Fréttablaðið - 04.06.2011, Síða 60

Fréttablaðið - 04.06.2011, Síða 60
6 fjölskyldan Jón Klausen, sem verður ell-efu ára í haust, fór á sín fyrstu fjöll í burðarpoka með móður sinni og föður, þeim Guðbjörgu Andreu Jónsdóttur og Jóhanni Friðriki Klausen. Þegar hann var sjálfur farinn að geta hlaupið um allar trissur fór fjöl- skyldan að fara í stuttar dagsferð- ir á fjöll en fyrsta langa fjallgang- an þar sem Jón var með í för var ferð á Leggjabrjót en þá var hann fjögurra ára. „Frá árinu 2005 höfum við farið í nokkrar ferðir og ansi víða,“ segir Guðbjörg, sem starfar sem forstöðumaður Félagsvísinda- stofnunar Háskóla Íslands. Jóhann sinnir starfi ráðgjafa hjá Skýrr. „Við erum bæði alin upp úti á landi, þar sem útivist var sjálf- sagður hlutur. Eftir að við fluttum í bæinn fórum við í styttri ferðir en fórum að fara í lengri ferðir þegar við eignuðumst jeppa árið 2005,“ segir Jóhann og Guðbjörg bætir við að með tilkomu göngu- tjalds árið 2008 hafi þau prófað göngur með „allt á bakinu“ og það hafi verið ótrúleg upplifun. Ein slík ferð, sú lengsta sem fjölskyld- an hefur farið í, varð mikið ævin- týri en þá var Jón 7 ára. Fjölskyldan gekk þá stærðar- innar hring, 40 kílómetra, upp við Langjökul en Karlsdráttur nefn- ist vogur norður úr Hvítárvatni rétt austan Norðurjökuls. „Það er farið umhverfis Baldheiði og inn í Karlsdrátt en leiðin er ekkert merkt, engar stikur eða neitt þann- ig að maður stólar á GPS-tækið. Síðan gengum við og vorum bara ein með náttúrunni,“ segir Jóhann. Guðbjörg og Jóhann segjast orðið vita vel hvernig hægt er að gera fjallgöngurnar skemmtilegar fyrir Jón og í þessari ferð fundu þau til að mynda stein á kortinu, sem þau skírðu „Jón klett“, og gerðu sér það að leik að ná að þeim kletti og borða þar nesti. „Þetta er svona hans klettur á kortinu og það finnst honum rosa- lega gaman. Annars er nestið allt- af lykilatriðið í öllum ferðum sem hann fer með okkur í. Alveg sama hversu stutt ferðin er, jafnvel bara upp í Öskjuhlíð – nesti verður að vera,“ segir Guðbjörg og bendir á að hægt sé að gera fjallgöngur mjög skemmtilegar fyrir börn ef þau vita að áð verður og snætt eitt- hvað smálegt, hvort sem er epli, kex, heitt kakó eða samlokur. „Eitt það mikilvægasta þegar farið er með börn á fjöll er að maður má ekki reka of mikið á eftir þeim,“ segir Guðbjörg og Jón, með sinn eigin klett á kort- inu, getur tekið undir það og finnst greinilega gott að geta hægt á göngunni þegar honum hentar og fá að leggjast í grasið. „Ef ég verð þreyttur bið ég þau um að stoppa og við finnum góðan stað til að leggjast í grasið og hvíla okkur og kannski fáum við okkur eitt- hvað að borða,“ segir Jón og bætir við að eitt það skemmtilegasta við fjallgöngurnar sé að sjá allt útsýnið. „Þetta snýst ekki um að draga börnin á fjöll, maður verður að vera tilbúinn til að fara á þeirra forsendum, og hafa meira en minna af fötum, ef veður breytist. Einnig er Jón alltaf með smápoka á sér með nesti, bók og einhverju dóti. Börn eru svo mismunandi, sum eru full af kappi og vilja bara komast á leiðarenda en önnur, eins og Jón, vilja skoða og rannsaka það sem þau sjá á leiðinni og það er mikilvægt að gefa þeim svigrúm til þess,“ segir Guðbjörg. Jóhann mælir að lokum með því að fólk byrji smátt og prófi sig áfram til að sjá hvort fjallgöngur henti fjölskyldunni. „Til að mynda er hægt að fara í stuttar dagsferð- ir og nefni ég þar til að mynda Reykjanesið sem er heill ævin- týraheimur. Bæði svæðið í kring- um Kaldársel, að ganga á Keili og fleiri staðir. Að fara með börnunum er líka svo skemmtilegt fyrir okkur fullorðna fólkið því maður skoðar í raun miklu meira með þeim í stað þess að ana áfram.“ - jma Nestið er eitt það allra mikilvægasta Hjónin Guðbjörg Andrea Jónsdóttir og Jóhann Friðrik Klausen hafa ásamt syni sínum Jóni Klausen, tíu ára, farið á ófá fjöll frá því að Jón var ekki ýkja hár í loftinu. Þau segja fjallgöngur með börnum öðruvísi og ekki síðri en í fullorðinshóp. Fjölskyldan Jóhann Friðrik Klausen, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir og Jón Klausen hafa yndi af því að fara saman á fjöll. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Esjan sigruð Feðgarnir sprettu upp Esjuna og Jón var ekki vitund lofthræddur þegar upp var komið. Til í slaginn Mæðginin saman en fjölskyldan hefur farið í fjallgöngur saman frá því áður en Jón fór að ganga, en þá var hann bara í burðar- poka á bakinu. Tannlæknafélag Íslands mælir með notkun xylitols sem aðalsætuefnis í tyggigúmmíi AFS á Íslandi • Sími 552 5450 • www. afs.is LANGAR ÞIG TIL ÞESS AÐ VÍKKA SJÓNDEILDARHRINGINN OG EIGNAST ERLENDA VINI? AFS skiptinemasamtökin leita nú að fóstur- fjölskyldum fyrir erlenda nema sem koma til landsins 19. ágúst næstkomandi. Við gefum þér möguleika á að kynnast heiminum heima hjá þér auk þess sem þú sérð eigið land og þjóð frá nýrri hlið þegar þú kynnist sjónarhóli skiptinemans. Fjölskyldur sem bjóða skiptinemum inn á heimili sín geta verið mjög margbreytilegar, það er fyrst og fremst áhuginn og hlýtt viðmót sem skiptir máli. Fósturfjölskyldur gera starf AFS skiptinemasamtakanna mögulegt! Áhugasamir vinsamlega hafið samband við skrifstofu AFS, Ingólfsstræti 3, 101, Reykjavík. Sími 552-5450. www.afs.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.