Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 66
4. júní 2011 LAUGARDAGUR38 timamot@frettabladid.is Tveir menn voru hætt komnir þegar hafnsögubát hvolfdi við björgunar- störf utan við Sandgerði fyrir réttum tveimur árum. Björgun þeirra tókst giftusamlega. Hafnsögubáturinn hafði verið tengdur landfestum togarans Sóleyjar Sigurjóns sem varðskipið Týr var að draga af strandstað í innsiglingunni í Sandgerðishöfn. Búið var að toga í um klukkutíma þegar hið 1300 tonna skip losnaði allt í einu. Við það fór hafnsögubáturinn á hliðina og sökk og var skipstjóri hans inni í stýrishús- inu neðansjávar í allt að tvær mín- útur. Hinn hafnsögumaðurinn um borð var á dekki og fór beint í sjóinn. Hann var kominn í bát björgunar- félagsins Sigurvonar innan við hálfri mínútu síðar. ÞETTA GERÐIST: 4. JÚNÍ 2009 Hafnsögubát hvolfdi við Sandgerði AFMÆLI ANNA ÓLAFSDÓTTIR BJÖRNSSON, tölvunar- og sagnfræðingur, er 59 ára. ÁRNI MAGNÚSSON, fyrrverandi ráðherra, er 46 ára. „Krakkarnir eru með krapvél og öll höfum við pantað sól svo þeir sem vilji geti farið í heita pottinn,“ segir Erla Ruth Harðardóttir leikkona en hún og eiginmaður hennar eru með nánustu ættingja og vini í árbít í til- efni fimmtugsamæla. Hennar afmæli er í dag en Jakobs var í mars. „Eftir klukkan 14 geta svo gestirnir farið að sinna sínum helgarstörfum,“ segir Erla Ruth glaðlega. „Eða taka þátt í dagskrá bæjarhátíðarinnar Bjartra daga hér í Hafnarfirði.“ Erla Ruth kveðst borinn og barn- fæddur Reykvíkingur. „Ég ólst upp í Litlagerði sem er í Bústaðahverfinu. Þar voru kindur og hestar í bakgarð- inum því konan í næsta húsi var með smábúskap. Ég fékk lánaða andarunga hjá henni og hafði hjá mér yfir nótt í dúkkukörfu. Hún hét Ingibjörg þessi kona og var dásamleg,“ segir hún og rifjar upp fleiri atriði úr æsku sinni, svo sem byggingu Bústaðakirkju, sem hún kveðst hafa tekið þátt í eins og öll börnin í hverfinu. „Við naglhreinsuð- um spýtur og sinntum fleiri smáverk- um. Það var bara gaman,“ segir Erla Ruth, sem var í Landakotsskóla frá sex ára aldri til tólf. „Mamma keyrði mig í byrjun og svo tók ég strætó en kveið því stundum að „gamli strætó“ væri á ferð, því ég náði ekki upp í bjöllurnar í loftinu heldur varð að biðja einhvern annan að dingla svo hann stoppaði á Túngötunni. En Landakotsskóli var góð uppeldisstöð. Þar var agi og það hvarfl- aði ekki að manni að svíkjast um eða óhlýðnast reglum. Seinna fór ég í Rétt- arholtsskólann og þær stúlkur sem ég kynntist þar eru bestu vinkonur mínar í dag. Ég er trygglynd, held í vini mína og held í manninn minn. Við Jakob erum búin að vera saman frá því við vorum sautján ára og við eigum þrjá stráka, eina stelpu og einn hund. Ef ég finn eitthvað sem mér líkar þá sleppi ég því ekki!“ Eftir stúdentspróf frá Verslunarskól- anum lá leið Erlu Ruthar í leiklistar- nám í Bretlandi. „Ég valdi Guildford. Þar hefur fjöldi Íslendinga farið í gegn síðan, en ég var sá fyrsti og í byrjun eini útlendingurinn í skólanum. Þaðan útskrifaðist ég 1987 og var komin með umboðsmann úti sem ætlaði held ég að gera mig að annarri Ingrid Bergman en fékk ekki atvinnuleyfi nema giftast inn í landið. Ég gat auðvitað gifst ein- hverjum homma þarna, þeir voru meira en til í það svo ég gæti orðið fræg, ég var bara ekki alveg að fíla það og ekki maðurinn minn heldur! En svo fékk ég árssamning hjá Leikfélagi Akureyrar, síðan lék ég með leikhópum og í Þjóð- leikhúsinu og líka í fyrsta verkinu sem sett var upp á litla sviði Borgarleik- hússins, Ljósi heimsins. Ég var meðal þeirra sem gengu fylktu liði í búning- um frá Iðnó upp í Borgarleikhús. Það var mikill heiður.“ Margir muna eftir Erlu Ruth úr Spaugstofunni sem hún tók þátt í einn vetur ásamt Lindu Ásgeirsdóttur en síðustu ár hefur Sönglist, söng-og leik- listarskóli fyrir börn, átt hug hennar og hjarta. Hann stofnaði hún árið 1998 ásamt vinkonu sinni og meðeiganda, Ragnheiði Hall. Nú er hann starfrækt- ur á tveimur stöðum, í Borgarleikhús- inu og í Borgartúni 1. „Við vorum bara tvær í byrjun og lögðum á okkur mikla vinnu,“ segir Erla Ruth. „En nú höfum við bætt við okkur mannskap enda hefur skólinn stækkað ört.“ gun@frettabladid.is ERLA RUTH HARÐARDÓTTIR LEIKKONA: ER FIMMTUG Í DAG Held í vini mína og eiginmann AFMÆLISBARN DAGSINS „Landakotsskóli var góð uppeldisstöð. Þar var agi og það hvarflaði ekki að manni að svíkjast um eða óhlýðnast reglum,“ segir Erla Ruth. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON PÁLL SKÚLASON, fyrrverandi háskólarektor, er 66 ára. „Viskunnar er hvergi meiri þörf en í málefnum ástarinnar.“66 Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, Jón Trausti Jónsson Njarðargötu 7, Reykjanesbæ, lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnudaginn 29. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 6. júní kl. 14.00. Hrefna Steinunn Kristjánsdóttir Páll Janus Jónsson Jón Kristbjörn Jónsson Elísabet Stefánsdóttir Katrín Líney Jónsdóttir Ólafur Halldórsson Halldór Traustason Eydís Þórsdóttir Eiríkur K. Þorbjörnsson Svanhildur Þengilsdóttir Hulda María Þorbjörnsdóttir Bergþór Sigfússon Kristbjörn Þór Þorbjörnsson Guðríður Ingvarsdóttir Birna Rut Þorbjörnsdóttir Sverrir Þorgeirsson Ágúst Þ. Þorbjörnsson Ragnhildur Geirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sverrir Ragnar Bjarnason lést á hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn 28. maí. Útförin verður gerð frá Háteigskirkju fimmtudaginn 9. júní kl. 13.00. Guðrún Sverrisdóttir Bjarni Sverrisson Hanna María Oddsteinsdóttir Árni Sverrisson Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir Hrólfur Jónsson Gunnar Sverrisson Karen Bergsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gíslína Magnúsdóttir Höfðagrund 11, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness 29. maí síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju 7. júní kl. 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili Akranesi. Magnús Ólason Þóra Másdóttir Hlöðver Örn Ólason Sigríður K. Óladóttir Þórður Sveinsson Valentínus Ólason Halldóra Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Örn Vilmundsson lést þann 29. maí á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Útför hans fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Kristín G. Arnardóttir Kristófer Jóhannesson Sigurjón G. Arnarson Ásta L. Jónsdóttir Árný Ösp Arnardóttir Gísli Guðmundsson og barnabörn. Hjartkær eiginmaður minn og bróðir okkar, Ágúst Björnsson prentari, Fellsmúla 19, Reykjavík, sem lést 29. maí sl., verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 7. júní kl. 13.00. Þeir sem vildu minnast hans eru vinsamlega beðnir að láta Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík njóta þess. Þrúður Márusdóttir Margrét Björnsdóttir Björn Olsen Innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna fráfalls elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigurbjargar Gísladóttur Margrét Friðbergsdóttir Bergþór Halldórsson Högni Bergþórsson Sigurbjörg H. Bergþórsdóttir Karl Sæberg Jónsson Halldóra Bergþórsdóttir Gestur Svavarsson og barnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.