Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 36
2 fjölskyldan Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Viðar Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Gunnar V. Andrésson Pennar: Gunnþóra Gunnarsdóttir, Júlía Margrét Alexandersdóttir og Ragnheiður Tryggvadóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Þegar börnin eru fleiri en eitt í fjölskyldu er freistandi að spara bæði tíma og fyrirhöfn, að ekki sé minnst á orku, með því að sameina ýmislegt. Svo sem baðferðir, lestrarstundir, útivist og afmælisveislur, eins ósanngjarnt og það hljómar. Börnin mín eru einmitt tvö, fædd í apríl og maí. Aldursmunurinn er þó þrjú ár og auk þess eru þau hvort af sínu kyni. Til að byrja með ætlaði ég því alls ekki að falla í þessa gryfju. Einstaklings- eðli hvors um sig fengi að blómstra enda taldi ég mig fullfæra um að sjá til þess. Búna viljastyrk og þolin mæði til að halda uppi þeim reglum, skipulagi og aga sem þyrfti til að þau fengju sitt persónulega rými. Þessu var svo sem ekki flókið að framfylgja þegar barnið var bara eitt. En svo urðu þau tvö, og viljastyrkurinn og þolinmæðin gáfu sig merkilega hratt. Frelsi barnanna til að blómstra sem einstak- lingar á eigin forsendum vék fyrir hagræðingu en aðallega andlegum orkusparnaði, móðurinni til handa. Þegar drengurinn var ungbarn var hann baðaður í bala og systir hans hafði baðkarið út af fyrir sig. Baðferðirnar voru hennar bestu stundir og ég sá ekki fyrir mér að taka þær af henni. Drengurinn yrði jafnframt að fá sínar eigin skvettustundir í baðkarinu, ég myndi baða þau hvort í sínu lagi svo þau gætu notið frelsisins með nóg pláss. Ég gafst þó fljótlega upp á daglegum baðferðum og umstanginu sem þeim fylgdi. Þegar drengurinn hafði náð þeim áfanga að geta setið einn var honum skellt í baðkar- ið með systur sinni. Þar með voru gæðabaðstundir hvors þeirra úti . Nú slást þau með þvottastykkj- unum og kvarta yfir plássfrekju hvors annars. Hins vegar þarf ég ekki að þurrka upp baðherbergisgólfið nema annan hvern dag. Vegna hagræðingar og tímasparnaðar voru lestrar stundirnar einnig sameinaðar í eina og hafðar strax eftir sameig- inlega baðið. Litli bróðir þarf því stundum að láta sér lynda sögu sem hann ekki skilur, og stóra systir að láta sér leiðast yfir smábarnalegum harðspjaldabók- um. Þetta sparar mér þó talsverða orku að kvöldi dags, sérstaklega eftir skvettumikla baðdaga. Afmælisdagur hvers einstaklings er mikilvægur og hann ætti hver að fá að eiga fyrir sig, eða hvað? Þar sem stutt er á milli afmælisdaga barnanna minna var þó bara haldin ein veisla þetta árið. Auðvitað er ég með nagandi samviskubit yfir því að allar þessar hagræðingar og sameiningar skerði einstaklingsþroska barnanna. Það slær þó á sam- viskubitið þegar systkinin bresta skyndilega saman í einróma söng, mitt í öllum skvettuganginum í baðinu. Ólöf Gunnlaugsdóttir er fjórtán ára og fer í níunda bekk í Réttarholts-skóla í haust. Hún æfir handbolta með Víkingi á veturna og finnst skemmtilegt að fara í sund með vin- konum sínum og spjalla. En þegar skóla lýkur á vorin er hún rokin upp í sveit til afa síns og ömmu, í Húsagarði í Lands- sveit í Rangárvalla sýslu. „Ég hef farið til ömmu og afa síðan ég man eftir mér og er nánast allt sumarið í sveitinni,“ segir Ólöf. „Ég fór líka næst- um hverja helgi í vor, í sauðburðinn,“ bætir hún við en sjálf á hún eina á sem hún kallar Rassmínu Reyknefs. Amma hennar og afi, Ólafur Andrés- son og Ólafía Sveinsdóttir, búa með 200 kindur og nokkra hesta. Ólöf er mikil hestastelpa og fer í útreiðartúra hvenær sem tækifæri gefst, „Ég á hest í sveit- inni sem heitir Blekking og við förum á hverju ári í hestaferð í Landmannahelli. Það er mjög gaman.“ Ólöf gengur í öll störf á bænum og þegar hún er spurð hvað sé skemmti- legast við að vera í sveitinni segir hún „allt!“. „Það er bara alltaf mikið að gera í sveitinni og ekkert verið að hanga inni í tölvunni. Bara drífa sig út að gera eitt- hvað. Mér finnst bara gaman að hjálpa til við allt og fer oft með afa að girða en hann er girðingaverktaki. Svo er allt- af rosalega gaman að fara í réttirnar á haustin.“ En saknar Ólöf vin kvennanna í bænum þegar hún fer í sveitina? „Kannski smá, en frændsystkini mín, sem eru á sama aldri og ég, koma líka í sveitina og það er alltaf nóg að gera.“ Ætlar Ólöf þá að verða bóndi þegar hún verður stór? „Nei, ég held ekki. Ég veit ekki alveg hvað ég vil verða.“ - rat Er í sveitinni öll sumur Vist í sveit þótti sjálfsagt mál hér á árum áður. Í dag er ekki eins algengt að krakkar kynnist sveitalífinu af eigin raun nema þeir sem eru svo heppnir að eiga þar afa og ömmu. Á fáki fráum Ólöf bregður á leik með frænku sinni Ragn- heiði Katrínu, sem er einnig mikið í sveitinni hjá ömmu og afa. Þær eru báðar miklar hestastelpur. Sæt lömb í sveitinni „Ég fór líka næstum hverja helgi í vor, í sauðburðinn,“ segir Ólöf. Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Ólöf og Blekking Ólöf Gunnlaugsdóttir hefur farið á hverju sumri síðan hún man eftir sér í sveitina til afa og ömmu í Húsagarði. Þar fer hún á hestbak hvenær sem tækifæri gefst. MYND/ÚR EINKASAFNI Glatt á hjalla Ólöf ásamt fríðu föru- neyti á leið inn á Landmannaafrétt að sækja fé. Orkusparnaður Leynileikhúsið verður með tvö námskeið í sumar, leiklistarnámskeið og söngleikjanámskeið sem fara fram í Tjarnarbíói og í Norðurpólnum á Seltjarnar- nesi. Á því fyrrnefnda verða kennd grunnatriði í leiklist í gegnum leiki og æfingar og í sumar munu hóparnir fara út og sækja innblástur í mannlífið og náttúruna. Hvert námskeið er viku- langt, hálfan dag í senn, og kennsla er í höndum lærðra leikara. Dans og söngur verður í fyrirrúmi á sönglistarnámskeið- inu, en að þessu sinni er Selma Björnsdóttir aðalkennari. Nánari upplýsingar á slóðinni www.leynileikhusid.is og í síma 864-9373. Leikur og gleði í fyrirrúmi nýtt skapandi og krefjandi nám til stúdentsprófs Sjónlistadeild myndlist - hönnun - arkitektúr umsóknarfrestur 8. júní UMSÓKN myndlistaskolinn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.