Fréttablaðið - 04.06.2011, Blaðsíða 68
4. júní 2011 LAUGARDAGUR40
Merkisatburðir
780 f.Kr. Fyrsti sólmyrkvi sögunnar var skráður í Kína.
1134 Orrustan við Fótavík nálægt Lundi milli Níelsar Dana-
konungs og Eiríks eimuna.
1794 Breskar hersveitir náðu Port-au-Prince á Haítí á sitt
vald.
1832 Tíu Íslendingar skipaðir fulltrúar á þing Eydana, en það
voru íbúar eyja, sem heyrðu undir Danmörku.
1896 Henry Ford prufukeyrir fyrsta bílinn sem hann hannaði
(þetta var jafnframt fyrsti bíllinn sem hann keyrði).
1917 Fyrsta afhending Pulitzer-verðlaunanna.
1919 Bandaríkjaþing samþykkir að breyta stjórnarskrá
Bandaríkjanna svo konur nytu kosningaréttar.
„Mikil fjölgun hefur orðið
í kraftasportinu og marg-
ir sterkir strákar farnir að
æfa. Þeir eiga þó ekkert í
menn sem eru uppundir 200
kíló og því ósanngjarnt að
láta þá keppa í sama flokki.
Því ákváðum við að vera
með sér keppni fyrir létt-
ari keppendur,“ segir Hjalti
Árnason. Í dag hefst í Þor-
lákshöfn keppnin Sterkasti
maður Íslands, léttari en
105 kíló.
Þetta er í þriðja sinn sem
keppnin er haldin en hún
hefst við höfnina í Þorláks-
höfn klukkan 14 í tengslum
við sjómannadagshátíð
bæjarins. „Tíu keppendur
hafa skráð sig til leiks, þeir
eru allir í mjög heilbrigðu
formi, léttir á sér og sterk-
ir,“ segir Hjalti. Keppendur
þurfa að kljást við klassísk-
ar íslenskar greinar. „Þeir
munu draga skip, fara í
bændagöngu og sirkuslyftu
og þurfa að lyfta þungum
steinum,“ segir Hjalti og
telur að keppnin sé stór-
skemmtileg fyrir áhorf-
endur. „Svo geta áhorfend-
ur líka spreytt sig,“ segir
hann.
Keppnin verður tekin upp
og sýnd á Stöð 2 Sporti síðar
í sumar. Sigurvegarinn fær
titil auk þess sem reynt
verður að greiða götu hans
svo hann geti keppt í heims-
meistaramóti í Finnlandi.
Draga skip og lyfta steinum
ÚRSUS Hjalti lofar góðri skemmtun þegar tíu sterkir karlmenn keppa
um titilinn sterkasti maður Íslands léttari en 105 kg í Þorlákshöfn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðmundu
Ögmundsdóttur
Starfsfólki líknardeildar á Landakoti eru færðar
bestu þakkir fyrir góða umönnun.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir
Ögmundur Gunnarsson Rannveig Stefánsdóttir
Gunnar Freyr Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabarn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðríður
Guðmundsdóttir
frá Viðey, Vestmannaeyjum,
lengst af til heimilis á Langholtsvegi 144, Reykjavík,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 29. maí.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju í Reykjavík
miðvikudaginn 8. júní kl. 13.00.
Guðlaug St. Sveinbjörnsdóttir Þórður Kristjánsson
Guðmunda Erla Sveinbjörnsdóttir Gérard Vautey
Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson Íris Björnæs Þór
Erla, Örvar Hafsteinn, Marit Guðríður,
Nils, Sólveig, Tómas Þór og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Eðvarð Árdal Ingvason
frá Skagaströnd,
lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss 29. maí.
Jarðsett verður frá Hólaneskirkju á Skagaströnd
mánudaginn 6. júní kl. 15.00. Blóm og kransar vinsam-
lega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent
á deild Krabbameinsfélagsins á Skagaströnd.
Signý Magnúsdóttir og fjölskylda
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og sendu okkur kveðjur við
andlát og útför
Yngva Rafns
Baldvinssonar
fyrrum íþróttafulltrúa,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
Friðrik E. Yngvason Theodóra Gunnarsdóttir
Björgvin Yngvason Birna Hermannsdóttir
Stefán Yngvason Nína Leósdóttir
Yngvi Rafn Yngvason Alís Freygarðsdóttir
og fjölskyldur
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Margrétar Ketilsdóttur
Hjallalundi 15b, Akureyri.
Sérstakar þakkir til Heimahlynningar á Akureyri,
kvenfélaga Akureyrarkirkju og Hörgdæla og
Kirkjukórs Möðruvallaklaustursprestakalls.
Aðstandendur.
Móðir okkar,
Guðríður Helgadóttir
Snorrabraut 56, áður Þórólfsgötu 8,
Borgarnesi,
lést á Droplaugarstöðum miðvikudaginn 1. júní.
Guðrún Gestsdóttir
Sigurlaug Gestsdóttir
Fanney Gestsdóttir
Kristján Gestsson
Heiða Gestsdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Júlíus S. Júlíusson
leigubílstjóri,
Þinghólsbraut 10, Kópavogi,
andaðist á Hrafnistu Boðaþingi þann 23. maí
síðastliðinn. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
þriðjudaginn 7. júní kl. 15. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hrafnistu Boðaþingi, þar sem hann fékk
góða umönnun.
Jón E. Júlíusson
Stefanía Júlíusdóttir Vilhjálmur Þorsteinsson
Hörður Júlíusson Júlía J. Puiaob
Jóhanna Júlíusdóttir
Sigrún Júlíusdóttir
Trausti Júlíusson Helga G. Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartkær eiginmaður minn,
Þorsteinn Sigurðsson
Hjaltastaðahvammi, Akrahreppi,
Skagafirði,
lést á dvalarheimili aldraða Heilbrigðisstofnuninni
Sauðárkróki miðvikudaginn 1. júní síðastliðinn.
Sigríður Márusdóttir
Bílaumboðið Askja verður opnað formlega í Reykjanesbæ í
dag. Kjartan Steinarsson stýrir því undir merkjum K. Stein-
arsson ehf. og er til húsa við Holtsgötu 52. Þar verður hann
með söluumboð fyrir nýja Mercedes-Benz og Kia-bíla, líkt og
Askja á Krókhálsi 11. Í K. Steinarsson verða þrír starfsmenn
en auk Kjartans verður eiginkona hans, Guðbjörg Theodórs-
dóttir þar og einnig bróðir hans, Sigtryggur Steinarsson.
Kjartan er vel þekktur á Suðurnesjum innan bíla- og fót-
boltageirans. Hann hefur verið með umboð fyrir bíla frá
Heklu og rekstur þjónustuverkstæðis við Njarðarbraut frá
árinu 2000 en hefur nú lokað þeirri starfsemi og segir eft-
irsjá í öllu því góða starfsfólki sem hann hafi haft með sér
síðasta áratuginn. Hann tekur jafnframt fram að það sé
ánægjulegt að allir sem unnu hjá honum hafi fengið vinnu
annars staðar.
Síðustu þrjú ár eru án efa þau erfiðustu í sögu bílasölu á
Íslandi en Kjartan segir hana aðeins að glæðast aftur þar
sem endurútreikningar bílalána séu að ganga í gegn og við-
skipti tekin að glæðast að nýju. Hann telur því að botninum
hafi verið náð í bílasölu á Íslandi og kveðst horfa bjartsýnn
fram á veginn.
Askja opnuð í Reykjanesbæ
BÍLABÆRINN Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa lýst því yfir að þau
ætli að vera í forystu í umhverfisvænum samgöngum. Askja hefur
þegar selt nokkra Mercedes Benz metanbíla til fyrirtækja þar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hinn árlegi handverksdagur Heimilis-
iðnaðarfélags Íslands á Árbæjarsafni
verður haldinn hátíðlegur á morgun.
Félagsmenn munu venju samkvæmt
sýna margvíslegt handverk eins og
útsaum, baldýringu, knipl, perlusaum,
tóvinnu og spjaldvefnað. Einnig verð-
ur rússneskt hekl og sauðskinnsskóa-
gerð sýnd.
Á Kornhúsloftinu verður útskrift-
arsýning nemenda Heimilisiðnaðar-
skólans og Þjóðbúningastofa verður
með kynningu á þjóðbúningnum Líkn.
Á morgun verður einnig opnuð
ný sýning í Suðurgötu 7 sem nefnist
Buxur, vesti, brók og skó. Á henni getur
að líta heimagerð barnaföt frá ýmsum
tímum. Formleg dagskrá hefst klukkan
13 í dag og allir sem mæta í íslenskum
búningi fá frítt inn. Árbæjarsafn er
opið alla daga í sumar á milli klukkan
tíu og fimm. - mmf
Handverk á Árbænum
SAUÐSKINNSSKÓAGERÐ SÝND Hinn árlegi
handverksdagur Heimilisiðnaðarfélags Íslands
verður haldinn á morgun á Árbæjarsafni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR