Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 30
4. júní 2011 LAUGARDAGUR30
E
ins og kemur fram
í heimildarmynd-
inni Blikkinu var
Melavöllurinn aðal-
samkomustaðurinn
í Reykjavík. Það var
lítið annað um að vera á þessum
tíma og þarna hittust allir, spjöll-
uðu saman og fylgdust með íþrótt-
um. Þangað var líka farið á 17.
júní og fleira í þeim dúr. Þetta var
aðalstaðurinn,“ segir kvikmynda-
gerðarmaðurinn Kári G. Schram,
sem forsýnir nýja heimildar-
mynd sína um sögu Melavallarins,
Blikkið, á heimildarmyndahátíð-
inni Skjaldborg á Patreksfirði um
næstu helgi.
Fann marga fjársjóði í geymslu
Ekki er um formlega frumsýningu
að ræða á Skjaldborgarhátíðinni,
því Kári er enn á síðustu metrun-
um að ljúka við vinnslu heimildar-
myndarinnar.
„Aðstandendum Skjaldborgar
þótti áhugavert að sýna myndina
á hátíðinni og það er mjög gaman.
Þetta er skemmtileg hátíð sem
einbeitir sér að betri heimildar-
myndum,“ segir Kári og bætir
við að gerð Blikksins sé það langt
komin að hægt sé að sýna hana
fólki og fá viðbrögð svo vel sé.
Önnur forsýning verður á mynd-
inni í tilefni aldarafmælis vígslu
Melavallarins hinn 11. júní næst-
komandi og formleg frumsýning
fer síðan fram snemma í haust.
Blikkið, sem gerð er í samvinnu
við Íþróttabandalag Reykjavík-
ur (ÍBR), skiptist í tvo hluta sem
hvor um sig er 45 mínútur að
lengd og spannar sögu vallarins
frá upphaflegu vígslunni fyrir
hundrað árum og allt þar til hann
var rifinn niður árið 1987. Í milli-
tíðinni, árið 1926, hafði nánast öll
girðingin í kringum völlinn fokið
í ofsaveðri og þá var ákveðið að
gera nýjan og betur útbúinn völl
á sama stað.
Sjálfur hefur Kári gerð fjölda
heimildarmynda á ferilskránni.
Má þar nefna Willta Vestfirði,
sem fjallar um náttúru, mann-
líf og matargerð á Vestfjörðum,
Villta veislu, þar sem íslensk
matargerð og kræsingar í náttúru
Íslands eru kannaðar, og Fyrstu
ferðina, sögu landafundanna, auk
margra fleiri. Í gegnum starf sitt
sem kvikmyndagerðarmaður seg-
ist Kári alltaf annað slagið hafa
séð upptökur af íþróttaviðburðum
á kvikmyndasöfnum og víðar, og
vissi því að töluvert var til af efni
frá gamla Melavellinum.
„Það kom mér hins vegar á
óvart hversu mikla fjársjóði ég
fann við vinnslu myndarinnar,“
segir hann. „Ég byrjaði á því að
ræða við um fimmtíu manns sem
höfðu verið mikið á vellinum,
jafnvel keppt á honum, og fékk að
heyra sögurnar af því sem þar átti
sér stað. Svo tók við um fjögurra
ára ferill sem fór í að finna mynd-
efni og safna saman. Ég komst
fljótlega að því að á sínum tíma
var nánast enginn staður í Reykja-
vík, og jafnvel á landinu öllu, sem
var jafn mikið myndaður og Mela-
völlurinn. Fólk var mikið með ljós-
myndavélar þarna, en það er líka
ótrúlegt hversu mikið efni hafði
verið fest á filmu. Þetta var fólk
að finna á háaloftum og í ýmsum
söfnum, og þetta var gríðarleg
vinna. Án þessarar góðu hjálpar
hefði myndin aldrei orðið til og ég
er mjög þakklátur öllum þeim sem
veittu mér hjálparhönd.“
Lifandi staður frásagna
Kári segir áherslu Blikksins ekki
síður liggja á reynslusögum um
upplifun þeirra sem eyddu tíma á
Melavellinum, því flestir sem hafi
aldur til hafi sínar minningar og
skoðanir á vellinum.
„Þetta var lifandi staður frá-
sagna og mikilla afreka og hróð-
ur vallarins spurðist jafnvel út
fyrir landsteinana,“ segir Kári
og nefnir sem dæmi að mölin
sem notuð var í völlinn hafi þótt
óvenju hentug til íþróttaiðkunar.
„Í myndinni kemur í ljós hversu
skynsamlega var staðið að gerð
vallarins, því malarvöllurinn var
af mörgum talinn með þeim betri
í Evrópu og þótt víðar væri leitað.
Mölin var þessi sérstaka blanda
af mold úr moldarbarði, ísaldar-
leir og fína sallanum sem kom úr
malbikunarstöðinni við Elliðaá.
Þessi blanda þótti afar mjúk og
hentug, bæði í hlaupabrautirnar
og á völlinn sjálfan. Auðvitað átti
völlurinn misjafna daga, en marg-
ir segja að við réttum skilyrði hafi
það verið alveg eins og að spila á
grasi að leika á honum.“
Einn stærsta stund íslenskrar
íþróttasögu er jafnan talin hafa
átt sér stað á Melavellinum sum-
arið 1951, þegar Íslendingar sigr-
uðu Svía með fjórum mörkum
gegn þremur í landsleik í knatt-
spyrnu. Kári útskýrir að hingað
til hafi verið lítið um fáanlegt
myndefni frá þessum fræga leik.
„Það má því segja að rúsínan
í pylsuendanum hafi verið þegar
ég fann lifandi efni á sextán milli-
metra filmu frá leiknum, sem ég
rambaði á í úrklippum sem lágu
grafnar einhvers staðar. Það var
líkast því að finna gull,“ segir
Kári.
Einstakar pylsur á Melavelli
Aðspurður segist Kári muna vel
eftir Melavellinum. Hann er upp-
alinn í Vesturbænum, spreytti
sig þar nokkrum sinnum með KR
í fótbolta og segir minningarnar
góðar.
„Margs er að minnast frá vell-
inum. Eins og kemur fram í mynd-
inni man fólk enn vel eftir pylsun-
um sem þar voru seldar og segir
þær hafa verið einstakar. Þegar
Laugardalsvöllurinn tók við árið
1958 hóf starfsemi Melavallarins
að minnka. Við tók skautasvellið
á veturna, krikketiðkun, hestaí-
þróttir og fleira í þeim dúr. Og svo
auðvitað Melarokkið árið 1982. En
svo skemmtilega vill til að þegar
mannvirkin á vellinum voru rifin
árið 1987 var byggingarefnið úr
þeim nýtt af bændum fyrir austan
fjall, sem reistu úr því hlöður og
fjárhús. Svo það má segja að völl-
urinn lifi enn. Þetta var auðvitað
gríðarlegt efni, bæði timbur og
sérstaklega blikkið sem var ein-
stakt á þessum árum, efnismikið
og þykkt. Það dugar í hundrað ár
í viðbót, ef ekki tvöhundruð ár,
og sér ekki á því,“ segir Kári og
hlær.
Þetta var auðvitað gríðarlegt
efni, bæði timbur og sérstaklega
blikkið sem var einstakt á þessum
árum, efnismikið og þykkt.
Margs að minnast frá Melavelli
Kvikmyndagerðarmaðurinn Kári G. Schram sýnir Blikkið, heimildarmynd um sögu Melavallarins, á Skjaldborgarhátíðinni á
Patreksfirði um næstu helgi. Kjartan Guðmundsson ræddi við Kára um völlinn, sögurnar og blikkið sem blívur fyrir austan fjall.
LIFANDI STAÐUR AFREKA Valur og Fram etja kappi á Melavellinum um miðjan áttunda áratuginn. Gleðipinninn Hermann Gunn-
arsson er annar frá hægri af þeim rauðklæddu. Á þessum malarvelli unnust margir fræknir sigrar. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
REYKJAVÍK Á þessari loftmynd frá árinu 1961 sjást meðal annars Háskóli Íslands,
Þjóðminjasafnið, Melavöllurinn og Hótel Saga í byggingu. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
TÍVOLÍ Síðustu árin áður en Melavöllurinn var rifinn var meðal annars sett upp tívolí
á vellinum, sem gladdi ungviðið mjög. Þessi mynd er tekin árið 1984.
MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
FALDIR FJÁRSJÓÐIR Kári G. Schram líkir því við að finna gull þegar hann rambaði á lifandi
myndir frá frægum sigurleik Íslendinga á Svíum á Melavellinum árið 1951. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA