Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 4
4. júní 2011 LAUGARDAGUR4 RANNSÓKNIR Fornleifarannsóknir á mannvistarleifum í Höfnum á Reykjanesi benda til þess að þar sé fundinn skáli sem hafi verið byggður talsvert fyrir hið hefð- bundna landnám undir lok níundu aldar. Fornleifafræðingur telur að í skálanum felist nánari skýring á ástæðum þess að landnáms- menn settust að á Íslandi. Byggðasafn Reykjanes- bæjar og Forn- leifafræði- stofan standa að rannsókn- um við Kirkju- vogskirkju, sem hófust árið 2009. Þá var um það bil fjórðungur skálans graf- inn upp og benti margt til þess að um merkilegan fund hafi verið að ræða, segir dr. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur í samtali við Fréttablaðið en hann stýrir rann- sókninni. „Þegar skáli finnst á Íslandi er að öllu jöfnu gengið út frá því að þar sé um venjulegan bóndabæ að ræða en þá verða að vera fleiri byggingar í næsta nágrenni, líkt og fjós, smiðja, búr og skemmur og þess háttar. Þrátt fyrir mjög ítar- lega leit, bæði með jarðsjá, prufu- holum og loftmyndum, finnast engin önnur hús í næsta nágrenni við skálann og þá veltir maður því fyrir sér hverslags byggingu er um að ræða.“ Bjarni bætir því við að niður- stöður kolefnisaldursgreiningar gefi nú til kynna að skálinn hafi verið yfirgefinn á árabilinu 770 til 880, sem gefi tilefni til að áætla að hann hafi verið byggður fyrir hið „sagnfræðilega landnám“ sem er jafnan miðað við árið 874. „Mín vinnukenning er sú að um sé að ræða útstöð frá Norður- Evrópu, Skandinavíu eða bresku eyjunum, þar sem menn komu hingað í þeim erindagjörðum að nýta sér þær auðlindir sem hér var að finna, til dæmis bjargfugl og egg, fisk, hvalreka, og ekki síst rostungstennur.“ Bjarni segir þetta kollvarpa hefðbundnum skýringum á land- námi Íslands. „Þannig hefur búseta á Íslandi þróast úr því að vera útstöð hluta úr árinu yfir að endanlegu land- námi. Það kemur í stað þess að ímynda sér síðhærðan, reiðan kóng í Noregi sem rak höfðingja í burtu til Íslands. Það er hreinasti tilbúningur og rómantísering á upphafi okkar, til að réttlæta Íslendinga sem hluta af efri stétt Skandinava.“ Bjarni bætir við að þó að ljóst sé að gamlar „kreddukenningar“ um upphaf Íslandsbyggðar séu fallnar að hans mati, eigi aðrar kenningar erfitt með að rata inn í sögubækur vegna hinnar eðlislægu íhaldssemi sagnahyggjunnar. Rannsóknum í Höfnum er þó ekki að öllu lokið þar sem nú stend- ur yfir uppgröftur á miðhluta skál- ans og lokahnykkurinn verður næsta sumar. thorgils@frettabladid.is GENGIÐ 03.06.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,5515 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,07 114,61 186,07 186,97 165,23 166,15 22,159 22,289 21,174 21,298 18,357 18,465 1,4153 1,4235 182,89 183,97 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Ný sýn á upphaf landnáms Fornleifarannsóknir í Höfnum á Reykjanesi gefa til kynna að menn hafi vanið komur sínar til Íslands fyrir árið 870 og nýtt sér gæði landsins hluta úr ári. Fornleifafræðingur segir fyrri kenningar þegar vera fallnar. BJARNI F. EINARSSON MERKUR FUNDUR Fornleifafræðingurinn Bjarni F. Einarsson telur skálann í Höfnum benda til þess að þróun landnáms hafi verið með öðrum hætti en sögubækur segja til um. MYND/BJARNI F. EINARSSON Þegar skáli finnst á Íslandi er að öllu jöfnu gengið út frá því að þar sé um venjulegan bóndabæ að ræða en þá verða að vera fleiri byggingar í næsta nágrenni. DR. BJARNI F. EINARSSON FORNLEIFAFRÆÐINGUR DÓMSMÁL Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir ganga út fyrir allan þjófabálk hvernig farið hafi verið með Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætis- ráðherra, í málsmeðferð saksókn- ara Alþingis. Ummælin féllu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. „Þá hófst vegferðin á því að ákæra var gefin út án sakamála- rannsóknar. Sakborningurinn fékk síðan ekki skipaðan verjanda fyrr en seint og um síðir. Innan- ríkisráðherra lagði síðan fram frumvarp um breytingar á máls- meðferðarreglum eftir að ákæra hafði verið gefin út. Og nú síðast hefur saksóknari Alþingis ákveð- ið að opna vefsíðu til þess að halda saman sjónarmiðum sínum og málsskjölum,“ sagði Bjarni. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sagði málsmeðferðina hafa tekið allt of langan tíma þótt gera mætti ráð fyrir því að unnið hefði verið í samræmi við lög og reglur. Þá sagðist hún ekki telja það athugunarefni, að óathuguðu máli, að opnuð væri vefsíða um málið. Hins vegar væri sjálfsagt að sjónarmiðum sakbornings væri einnig haldið til haga á síðunni. Málið gegn Geir Haarde verður þingfest fyrir landsdómi næsta þriðjudag. - mþl Forsætisráðherra segir málið hafa tekið of langan tíma: Bjarni gagnrýnir landsdómsmeðferð BJARNI BENEDIKTSSON JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 26° 27° 23° 28° 23° 20° 20° 21° 21° 25° 26° 33° 22° 24° 15° 20° Á MORGUN 8-13 m/s síðdegis. MÁNUDAGUR 5-10 m/s. 10 10 10 10 10 15 5 9 8 9 127 9 3 5 6 9 8 9 10 8 5 7 8 8 8 15 10 6 8 7 12 BJART OG MILT Dagurinn í dag verður sólríkur á Suðaustur- og Austurlandi í hægum vindi og hitinn ætti að ná þar 16°C. Varla hægt að tala um sumarbíðu í öðrum landshlutum en þetta verður að teljast ágætt vorveður. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður FERÐAMÁL Rúmlega 37 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá Íslandi um Leifsstöð í maímánuði. Er það einhver mesti fjöldi ferða- manna sem heimsótt hefur landið í mánuðinum. Þetta kemur fram í tölum frá Ferðamálastofu. Ferðamönnum hefur fjölgað um 31,5 síðan í fyrra en maímánuður var sérstaklega slæmur þá vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Af einstaka þjóðum voru Bandaríkjamenn, Norðmenn, Danir, Bretar, Þjóðverjar og Svíar fjölmennastir. - mþl Stefnir í gott ferðasumar: Ferðamenn fjöl- menntu í maí BLÁA LÓNIÐ Nóg verður að gera í Bláa lóninu í sumar ef fram fer sem horfir með ferðamannastraum. STJÓRNSÝSLA Stjórn Landssam- bands eldri borgara mótmælir harðlega þeim áformum ríkis- stjórnarninnar að skattleggja lífeyrissjóðina um 1,7 milljarða króna. Þetta kemur fram í ályktun frá sambandinu. „Þetta er bein aðför að eldri borgurum og öryrkjum þar sem það hlýtur að skerða kjör þeirra þegar ráðstöfunarfé lífeyrissjóð- anna er skert sem þessu nemur,“ segir stjórnin. Skorað er á Alþingi að samþykkja ekki ákvæðið í fyrirliggjandi frumvarpi. - sv Mótmæla skattlagningu: Bein aðför að eldri borgurum ÞÝSKALAND Lögreglan í Þýska- landi ætlar á næstunni að beita nýstárlegum aðferðum við að leita uppi lík á víðavangi. Dýra- þjálfarar eru nú að þjálfa þrjá hrægamma til að leita að líkum. Hrægammarnir hafa fengið nöfnin Sherlock, Miss Marple og Columbo, eftir frægum persónum bókmenntanna, að því er fram kemur á vef BBC. Þjálfarar þeirra telja að þeir muni nýtast betur en hundar þar sem þeir komist hraðar yfir leit á stórum svæðum. Gagnrýnend- ur óttast hins vegar að þeir gætu gætt sér á völdum bitum af þeim líkum sem þeir kunni að finna. - bj Ný aðferð við leit að líkum: Lögreglan þjálf- ar hrægamma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.