Fréttablaðið - 04.06.2011, Side 47

Fréttablaðið - 04.06.2011, Side 47
LAUGARDAGUR 4. júní 2011 5 Tækifærið þitt! Sjá nánar á www.intellecta.is Java forritun Viðskiptagreind (BI) Hugbúnaðarsérfræðingar SQL/Oracle (DBA) Vefforritun Verkefnastjóri-Agile/Scrum Síðumúla 5 108 Reykjavík Sími 511 1225 www.intellecta.is SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Öflugur sérfræðingur á sviði starfsendurhæfingar Upplýsingar veita: Elísabet Sverrisdóttir elisabet@hagvangur.is Inga Steinunn Arnardóttir inga@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 13. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á www. hagvangur.is VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður leitar að sérfræðingi til að starfa að fjölbreyttum verkefnum á sviði starfsendurhæfingar. Hér gefst einstakt tækifæri til að vinna að uppbyggingu, þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Um er að ræða mjög krefjandi starf. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda sem nýtist í starfi, t.d. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, náms- og starfsráðgjafar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar • Víðtæk reynsla og þekking á sviði starfsendurhæfingar er æskileg Að VIRK - Starfsendurhæfingarsjóði standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði. Hlutverk sjóðsins er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku með aukinni virkni, eflingu starfsendurhæfingar og öðrum úrræðum. Nánari upplýsingar um VIRK - Starfsendurhæfingarsjóð er að finna á heimasíðu sjóðsins, www.virk.is. • Fagmennska, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Mjög góð skipulags- og samskiptahæfni • Leiðtogahæfileikar og jákvætt viðmót • Sveigjanleiki, færni og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð Hæfniskröfur: Starfssvið: Hugbúnaðarþróun www.marel.com/jobs www.marel.com Fiskistofa annast stjórn og eftirlit með veiðum fiskistofna í sjó og fersku vatni og hefur sett sér metnaðarfulla stefnu í rafrænni og gagnsærri stjórnsýslu. Fiskistofu er ljóst að helsti styrkur hennar eru þeir rúmlega sjötíu starfsmenn sem hjá henni starfa á sex starfsstöðvum víðs vegar um landið og leggur því mikla áherslu á að fylgja góðri og virkri starfsmannastefnu þar sem m.a. er leitast við að gera starfsfólki kleift að hafa gott samræmi á milli vinnu og einkalífs. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á vefsíðu hennar, www.fiskistofa.is Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Örn Sævar Holm, deildarstjóri veiðieftirlits í síma 569 7900 eða í síma 825 7827. Umsóknir er hafa að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem máli kann að skipta sendist á netfangið ingath@fiskistofa.is eða með bréfi til Fiskistofu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði merktar „Veiðieftirlitsmaður í Stykkishólmi“. Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2011. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við viðeigandi stéttarfélag. Samkvæmt jafnréttisstefnu Fiskistofu eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Fiskistofa óskar eftir að ráða veiðieftirlitsmann í starfsstöð sína í Stykkishólmi Starfið felst í eftirliti til sjós og lands. Eftirlit á sjó felst m.a. í lengdarmælingum á fiski og tillögugerð um lokanir veiðisvæða, eftirlit með aflasamsetningu, veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og brottkasti afla. Þá fylgjast veiðieftirlitsmenn einnig með því að afladagbækur séu rétt útfylltar og séu í samræmi við veiðar og afla um borð. Eftirlitsstörf í landi fela m.a. í sér eftirlit með löndun, vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðarfærum og aflasamsetningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með færslu og skilum afladagbóka. Starfið felur einnig í sér skrifstofustörf s.s. skýrsluvinnu þegar vettvangsstörfum lýkur, að fylgjast með löndunum og skráningum í aflaskráningarkerfi Fiskistofu og öflun gagna vegna brotamála sem upp koma. Leitað er að einstaklingi sem hefur reynslu af störfum í sjávarútvegi. Æskilegt er að viðkomandi hafi skipstjórnarmenntun og reynslu af skipstjórn. Reynsla af verkstjórn í fiskvinnslufyrirtæki er einnig kostur. Góð íslensku- og tölvukunnátta er áskilin. Starfið krefst þess að umsækjendur séu sjálfstæðir, faglegir og nákvæmir í vinnubrögðum, séu ákveðnir en sanngjarnir og háttvísir og búi yfir færni í mannlegum samskiptum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.