Fréttablaðið - 21.05.2011, Page 104
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
568 8000 | borgarleikhus.is
Ósóttar pantanir seldar daglega!
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
1 Ítalskur ferðamaður fundinn
2 Skólaárið verður tíu dögum
styttra
3 Fornleifafundur breytir sögu
Danmerkur
4 Dómsdagsspámaður dvelur
heima í dag
5 Ríkið sýknað af kröfu drengs
með heilalömun
6 Skýrslur í salt þegar ölvaðir
aka á staura
Ekkert kynbundið ofbeldi
Samtökin Blátt áfram hafa vakið
athygli á því að konur geti líka gerst
sekar um kynferðisbrot. Þetta hefur
vakið nokkra athygli. Meðal þeirra
sem staldra við málið er Jóhannes
Þ. Skúlason, aðstoðarmaður
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
formanns Framsóknarflokksins.
Hann tengir á fréttina á Facebook-
síðu sinni og skrifar: „Þess vegna á
hugtakið „kynbundið ofbeldi“ ekki
rétt á sér.“ Þetta er athyglisverð yfir-
lýsing hjá Jóhannesi, og
líklega mjög á skjön við
mat samtakanna sem
hann vitnar til. Það
er líka spurning hvort
konur í Framsóknar-
flokknum séu
sammála
honum.
Íslensk/kínversk
brúðkaupsferð
Þegar Vilhjálmur og Katrín, hertoga-
hjónin af Cambridge, skelltu sér í
brúðkaupsferð fóru þau á fjarlægar
slóðir, nánar tiltekið í Seychelles-
eyjaklasann. Þegar tvær skærustu
stjörnur kínversks kvikmyndaiðnað-
ar vildu fá ró og næði frá ágengum
kínverskum blaðamönnum í brúð-
kaupsferð sinni fóru þær til Íslands.
Leikstjórinn Wang Quan‘an, sem
hlaut silfurbjörninn í Berlín 2007,
og leikkonan Zhang Yuqi eyða
nefnilega hveitibrauðsdögunum
sínum hér á landi og hafa myndir
af þeim birst í kínverskum blöðum.
Þau hyggjast meðal annars leigja
sér þyrlu og skoða
landið úr lofti.
- sh, fgg