Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 22
4. júní 2011 LAUGARDAGUR22 A llt við þessa þætti hefur verið ævin- týri líkast og við- tök u r na r h a fa verið ótrúlegar,“ segir Þórunn Ant- onía Magnúsdóttir þegar hún tyllir sér niður með blaðamanni á kaffihúsi steinsnar frá heimili hennar í austurborginni. Vikunni eyddi Þórunn mestmegnis við vinnslu lokaþáttar annarrar seríu gamanþáttaraðarinnar Steindans okkar sem sýnd er á Stöð 2, en á þeim vettvangi bregður Þór- unn sér í allra kvikinda líki ef svo má segja. Fyrir utan að leika og syngja hefur hún frá upphafi hoppað inn í flest þau störf sem inna þarf af hendi til að slík dag- skrárgerð geti orðið að veruleika. „Þetta vatt bara upp á sig,“ útskýrir Þórunn. „Fyrst voru Steindi Jr. og Ágúst Bent [leik- stjóri og kærasti Þórunnar] með örstutta þætti á Skjá Einum og þá þurfti ég vera ljósamaður, halda á hljóðnemanum og fleira. Svo þegar þurfti að breyta Steinda í Kiefer Sutherland fór ég að taka þátt í förðun og gervum og svo var ég bara plötuð í öll kvenhlut- verkin líka,“ segir hún og bætir við að þótt fjölgað hafi í starfslið- inu með tímanum séu þættirnir ennþá hálfgert fjölskylduverkefni, þar sem flestir aukaleikararnir séu annað hvort skyldir eða æva- gamlir vinir. Þórunn segist ekki víla fyrir sér að ganga í öll nauðsynleg störf í hverju verkefni fyrir sig. „Mér finnst þetta ekkert tiltöku- mál, enda er andinn alltaf góður á tökustað. Miðvikudagurinn var til dæmis mjög fyndinn dagur, því þá þurfti ég að hjóla í rigningunni á allar bensínstöðvar í bænum í leit að ákveðinni tegund af trekt. Ég er ekki með bílpróf, því ég flutti til London átján ára og þar keyr- ir enginn heldur labbar fólk eða tekur strætó og lestir. Ég ætla að taka bílprófið einn góðan veður- dag því ég er viss um að ég verði frábær bílstjóri. En þangað til finnst mér bara gaman að hjóla út um allt.“ Lofar almennum hressleika Þótt Þórunn Antonía hafi þvælst fyrir hálfgerða tilviljun inn í dag- skrárgerð fyrir sjónvarp verður eitthvert framhald á enn um sinn. Í haust hefur göngu sína á föstu- dagskvöldum á Stöð 2, þar sem Auddi og Sveppi hafa ráðið ríkjum síðustu ár, nýr þáttur sem Þórunn sér um ásamt Birni Braga Arnars- syni. Aðspurð segir Þórunn að þátt- urinn, sem hefur ekki enn hlotið nafn, verði almennur skemmti- þáttur og þessa dagana vinni þau Björn Bragi að beinagrind. „Þetta er eins og með fyrstu fjóra mán- uði meðgöngu. Við viljum ekki segja of mikið og leggja álög á þáttinn. Sveppi og Auddi hafa staðið sig frábærlega, en við vilj- um fara í aðrar áttir. Við lofum þó miklum skemmtilegheitum og almennum hressleika með músík, gríni og fleiru. Ég þekki Björn Braga vel, hann er mjög fyndinn og syngur líka eins og engill, og hver veit nema við smellum í einn dúett í þættinum.“ Flutti til London átján ára Þórunn Antonía býr yfir mikilli reynslu í skemmtanabransan- um þrátt fyrir ungan aldur. Hún ólst upp úti á Granda og eftir að hafa klárað sína dæmigerðu ung- lingauppreisn, eins og hún orðar það, gaf hún út sína fyrstu sóló- plötu aðeins sautján ára gömul árið 2002. Plötuna, Those Little Things, gerði Þórunn í samvinnu við föður sinn, tónlistarmanninn Magnús Þór Sigmundsson. Áður hafði hún lært heilmikið um tón- listarsköpun og -iðnaðinn af föður sínum, eytt löngum stundum í hljóðverum og meðal annars sungið með íslensku hipphopp- sveitinni The Faculty inn á plötu. Eins og áður sagði fluttist söngkonan svo til London á eigin vegum einungis átján ára gömul, „hæfilega kærulaus og staðráðin í að láta að mér kveða,“ eins og hún segir. Hlutirnir gerast hratt í heimsborginni og áður en hún vissi af voru liðin heil sjö ár. Í millitíðinni hafði Þórunn sungið með hljómsveitunum The Honeymoon, Fields og The- newno2, sem allar náðu töluverð- um árangri. Forsprakki síðast- nefndu sveitarinnar er Dhani Harrison, sonur Bítilsins George heitins, og syngur Þórunn enn með sveitinni af og til þegar mikið liggur við. Einnig var hún um hríð bakraddasöngkona hjá hinum vin- sælu dönsku stuðboltum í Junior Senior og kom meðal annars fram með sveitinni í tveimur af helstu tónlistarþáttum Bretlands á þeim tíma, Top of the Pops og Later with Jools Holland. Þórunn minnist þessara ára með hlýju. Þá vann hún einnig með sænskættaða tónlistargúrú- inum Beck og segir það hafa verið frábæra upplifun. „Auðvitað var þetta stórkost- legt. Ég fékk að ferðast um allan heim, syngja á öllum helstu stöð- unum og tónleikahátíðunum eins og Glastonbury, Reading, Coachella og Hróarskeldu, svo dæmi séu tekin. Ég hef ákveðið að bíða með að skrifa ævisöguna fram til fimmtugs, en ég á sko til sögur. Það get ég sagt þér,“ segir hún og hlær. Amy Winehouse vond með víni Með því eftirminnilegra en jafn- framt ógeðfelldara sem Þórunn Antonía tók sér fyrir hendur meðan á dvöl hennar í útlöndum stóð var að starfa fyrir umboðs- mann bresku hljómsveitarinnar Babyshambles. Söngvari þeirrar sveitar, Pete Doherty, er víðfræg- ur fyrir allt annað en heilsusam- legt líferni og fágaða framkomu. „Mér bauðst þessi vinna í milli- bilsástandi og tók henni, en sá eig- inlega strax eftir því,“ rifjar Þór- unn upp. „Þetta var ógeðslegt. Pete Doherty var eins og lítið, sturlað barn. Reykjandi krakk fyrir framan mig og ég veit ekki hvað, sem mér finnst ekki töff og kúl. Í fyrsta skipti sem ég hitti hann var hann að væflast um heima hjá umboðsmanninum, ber að ofan og blindfullur með viskí- flösku. Ég var að tala í símann og hann hrifsaði símann af mér og hljóp út. Vinur minn hljóp á eftir honum og skipaði honum að skila símanum, en þá tók hann gítar- inn sinn og smallaði honum á fínu eikarborði. Þá var mér nóg boðið. Ég húðskammaði hann bara og sagði honum að láta ekki eins og smákrakki, rétti honum sóp og hann baðst afsökunar og byrjaði að sópa. Ég hætti í þessari vinnu skömmu síðar,“ segir Þórunn og bætir við að hún hafi einnig haft persónuleg kynni af öðrum fræg- um fíkli, söngkonunni Amy Wine- house, um svipað leyti. „Ég þekkti Amy áður en hún varð fræg og hún var yndisleg stelpa en hrútleiðinleg með víni. Þegar fólk nær ákveðnum frægð- arstalli eru bara hýenur í kring- um það og engir vinir. Breska pressan elskar dópista og hvetur þá til dáða til þess eins að geta rifið þá niður.“ Ný plata með Berndsen í haust Hún viðurkennir þó að London get verið grá borg og þung. Þegar Þórunn flutti heim fyrir rúmum tveimur árum var kominn leiði í hana, sem endurspeglaðist líka í tónlistarsköpuninni. „Lögin sem ég samdi á þess- um tíma voru dálítið þunglynd- isleg, sem passar illa við minn persónuleika. Svo hafði ég varla tíma til að sinna tónlistinni að ráði þangað til ég hitti tónlist- armanninn og upptökustjórann Davíð Berndsen, sem er snill- ingur,“ segir Þórunn, en hún og Berndsen, eins og hann kallar sig opinberlega, hafa síðustu mánuði unnið saman að nýrri plötu sem kemur út í haust. Þegar hafa tvö lög af plötunni, For Your Love og Out of Touch, heyrst í útvarpi og notið vinsælda. „Þetta samstarf okkar er rosa- lega skemmtilegt. Vinkona mín lýsti lögunum sem samblandi af Stevie Nicks úr Fleetwood Mac og Kylie Minogue, sem mér finnst frábær samlíking. Það skiptir mig miklu meira máli að ganga vel með tónlistina mína hérna heima en úti í löndum. Hér finn ég fyrir því að margir eru stoltir af mér og það er allt önnur tilfinning.“ Spurð hvort „útlandameikið“ sé búið segir Þórunn svo ekki endilega vera. „Ég held öllu opnu. Líf mitt hefur verið óútreiknan- legt hingað til og verður þann- ig áfram. Mér líður vel á Íslandi núna og veit ekkert hvað gerist á morgun.“ Varð bálskotin í Bent Þórunn kynntist unnusta sínum, leikstjóranum Ágústi Bent, skömmu eftir að hún flutti til Íslands frá London, en hann hafði gert það gott sem rappari í Rott- weilerhundunum. Hún segist kunna vel við að starfa svo náið með Bent á hverjum degi. „Ég missti af Rottweiler-æðinu en vissi samt hverjir þeir voru. Við Bent hittumst fyrst á rólóvelli í Árbænum þegar ég var þrettán ára. Ég man reyndar ekkert eftir því, en finnst voðalega sætt að hann skuli muna eftir því,“ segir Þórunn og hlær. „Svo þegar við hittumst aftur varð ég alveg bálskotin í honum. Ég er rosalega stolt og ánægð með hann. Hann er töffari á yfirborð- inu, en undir niðri leynist nörd og snillingur,“ segir Þórunn Antonía að lokum. Þetta var ógeðslegt. Pete Doherty var eins og lítið, sturlað barn. Reykjandi krakk fyrir framan mig og ég veit ekki hvað, sem mér finnst ekki töff og kúl. Veit ekkert hvað gerist á morgun Söngkonan, leikkonan og þúsundþjalasmiðurinn Þórunn Antonía Magnúsdóttir flutti til London átján ára gömul, bjó í sjö ár í heimsborginni og hefur haft í mörg horn að líta síðan hún kom heim til Íslands. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá starfi sínu við dagskrárgerð í sjónvarpi, flakkinu um heiminn, krakkreykjandi Pete Doherty og væntanlegri plötu með haustinu. FERILLINN „Það skiptir mig miklu meira máli að ganga vel með tónlistina mína hérna heima en úti í löndum. Hér finn ég fyrir því að margir eru stoltir af mér og það er allt önnur tilfinning,“ segir Þórunn Antonía, sem vinnur nú að plötu í samstarfi við Davíð Berndsen. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.