Fréttablaðið - 24.05.2011, Blaðsíða 28
24. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR20
Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
Kristgerðar
Kristinsdóttur
Hjallalandi 40, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á L-5 á Landakoti og
einnig til Heimahjúkrunar og Heimahlynningar.
Sigurjón Guðjónsson
Kristinn Sigurjónsson Kristín Aðalsteinsdóttir
Inga Sigurjónsdóttir Ísak V. Jóhannsson
Guðjón F. Sigurjónsson
Bjarni Sigurjónsson Rebekka Aðalsteinsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Rafn Hafnfjörð
Gunnlaugsson
Krókavaði 2, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 21. maí síð-
astliðinn. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 27. maí kl. 13.00.
Kristín Björg Jóhannsdóttir
Hjördís Hafnfjörð Rafnsdóttir Hjörtur Zakaríasson
Birna H. Rafnsdóttir Gunnar Örn
Kristjánsson
Hrafnhildur H. Rafnsdóttir Kristján Gunnarsson
Elín Þóra Rafnsdóttir
Þyri Rafnsdóttir Elvar Örn Unnsteinsson
Jóhann Hafnfjörð Rafnsson Lilja Kúld
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
afi og tengdafaðir,
Jens Jóhannesson
húsasmiður, Löngulínu 7, Garðabæ,
andaðist á líknardeild Landspítalans aðfaranótt
16. maí. Jarðarförin verður gerð frá Bústaðakirkju í
dag, þriðjudaginn 24. maí kl. 15.00.
Guðrún María Harðardóttir,
Jóhannes, Viktoría og Jenni,
barnabörn og tengdabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Unnar Guðbjargar
Jónsdóttur
Hvanneyrarbraut 42, Siglufirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar fyrir góða
umönnun.
Gottskálk Rögnvaldsson
Rögnvaldur Gottskálksson Auður B. Erlendsdóttir
Gunnar Gottskálksson Erla Ósk Hermannsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Gísla Benónýs
Kristjánssonar
fyrrv. skrifstofustjóra,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 13e á
Landspítalanum við Hringbraut fyrir frábæra umönn-
un og hlýju.
Sigurbjörg Jóhanna Þórðardóttir
Unnsteinn Þórður Gíslason
Magnús Gíslason
Kristján Gíslason Guðrún Benedikta Elíasdóttir
Gísli Örn Gíslason Birna Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
Ingveldur Kristjana
Þórarinsdóttir
Geirastöðum,
lést á sjúkrahúsinu í Bolungarvík 21. maí síðastliðinn.
Hreinn Ólafsson
Sigurður Ólafsson
Margrét Ólafsdóttir
tengdabörn, barnabörn og fjölskyldur.
Okkar ástkæra,
Laufey Ingibjartsdóttir,
frá Akranesi, Hörðalandi 2, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 17. maí sl.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 27. maí
kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Stofnaður hefur verið reikningur í Landsbankanum á
Akranesi til styrktar sonum hennar, tvíburunum Júlíusi
og Jóel, sem eru 5 ára. Reikningsnúmerið er:
0186-05-570562. Kt. 050642-4299.
Júlíus og Jóel Duranona.
Ingibjartur Þórjónsson Kristín Magnúsdóttir
Ásta Ingibjartsdóttir
Eva Morgan Maurin
Þórdís Ingibjartsdóttir
Vera Kristín Jónasdóttir
Embla Rún Sigurðardóttir
Sigurður Þór Mýrdal Gunnarsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og
útför ástkærs föður okkar, tengdaföður,
afa, langafa og langalangafa,
Sigurðar Sturlusonar
frá Þverdal, Aðalvík,
Faxabraut 13-15, Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hjúkrunarheimilisins Hlévangs fyrir einstaka
umönnun og hlýju.
Kolbrún Sigurðardóttir
Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir
Hansína Sigurðardóttir Pétur Jónsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Stjórn Menningarsjóðs Visa hefur úthlutað átta styrkj-
um til menningar-, líknar- og velferðarmála. Að þessu
sinni hlutu eftirtaldir styrk úr sjóðnum: Félag áhugafólks
um íþróttir aldraðra, til að gefa út afmælis- og fræðslu-
rit félagsins. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, til frek-
ari uppbyggingar stofnunarinnar. Umsjónarfélag ein-
hverfra, til að standa straum af kostnaði við unglingastarf
félagsins. Leikhópurinn Vesturport, til að efla starfsemi
leikhópsins. Geirþrúður Á. Guðjónsdóttir, til að stunda
meistaranám í fiðluleik við Hartt School of Music í Hart-
ford í Connecticut. Jóhann Nardeau, til að stunda BA-nám
í trompetleik við Parísarkonservatoríið. Matthías I. Sig-
urðsson, til að stunda BA-nám í klarinettuleik við Con-
servatorium van Amsterdam og Sigríður Sunna Reynis-
dóttir, til að stunda nám í leikbrúðulist við Central School
of Speech and Drama í London.
Á nýlegum hluthafafundi var ákveðið að breyta nafni
sjóðsins í Samfélagssjóð Valitor og mun sjóðurinn bera
nýtt nafn eftirleiðis. Frá upphafi hafa verið veittir 124
styrkir til einstaklinga og samtaka og framvegis er stefnt
að því að úthluta úr sjóðnum tvisvar á ári.
Átta hlutu styrk úr menningarsjóði
STYRKÞEGAR Við afhendingu styrkjanna á dögunum.
Rimaskóli hefur undanfarin ár náð
einstökum árangri á sviði skákíþrótt-
arinnar og árið 2011 hafa skáklið skól-
ans náð merkilegum áfanga. „Í ár
náði skólinn árangri sem enginn skóli
hefur áður náð, að sigra á öllum grunn-
skólamótum sem haldin voru í vetur
og á það jafnt við um aðallið skólans
svo og stúlknaflokkinn einan og sér,“
segir Helgi Árnason, skólastjóri Rima-
skóla, en skáklið skólans sigruðu bæði
á Reykjavíkurmóti og Íslandsmóti auk
þess sem Rimaskóli er Norðurlanda-
meistari frá því í haust.
„Skólinn hefur allt frá 2003, þegar
hann varð Íslandsmeistari barna-
skólasveita, náð að halda úti öflugum
skáksveitum. Við höfum þannig náð að
vera ávallt í fremsta flokki og áhug-
inn og árangurinn hefur aldrei dottið
niður eins og stundum vill verða þegar
þeir bestu útskrifast. Hér hefur hver
afreksmaðurinn tekið við af öðrum og
hver afrekssveitin af annarri,“ lýsir
Helgi ánægður.
En hverju þakkar hann þennan
árangur? „Það þarf vissulega gott
skipulag og áhuga frá skólastjórnend-
um. Við stofnuðum skákdeild Fjölnis í
kringum afrekskrakkana í skólanum
árið 2004 og hefur öflugt starf þeirr-
ar deildar haldist í hendur við árangur
Rimaskólakrakkanna,“ svarar Helgi.
Hann segir starf deildarinnar fjöl-
breytt, foreldrar komi að því auk þess
sem krakkar sem útskrifist vilji oft á
tíðum halda áfram í starfinu. „Útskrif-
aðir nemar eru nú aðalþjálfarar krakk-
anna,“ segir Helgi en auk þess fá börn-
in kennslu hjá Skákskóla Íslands og
Skákakademíu Reykjavíkur.
Helgi segir áhugann á skákinni smit-
andi. „Skákmót skólans eru mjög fjöl-
menn og mjög vinsælt að bekkir haldi
skákmót innbyrðis og milli bekkja,“
lýsir hann glaðlega. „Það hafa lang-
flestir áhuga og allir vilja í það
minnsta kunna mannganginn,“ segir
Helgi og telur að skákin geri krökkum
margt gott. „Skákin eflir rökhugsun
og það er mjög ánægjulegt að verða
vitni að því þegar krakkar sem greinst
hafa með ofvirkni og athyglisbrest ná
góðum tökum á skákinni og ná að halda
einbeitingu og athygli.“
Rimaskóli leggur sitt af mörkum til
að viðhalda skákáhuganum. Boðið hefur
verið upp á kennslu á skólatíma fyrir
nemendur í 1. til 6. bekk. Þá fékk skól-
inn þróunarstyrk til að halda skáknám-
skeið á haustmánuðum fyrir foreldra
og nemendur yngstu barna. Helgi horf-
ir fram á bjarta tíma í skákíþróttinni.
„Við munum taka þátt í tveimur Norður-
landamótum í haust, annars vegar Norð-
urlandamóti barnaskólasveita og hins
vegar grunnskólasveita,“ segir hann
ánægður enda fágætt að sami skóli sé
sendur á bæði mótin. - sg
Metárangur Rimaskóla í skák
SIGURSÆL SKÁKSVEIT A-sveit Rimaskóla vann Reykjavíkurmótið með yfirburðum
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR