Fréttablaðið - 04.06.2011, Síða 22
4. júní 2011 LAUGARDAGUR22
A
llt við þessa þætti
hefur verið ævin-
týri líkast og við-
tök u r na r h a fa
verið ótrúlegar,“
segir Þórunn Ant-
onía Magnúsdóttir þegar hún
tyllir sér niður með blaðamanni
á kaffihúsi steinsnar frá heimili
hennar í austurborginni. Vikunni
eyddi Þórunn mestmegnis við
vinnslu lokaþáttar annarrar seríu
gamanþáttaraðarinnar Steindans
okkar sem sýnd er á Stöð 2, en
á þeim vettvangi bregður Þór-
unn sér í allra kvikinda líki ef
svo má segja. Fyrir utan að leika
og syngja hefur hún frá upphafi
hoppað inn í flest þau störf sem
inna þarf af hendi til að slík dag-
skrárgerð geti orðið að veruleika.
„Þetta vatt bara upp á sig,“
útskýrir Þórunn. „Fyrst voru
Steindi Jr. og Ágúst Bent [leik-
stjóri og kærasti Þórunnar] með
örstutta þætti á Skjá Einum og þá
þurfti ég vera ljósamaður, halda
á hljóðnemanum og fleira. Svo
þegar þurfti að breyta Steinda í
Kiefer Sutherland fór ég að taka
þátt í förðun og gervum og svo
var ég bara plötuð í öll kvenhlut-
verkin líka,“ segir hún og bætir
við að þótt fjölgað hafi í starfslið-
inu með tímanum séu þættirnir
ennþá hálfgert fjölskylduverkefni,
þar sem flestir aukaleikararnir
séu annað hvort skyldir eða æva-
gamlir vinir.
Þórunn segist ekki víla fyrir
sér að ganga í öll nauðsynleg
störf í hverju verkefni fyrir sig.
„Mér finnst þetta ekkert tiltöku-
mál, enda er andinn alltaf góður á
tökustað. Miðvikudagurinn var til
dæmis mjög fyndinn dagur, því þá
þurfti ég að hjóla í rigningunni á
allar bensínstöðvar í bænum í leit
að ákveðinni tegund af trekt. Ég
er ekki með bílpróf, því ég flutti
til London átján ára og þar keyr-
ir enginn heldur labbar fólk eða
tekur strætó og lestir. Ég ætla að
taka bílprófið einn góðan veður-
dag því ég er viss um að ég verði
frábær bílstjóri. En þangað til
finnst mér bara gaman að hjóla
út um allt.“
Lofar almennum hressleika
Þótt Þórunn Antonía hafi þvælst
fyrir hálfgerða tilviljun inn í dag-
skrárgerð fyrir sjónvarp verður
eitthvert framhald á enn um sinn.
Í haust hefur göngu sína á föstu-
dagskvöldum á Stöð 2, þar sem
Auddi og Sveppi hafa ráðið ríkjum
síðustu ár, nýr þáttur sem Þórunn
sér um ásamt Birni Braga Arnars-
syni.
Aðspurð segir Þórunn að þátt-
urinn, sem hefur ekki enn hlotið
nafn, verði almennur skemmti-
þáttur og þessa dagana vinni þau
Björn Bragi að beinagrind. „Þetta
er eins og með fyrstu fjóra mán-
uði meðgöngu. Við viljum ekki
segja of mikið og leggja álög á
þáttinn. Sveppi og Auddi hafa
staðið sig frábærlega, en við vilj-
um fara í aðrar áttir. Við lofum
þó miklum skemmtilegheitum og
almennum hressleika með músík,
gríni og fleiru. Ég þekki Björn
Braga vel, hann er mjög fyndinn
og syngur líka eins og engill, og
hver veit nema við smellum í einn
dúett í þættinum.“
Flutti til London átján ára
Þórunn Antonía býr yfir mikilli
reynslu í skemmtanabransan-
um þrátt fyrir ungan aldur. Hún
ólst upp úti á Granda og eftir að
hafa klárað sína dæmigerðu ung-
lingauppreisn, eins og hún orðar
það, gaf hún út sína fyrstu sóló-
plötu aðeins sautján ára gömul
árið 2002. Plötuna, Those Little
Things, gerði Þórunn í samvinnu
við föður sinn, tónlistarmanninn
Magnús Þór Sigmundsson. Áður
hafði hún lært heilmikið um tón-
listarsköpun og -iðnaðinn af föður
sínum, eytt löngum stundum
í hljóðverum og meðal annars
sungið með íslensku hipphopp-
sveitinni The Faculty inn á plötu.
Eins og áður sagði fluttist
söngkonan svo til London á eigin
vegum einungis átján ára gömul,
„hæfilega kærulaus og staðráðin
í að láta að mér kveða,“ eins og
hún segir. Hlutirnir gerast hratt
í heimsborginni og áður en hún
vissi af voru liðin heil sjö ár.
Í millitíðinni hafði Þórunn
sungið með hljómsveitunum
The Honeymoon, Fields og The-
newno2, sem allar náðu töluverð-
um árangri. Forsprakki síðast-
nefndu sveitarinnar er Dhani
Harrison, sonur Bítilsins George
heitins, og syngur Þórunn enn
með sveitinni af og til þegar mikið
liggur við. Einnig var hún um hríð
bakraddasöngkona hjá hinum vin-
sælu dönsku stuðboltum í Junior
Senior og kom meðal annars fram
með sveitinni í tveimur af helstu
tónlistarþáttum Bretlands á þeim
tíma, Top of the Pops og Later
with Jools Holland.
Þórunn minnist þessara ára
með hlýju. Þá vann hún einnig
með sænskættaða tónlistargúrú-
inum Beck og segir það hafa verið
frábæra upplifun.
„Auðvitað var þetta stórkost-
legt. Ég fékk að ferðast um allan
heim, syngja á öllum helstu stöð-
unum og tónleikahátíðunum
eins og Glastonbury, Reading,
Coachella og Hróarskeldu, svo
dæmi séu tekin. Ég hef ákveðið
að bíða með að skrifa ævisöguna
fram til fimmtugs, en ég á sko til
sögur. Það get ég sagt þér,“ segir
hún og hlær.
Amy Winehouse vond með víni
Með því eftirminnilegra en jafn-
framt ógeðfelldara sem Þórunn
Antonía tók sér fyrir hendur
meðan á dvöl hennar í útlöndum
stóð var að starfa fyrir umboðs-
mann bresku hljómsveitarinnar
Babyshambles. Söngvari þeirrar
sveitar, Pete Doherty, er víðfræg-
ur fyrir allt annað en heilsusam-
legt líferni og fágaða framkomu.
„Mér bauðst þessi vinna í milli-
bilsástandi og tók henni, en sá eig-
inlega strax eftir því,“ rifjar Þór-
unn upp. „Þetta var ógeðslegt.
Pete Doherty var eins og lítið,
sturlað barn. Reykjandi krakk
fyrir framan mig og ég veit ekki
hvað, sem mér finnst ekki töff og
kúl. Í fyrsta skipti sem ég hitti
hann var hann að væflast um
heima hjá umboðsmanninum, ber
að ofan og blindfullur með viskí-
flösku. Ég var að tala í símann og
hann hrifsaði símann af mér og
hljóp út. Vinur minn hljóp á eftir
honum og skipaði honum að skila
símanum, en þá tók hann gítar-
inn sinn og smallaði honum á
fínu eikarborði. Þá var mér nóg
boðið. Ég húðskammaði hann bara
og sagði honum að láta ekki eins
og smákrakki, rétti honum sóp og
hann baðst afsökunar og byrjaði
að sópa. Ég hætti í þessari vinnu
skömmu síðar,“ segir Þórunn og
bætir við að hún hafi einnig haft
persónuleg kynni af öðrum fræg-
um fíkli, söngkonunni Amy Wine-
house, um svipað leyti.
„Ég þekkti Amy áður en hún
varð fræg og hún var yndisleg
stelpa en hrútleiðinleg með víni.
Þegar fólk nær ákveðnum frægð-
arstalli eru bara hýenur í kring-
um það og engir vinir. Breska
pressan elskar dópista og hvetur
þá til dáða til þess eins að geta
rifið þá niður.“
Ný plata með Berndsen í haust
Hún viðurkennir þó að London
get verið grá borg og þung. Þegar
Þórunn flutti heim fyrir rúmum
tveimur árum var kominn leiði í
hana, sem endurspeglaðist líka í
tónlistarsköpuninni.
„Lögin sem ég samdi á þess-
um tíma voru dálítið þunglynd-
isleg, sem passar illa við minn
persónuleika. Svo hafði ég varla
tíma til að sinna tónlistinni að
ráði þangað til ég hitti tónlist-
armanninn og upptökustjórann
Davíð Berndsen, sem er snill-
ingur,“ segir Þórunn, en hún og
Berndsen, eins og hann kallar sig
opinberlega, hafa síðustu mánuði
unnið saman að nýrri plötu sem
kemur út í haust. Þegar hafa tvö
lög af plötunni, For Your Love og
Out of Touch, heyrst í útvarpi og
notið vinsælda.
„Þetta samstarf okkar er rosa-
lega skemmtilegt. Vinkona mín
lýsti lögunum sem samblandi af
Stevie Nicks úr Fleetwood Mac
og Kylie Minogue, sem mér finnst
frábær samlíking. Það skiptir mig
miklu meira máli að ganga vel
með tónlistina mína hérna heima
en úti í löndum. Hér finn ég fyrir
því að margir eru stoltir af mér og
það er allt önnur tilfinning.“
Spurð hvort „útlandameikið“
sé búið segir Þórunn svo ekki
endilega vera. „Ég held öllu opnu.
Líf mitt hefur verið óútreiknan-
legt hingað til og verður þann-
ig áfram. Mér líður vel á Íslandi
núna og veit ekkert hvað gerist á
morgun.“
Varð bálskotin í Bent
Þórunn kynntist unnusta sínum,
leikstjóranum Ágústi Bent,
skömmu eftir að hún flutti til
Íslands frá London, en hann hafði
gert það gott sem rappari í Rott-
weilerhundunum. Hún segist
kunna vel við að starfa svo náið
með Bent á hverjum degi.
„Ég missti af Rottweiler-æðinu
en vissi samt hverjir þeir voru.
Við Bent hittumst fyrst á rólóvelli
í Árbænum þegar ég var þrettán
ára. Ég man reyndar ekkert eftir
því, en finnst voðalega sætt að
hann skuli muna eftir því,“ segir
Þórunn og hlær.
„Svo þegar við hittumst aftur
varð ég alveg bálskotin í honum.
Ég er rosalega stolt og ánægð með
hann. Hann er töffari á yfirborð-
inu, en undir niðri leynist nörd og
snillingur,“ segir Þórunn Antonía
að lokum.
Þetta var ógeðslegt. Pete Doherty var eins og lítið, sturlað
barn. Reykjandi krakk fyrir framan mig og ég veit ekki
hvað, sem mér finnst ekki töff og kúl.
Veit ekkert hvað gerist á morgun
Söngkonan, leikkonan og þúsundþjalasmiðurinn Þórunn Antonía Magnúsdóttir flutti til London átján ára gömul, bjó í sjö ár í
heimsborginni og hefur haft í mörg horn að líta síðan hún kom heim til Íslands. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá starfi sínu
við dagskrárgerð í sjónvarpi, flakkinu um heiminn, krakkreykjandi Pete Doherty og væntanlegri plötu með haustinu.
FERILLINN „Það skiptir mig miklu meira máli að ganga vel með tónlistina mína hérna heima en úti í löndum. Hér finn ég fyrir því
að margir eru stoltir af mér og það er allt önnur tilfinning,“ segir Þórunn Antonía, sem vinnur nú að plötu í samstarfi við Davíð
Berndsen. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI