Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 86
4. júní 2011 LAUGARDAGUR58
sport@frettabladid.is
DAGUR SIGURÐSSON verður ekki arftaki Heiner Brand með þýska landsliðið í handknattleik. Það var staðfest
í gær og Dagur mun því halda áfram að þjálfa Fuchse Berlin. „Framkvæmdastjóri Berlin vildi binda enda á þessar
vangaveltur. Þýska sambandið lagði aldrei fram tilboð í mig og ég þurfti því ekki að taka ákvörðun,” sagði Dagur.
FÓTBOLTI Það var létt yfir Morten
Olsen, landsliðsþjálfara Dana, á
blaðamannafundi danska lands-
liðsins í gær. Danir gera kröfu um
þrjú stig í leiknum í kvöld en Olsen
varar við því að verkefnið sé ekki
auðvelt.
„Við berum virðingu fyrir
íslenska liðinu og vitum að það
er alltaf erfitt að spila gegn því.
Í liðið eru komnir góðir, ungir og
teknískir leikmenn og fyrir eru
reyndari og sterkir leikmenn. Það
er því góð blanda í þessu íslenska
liði,“ sagði Olsen en hann sagð-
ist samt ekki vita hversu marga
af ungu leikmönnunum Ólafur
Jóhannesson, landsliðsþjálfari
Íslands, myndi nota.
„Það eru þarna strákar eins og
Gylfi Sigurðsson og Kolbeinn Sig-
þórsson sem eru vanir að spila
fyrir framan fulla leikvanga af
fólki. Það þarf að hafa gætur
á leikmönnum íslenska liðsins.
Markmiðið er samt klárt og það
er að fara með þrjú stig heim frá
Íslandi.“ - hbg
Landsliðsþjálfari Dana ber virðingu fyrir Íslandi:
Góð blanda ungra og
reyndra leikmanna
MORTEN OLSEN Gerir sér grein fyrir því
að það þarf að hafa fyrir sigri á íslenska
landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Stefán Logi
Birkir Már Kristján Örn Hermann Bjarni Ólafur
Aron Einar Ólafur Ingi
Eiður Smári
Heiðar
Gylfi Þór Kolbeinn
Sörensen
S. Poulsen Svensson Kjær Jacobsen
C. Poulsen Kvist
Eriksen
Bendtner
Krohn Dahl Rommedahl
Líkleg byrjunarlið
Danmörk
Ísland
Ísland-Danmörk í tölum
21 landsleikur
0 sigrar
4 jafntefli
20 ár frá síðasta jafntefli
69 dönsk mörk
13 íslensk mörk
10 leikur liðanna á Laugardalsvelli
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Stál og plast þakrennur
Allir fylgihlutir fáanlegir
Frábært
verð!
Mánudagurinn 6. júní.
Þriðjudagurinn 7. júní.
Víkingur R. - Fylkir kl.19.15
Víkingsvöllur
Stjarnan - Grindavík kl.19.15
Stjörnuvöllur
KR - FH kl.19.15
KR-völlur
Breiðablik - Fram kl.19.15
Kópavogsvöllur
Þór - ÍBV kl.19.15
Þórsvöllur
FÓTBOLTI Ísland mætir í dag Dan-
mörku í 22. sinn. Karlalandsliðið
í knattspyrnu hefur aldrei unnið
sigur á Dönum sem er „stóra grýl-
an“ í íslenskri knattspyrnu. En
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálf-
ari hefur það á tilfinningunni að
nú gæti sú bið verið á enda.
„Auðvitað viljum við vinna
Dani mest af öllum,“ sagði Ólafur.
„Og við mætum til leiks með það
hugarfar að við ætlum okkur
sigur.“
Ólafur tilkynnti í gær að Stefán
Logi Magnússon myndi verja mark
Íslands en hann hélt hreinu í leikn-
um gegn Kýpur í mars. Þeir Rúrik
Gíslason og Indriði Sigurðsson eru
meiddir og spila ekki með í dag.
Þegar liðin mættust ytra í haust
unnu Danir 1-0 sigur með ódýru
marki í lok leiksins. Það hefur verið
saga Íslands undanfarin ár – ágæt
spilamennska en árangurinn lítill
og stigin sérstaklega fá. Ísland er
bara með eitt stig í undankeppni
EM 2012 eftir fjóra leiki.
Ólafur vill að liðið þori að
færa sig upp og láta reyna á
sóknarleikinn. „Við höfum þurft að
liggja til baka í okkar leikjum en
hér heima verðum við að þora að
sækja. Við munum fara með liðið
framar á völlinn,“ sagði þjálfarinn.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að við munum ekki pressa Dani í
90 mínútur en það er mikilvægt að
byrja vel. Þeir eru pínu hræddir
við okkur og við verðum að nýta
okkur það – láta aðeins finna fyrir
okkur.“
Ólafur segir að hann muni
leggja leikinn upp á svipaðan
máta og hann gerði fyrir leikinn
á Parken í haust. „Við spiluðum
góðan varnarleik síðast og ætlum
að sinna honum vel nú. Ég á einnig
von á því að Danirnir verði svip-
aðir enda nánast með sama liðið
auk þess sem þeir hafa spilað eins
undanfarinn áratug.“
Hermann Hreiðarsson lands-
liðsfyrirliði segir að leikmenn séu
ekki mikið að velta fyrir sér sögu-
legum staðreyndum.
„Það eina sem við vitum er að
það er kominn tími til að vinna þá,
eins og svo oft áður. Miðað við síð-
asta leik teljum við það alls ekki
fjarstæðukennt,“ sagði Hermann.
„Við viljum fá stig enda búnir að
spila fínan bolta. Það er hundfúlt
að vera með bara eitt stig í riðlin-
um og við verðum einfaldlega að
nýta okkur heimavöllinn og taka
stig.“ eirikur@frettabladid.is
Danirnir eru pínu hræddir
Ólafur Jóhannesson er bjartsýnn á að Ísland geti á morgun lagt Dani að velli í
fyrsta sinn í sögunni. Stefán Logi Magnússon heldur stöðu sinni í byrjunarlið-
inu en þeir Rúrik Gíslason og Indriði Sigurðsson eru báðir frá vegna meiðsla.
LÍTUR TIL VEÐURS Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í eldlínunni gegn
Dönum í dag. Hér er hann á landsliðsæfingu í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI