FÓTBOLTI „Ég tel það afar ólíklegt
að ég verði áfram,“ sagði Bjarni
Þór Viðarsson, leikmaður KV
Mechelen í Belgíu, í samtali við
Fréttablaðið í gær. „Það er nokkuð
ljóst að ég fer en það mun svo
skýrast á næstu dögum eða vikum
hvert.“
Bjarni segir að sér standi
ýmislegt í boða. „Það hafa einhver
félög í Belgíu og í næstefstu deild
í Englandi sýnt áhuga á mér. Það
sem er mikilvægast fyrir mig er
að velja rétt og því mun ég taka
mér tíma til að hugsa þessi mál
vandlega.“
Óhætt er að segja að árið hjá
Mechelen hafi verið Bjarna Þór
mikil vonbrigði enda samdi hann
við liðið til fjögurra ára fyrir
síðasta tímabil eftir að Mechelen
keypti hann frá Roeselari fyrir
dágóðan skilding.
„Ég spilaði nú bara 350 mínútur
allt tímabilið, sem er nú ekki neitt.
Ég vil því fara og ég tel að það
væri best fyrir mig og klúbbinn.
Það er ekki útlit fyrir að þjálfarinn
sé á förum, þar sem hann skrifaði
nýlega undir nýjan þriggja ára
samning.“
Þrátt fyrir það hversu lítið
Bjarni hefur spilað er það þjálf-
arinn sem ákvað að fá hann til
félagsins. Það kom því Bjarna á
óvart hversu fá tækifæri hann
fékk. „Það sem ég hef verið að
reyna að fá upp úr honum er hvort
hann hafi í raun vitað hvað hann
var að kaupa. Hann segist hafa
vitað það. Á endanum er það þjálf-
arinn sem ræður og því er þetta
erfið staða.“
Bjarni er leikjahæsti leikmað-
ur U-21 landsliðs Íslands frá upp-
hafi með 24 leiki. Hann er fyrir-
liði liðsins og mun því fara fyrir
sínum mönnum á EM í Danmörku
sem hefst eftir þrjár vikur í dag.
„Auðvitað væri það best að
ganga frá þessum málum áður en
mótið hefst en ég mun nýta tímann
fram að því að skoða hvaða mögu-
leikar mér standa til boða. Ef mér
líst ekki nógu vel á þá verð ég bara
rólegur enda á ég enn þrjú ár eftir
af samningi mínum í Belgíu – þó
svo að mér hugnist ekki að vera
áfram þar.“
Mechelen mun ekki sleppa
Bjarna án greiðslu. „Þeir geta þó
ekki farið fram á mikið fyrir leik-
mann sem þeir hafa lítið sem ekk-
ert notað,“ segir Bjarni, sem neit-
ar því ekki að undanfarið ár hefur
verið honum erfitt.
„Það hefur ekki verið rosalega
auðvelt, sérstaklega þar sem ég var
keyptur til liðsins fyrir ágætlega
stóra upphæð og er einn af launa-
hærri leikmönnum liðsins. En ég
er með gott fólk í kringum mig og
komst í gegnum þetta. Tímabilið
var þó frekar langt,“ sagði Bjarni.
„En það er bjart fram undan
og stutt í mótið í Danmörku. Ég
hlakka mikið til.“
eirikur@frettabladid.is
Bjarni vill losna
frá Mechelen
Bjarni Þór Viðarsson hefur ekki áhuga á því að vera
áfram á mála hjá belgíska félaginu Mechelen. Félög
bæði í Belgíu og Englandi hafa sýnt honum áhuga.
FYRIRLIÐINN Bjarni Þór Viðarsson er hér í frægum leik U-21 liðsins gegn Þýskalandi í
Kaplakrika. Bjarni er leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Keflvíkingum var ekki
spáð allt of góðu gengi fyrir tíma-
bilið en ef menn skoða söguna
undanfarin áratug ætti það ekki
að koma neinum á óvart að Kefla-
víkurliðið sé í öðru sæti eftir fjór-
ar umferðir í Pepsi-deild karla.
Keflavíkurliðið hefur aðeins
tapað 7 af 40 leikjum í fyrstu
fjórum umferðunum frá 2001,
hefur náð í 70 prósent stiga í boði
og hefur verið níu sinnum meðal
þriggja efstu liðanna á þessum
tímapunkti.
Eina árið sem Keflavíkurliðið
hefur ekki verið á topp þrjú eftir
fjórar umferðir var fyrir 2009
þegar það vann samt 3 af fyrstu 4
leikjum sínum. Keflavík var þá í
raun í 3. til 5. sæti en Stjarnan og
FH voru ofar, þar sem þau voru
með betri markatölu.
Keflvíkingar eru nú eina tap-
lausa lið deildarinnar ásamt topp-
liði KR en það gæti reyndar hafa
verið allt öðruvísi hefði KR-ing-
urinn Óskar Örn Hauksson ekki
jafnað leik liðanna á KR-vellinum
með umdeildu marki í uppbótar-
tíma.
- óój
Keflavík níu sinnum á topp þrjú eftir 4 leiki frá 2001:
Hafa byrjað mótið
vel í heilan áratug
TAPLAUSIR Keflvíkingar hafa ekki tapað
leik í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA
fiverholt i 2 • 270 Mosfellsbær • Sími 525 6700 • mos@mos.is • www.mos. is
Lágafellsskóli Mosfellsbæ
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi þar sem
einkunnarorðin SAMVERA, SAMVINNA OG SAMKENND eru höfð að leiðarljósi?
LÁGAFELLSSKÓLI VILL RÁÐA TIL STARFA:
Tónmenntakennara á
yngsta stig í 70% starfshlutfall
Á stiginu er m.a. lögð áhersla á hópkennslu í blokk-
flautuleik. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2011.
MENNTUNAR- OG HÆFNIKRÖFUR:
• Kennararéttindi
• Reynsla af tónmenntakennslu æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Forstöðumann Frístundasels
Lágafellsskóla í 80% starfshlutfall
Í frístundaselinu fer fram faglegt frístundastarf
fyrir nemendur yngsta stigs að hefðbundnum
skóladegi loknum. Starf forstöðumanns felur í sér
skipulag á faglegu starfi og daglegan rekstur, auk
samstarfs við foreldra, starfsfólk grunnskóla og
aðra aðila vegna íþrótta- og tómstundastarfs.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2011.
Um er að ræða hlutastörf og er vinnutími frá kl.13:00. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
og geta hafið störf 18. ágúst 2011.
Umsóknarfrestur um öll störfin er til og með 3. júní 2011
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttar-
félaga. Upplýsingar veita: Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 525 9200 / 896 8230 og Sesselja
Gunnarsdóttir, deildarstjóri yngsta stigs í síma 525 9200 / 899 7117. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist
á netföngin johannam@lagafellsskoli.is eða sesselja@lagafellsskoli.is.
MENNTUNAR- OG HÆFNIKRÖFUR:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Reynsla af stjórnun æskileg
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Frístundaleiðbeinendur
í 50% starfshlutfall
Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu
faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum
í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk
og starfsfólk grunnskóla.
HÆFNIKRÖFUR:
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Áhugi á að vinna með börnum
• Frumkvæði og sjálfstæði
• Góð færni í samskiptum
HANDBOLTI Landsliðsmarkvörðurinn Björg-
vin Páll Gústavsson átti stórleik í gærkvöldi
þegar Kadetten vann 26-23 sigur á Pfadi
Winterthur í öðrum úrslitaleik liðanna um
svissneska meistaratitilinn.
Kadetten er því komið í 2-0 í úrslitaein-
víginu og vantar aðeins einn sigur til við-
bótar til að verða svissneskur meistari
annað árið í röð.
Björgvin Páll fór mikinn í markinu og
varði meðal annars þrjú víti frá leik-
mönnum Pfadi Winterthur í leiknum.
Tvö af þessum vítum varði Björgvin
í upphafi leiksins og kveikti með því í
sínum mönnum.
Leikurinn í gærkvöldi fór fram á heimavelli
Winterthur en Kadetten vann 29-25 sigur í
fyrsta leik liðanna.
Björgvin Páll og félagar eiga möguleika á
því að verða tvöfaldir meistarar því þeir unnu
bikarinn fyrr á þessu tímabili. Þetta er síðasta
tímabil Björgvins með Kadetten Schaff hausen
en hann hefur samið við þýska félagið SC
Magdeburg.
Þriðji leikurinn fer fram á heimavelli
Kadetten næsta miðvikudag og þar má
búast við troðfullu húsi og svaka flottri
stemningu en íslenski landsliðsmark-
vörðurinn finnur sig jafnan vel við
slíkar aðstæður. - óój
Kadetten er aðeins einum sigri frá svissneska meistaratitlinum í handbolta:
Björgvin Páll varði þrjú vítaköst
Sæti Keflvíkinga eftir 4
umferðir frá 2001-2011:
2011 2. sæti - 8 stig 2010 1. sæti - 10 stig
2009 5. sæti - 9 stig 2008 1. sæti - 12 stig
2007 3. sæti - 7 stig 2006 2. sæti - 7 stig
2005 3. sæti - 7 stig 2004 3. sæti - 7 stig
2003 B-deild (2. sæti, 9 stig)
2002 2. sæti - 8 stig 2001 1. sæti - 9 stig