Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 12
12 4. júní 2011 LAUGARDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
A
ðeins liðlega hálft prósent bílaflota landsmanna geng-
ur fyrir öðru eldsneyti en bensíni og dísilolíu eða rétt
rúmlega eitt þúsund bílar.
Þar af er meira en helmingurinn svokallaðir tvinn-
bílar sem knúnir eru bæði bensíni og rafmagni, því
næst koma metanbílar sem ýmist ganga eingöngu fyrir metani
eða bæði fyrir metani og bensíni. Þá eru ótaldir sextán vetnis-
bílar og tíu rafmagnsbílar.
Þessar tölur gefa vissulega ekki beinlínis tilefni til bjartsýni
um vistvæðingu orkunnar sem
samgöngutæki okkar ganga
fyrir. Þó eru teikn á lofti um að
undirbúningsvinna undangeng-
inna ára sé að skila einhverjum
árangri á þessu sviði.
Fyrir nokkrum vikum var frá
því greint hér í Fréttablaðinu
að Fyrirtækið Metanorka
stefndi að því að setja hér á
fót metanorkuver í samstarfi við Stjörnugrís. Í orkuverinu yrði
úrgangur frá svínabúinu að Melum í Melasveit nýttur til fram-
leiðslu á metangasi, úrgangur sem að öðrum kosti nýtist ekki og
er í raun heldur til trafala. Framleiðslugeta búsins á að vera næg
til að uppfylla ársnotkun eitt þúsund meðalstórra fjölskyldubíla.
Í þessari viku var greint frá öðru verkefni þar sem unnið er
að sama markmiði, að draga úr notkun óendurnýjanlegrar orku
til að knýja samgöngutæki. Verið er að reisa metanólverksmiðju
á Reykjanesi á vegum nýsköpunarfyrirtækisins Carbon Recycl-
ing International en á vegum þess fyrirtækis hefur verið þróuð
aðferð til að framleiða vistvænt eldsneyti. Í verksmiðjunni á
að vinna metanól úr gufum sem fást úr túrbínum orkuversins
í Svartsengi. Metanólinu á að blanda í bensín, fyrst í stað í svo
litlu magni að hægt verður að nota blönduna á venjulegar bílvélar.
Hugsanlegt er að að blandan komi á markað strax í haust.
Það er meira en að segja það að bylta orkunotkun bílaflotans.
Til þess að hægt sé að skipta um um orkugjafa þarf nýja orkan
að vera aðgengileg og hver áfylling verður að geta knúið farar-
tækið hundruð kílómetra. Til þess að hagkvæmt sé að setja upp
áfyllingarstöðvar nýrrar orku þarf aftur nokkurn fjölda bíla sem
gengur fyrir orkunni.
Þarna liggur ákveðin hindrun. Svo virðist þó sem við fær-
umst hægum skrefum nær því að vistvæn, eða í það minnsta
vistvænni, orka verði aðgengilegur valkostur. Í þessari þróun
þurfa neytendur líka að átta sig á því hvað er í húfi og taka nýju
orkunni opnum örmum.
Verkefnið er brýnt. Svo mikið er víst. Þar sem fátt fólk býr á
stóru landsvæði er ljóst að alltaf mun þurfa að nota mikla orku
í samgöngur. Þess vegna er afar brýnt að þróa nýja valkosti í
eldsneytismálum. Hvort tveggja skiptir þar máli, að þróa val-
kost sem er umhverfinu vinsamlegri en sú óendurnýjanlega og
umhverfisspillandi orka sem við notum nú, og hitt að ná að fram-
leiða hér eldsneyti sem þegar upp er staðið verður ódýrari val-
kostur en innflutt olía og bensín því eftir því sem á þær birgðir
gengur mun verðið hækka og svo halda áfram að hækka.
SKOÐUN
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is
SPOTTIÐ
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
Pólitísk réttarhöld eru þekkt í sögunni. Mynd þeirra er margvísleg. Eitt eiga þau þó sameiginlegt. Það er smán-
arbletturinn sem þau setja á þær
þjóðir sem hlut eiga að máli. Fyrstu
pólitísku réttarhöld íslenska lýð-
veldisins hefjast í næstu viku. Það
eru réttarhöld Steingríms Jóhanns
Sigfússonar fjármálaráðherra og
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra gegn Geir Haarde.
Sérstakur saksóknari Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
og Samfylkingarinnar hefur þegar
opnað vefsíðu á kostnað skattborg-
aranna til þess að koma málstað
flokkanna sem að ákærunni standa
á fra m fær i .
Það er nýmæli
í íslenskri rétt-
arsögu en um
leið rökrétt birt-
ingarmynd póli-
tískra réttar-
halda.
Sá sem einn
sætir ákæru
vegna pólitískr-
ar stöðu sinnar
á að sjálfsögðu ekki aðgang að pen-
ingum skattborgaranna til að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri í
þeim átökum sem boðuð eru með
opnun ákærusíðunnar. Frjáls fram-
lög þeirra sem trúa á réttarríkið
verða að sama skapi mikilvægari
í þessari málsvarnarbaráttu. Aug-
ljóst er að ríkisvaldið ætlar ekki
að spara peninga skattborgaranna
fyrir ákærumálstað þeirra flokka
sem reka málið.
Í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis segir afdráttarlaust að
ekki hafi verið unnt að koma í veg
fyrir fall bankanna eftir 2006.
Flokkar Steingríms Jóhanns Sigfús-
sonar fjármálaráðherra og Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra
ákváðu hins vegar að ákæra Geir
Haarde einan úr hópi þeirra sem
pólitíska ábyrgð báru árið 2008
fyrir að hafa ekki gert það sem
rannsóknarnefndin taldi ógerlegt.
Gerska ævintýrið í nýrri útgáfu
ÞORSTEINN
PÁLSSON
Niðurstöður rannsóknar-nefndarinnar verða hvorki sannaðar né afsannaðar með vís-
indalegum aðferðum eða laga-
rökum. Sama er um mat fyrrver-
andi forsætisráðherra á aðstæðum
árið 2008. Kjarni málsins er sá
að réttarhöldin snúast um mat á
aðstæðum sem menn axla pólitíska
ábyrgð á í lýðræðisríkjum en eru
fundnir sekir fyrir þar sem önnur
gildi eru æðri.
Réttarhöld Stalíns gegn Búk-
harín á ofanverðum fjórða ára-
tug síðustu aldar eru þekkt dæmi
um pólitískan málarekstur. Þeim
verður alls ekki í einu og öllu
jafnað til þeirra réttarhalda sem
hefjast í næstu viku, af þeirri
ástæðu að þar markaði dauðinn
endalokin. Þau réttarhöld spunn-
ust þó inn í íslensk stjórnmálaátök
og íslenskar bókmenntir enda var
Halldór Laxness viðstaddur.
Hann skrifar um þau í Gerska
ævintýrinu og segir: „Sú lifandi
mynd baráttunnar milli pólitískra
höfuðafla … er svo skyld náttúru-
öflunum sjálfum að atriði eins og
siðferðileg eða lögfræðileg „sekt“
samsærismannanna, eða sú pers-
ónulega refsíng sem beið þeirra,
verða í raunréttri smámunir
sem ekki freista til kappræðu.
Þegar svo djarft er teflt um örlög
170 miljón manna, og raunar als
heimsins, einsog blökkin gerði, þá
fara ræður um „sekt“ að fá býsna
smáborgaralegan hljóm, sömu-
leiðis býsnanir útaf réttlátum eða
ránglátum aftökum.“ Þetta við-
horf endurspeglaðist á Alþingi við
lokaafgreiðslu ákærumálsins gegn
Geir Haarde meira en sjö áratug-
um síðar. Þá höfðu runnið tvær
grímur á nokkra stjórnarþing-
menn. Af því tilefni flutti formað-
ur ákærunefndarinnar lokaræðu
með þeirri brýningu að stjórnar-
þingmönnum væri skylt að greiða
atkvæði með ákæru því að um
málið hefði verið samið í stjórn-
arsáttmála. Með öðrum orðum:
Smáborgaralegar hugsanir um
sekt eða réttlæti í nútíma réttar-
skilningi hlutu að víkja fyrir æðri
gildum eins og stjórnarsáttmála
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs og Samfylkingarinnar.
Býsnanir út af ranglæti
Aldarfjórðungi eftir útkomu Gerska ævin-týrisins skrifaði Hall-dór Laxness Skálda-
tíma. Þar birtast réttarhöldin í
öðru ljósi: Sakborningarnir voru
þvældir endalaust af yfirsaksókn-
ara ríkisins, sakaðir um heims-
sögulega en að sama skapi þoku-
kennda glæpi.
Síðan segir Halldór Laxness:
„Þegar höfuðandskotinn Búkhar-
ín var afþveginn sökum nú fyrir
skemstu, eftir að hafa verið dauð-
ur í tuttugu og fimm ár, þá var
sagt í hinu dauflega orðaða upp-
reisíngarskjali æru hans að hann
hefði ekki gert sig sekan um neinn
glæp, heldur aðeins haft skoðun
á stjórnmálum smávegis öðruvísi
en einhverjir aðrir menn.“
Erfitt er að gera sér ímynd af
Íslandi án Skáldatíma. Þó má
ganga út frá því sem vísu að
Ísland væri snauðara í andlegum
efnum ef hann hefði aldrei orðið
til. Halldór Laxness er svo sam-
ofinn þjóðinni að Skáldatími var
nauðsynlegur fyrir samvisku
hennar.
Þegar saksóknari Steingríms
Jóhanns Sigfússonar og Jóhönnu
Sigurðardóttur hefur málarekstur
sinn í næstu viku eru liðin fjöru-
tíu og átta ár frá útkomu Skálda-
tíma. Því er ástæða til að spyrja:
Lýtur Ísland forystu fólks sem
ekki meðtók það sem þar er skrif-
að? Eða er Skáldatími úr sögunni?
Er Skáldatími úr sögunni?
TILBOÐ Á HÁRSNYRTIVÖRUM
25% AFSLÁTTUR
...til 20. júní
MARIA NILA - I CARE
Frábærar hársnyrtivörur á mjög góðu verði.
Sjampó fyrir daglega notkun, sjampó sem gefur meiri fyllingu, sjampó fyrir
li a r, susjampó, n ring, djúpn ring, rsprey og rfo a.
Sölustaðir eru m.a.: Lyfja, Lyfjaver, Lyfjaval, Árbæjarapótek,
Reykjavíkurapótek, Laugarnesapótek, Apótek Vesturlands
Umhverfisvænt eldsneyti skiptir sköpum
fyrir umhverfið og efnahaginn.
Nýir valkostir