Fréttablaðið - 04.06.2011, Qupperneq 72
4. júní 2011 LAUGARDAGUR44
Hvað ertu gamall? Ég er sjö ára.
Í hvaða skóla ertu? Ég er í
Varmahlíðarskóla.
Voru skólafélagar þínir spennt-
ir yfir því að þú værir að fara
að leiða Pedro Rodriguez inn
á völlinn? Flestallir voru að
spyrja mig út í þetta og þá er ég
að tala um allir, nema nokkrir í
mínum bekk. Þeim fannst þetta
ekki sérlega merkilegt.
Hvað var skemmtilegast við
ferðina? Örugglega að fá að taka
í höndina á Pedro Rodriguez og
leiða hann.
Hvernig var hann og töluðuð þið
saman? Hann var ágætur. Hann
spurði mig frá hvaða landi ég
væri og ég sagði bara Iceland.
Hefurðu mikinn áhuga á fót-
bolta? Já, ágætlega.
Æfirðu fótbolta? Já, hjá Smár-
anum sem er hérna í Varmahlíð.
Heldurðu með einhverju fót-
boltaliði? ManU, auðvitað.
Áttu þér einhverja fyrirmynd í
fótboltanum? Örugglega Giggs
vegna þess að hann er svo góður
og hefur spilað marga leiki.
Langar þig að verða eins og
Giggs? Kannski, en ég er samt
nýbúinn að velja annað starf
sem ég ætla að verða þegar
ég er stór. Ég ætla reyndar að
verða efnafræðingur.
Hver eru áhugamálin þín? Aðal-
áhugamálið mitt er bardagi. Ég
er mikið fyrir bardagamyndir
og ég hef milljón, trilljón, skrill-
jón sinnum horft á svoleiðis
myndir. Ég er ekki að tala um
bannaðar myndir, kannski samt
innan tólf.
Æfirðu einhverja bardaga-
íþrótt? Ég er sjálfur að skálda
mína eigin bardagaíþrótt.
Hvað er skemmtilegast við bar-
daga? Mér finnst töfrabardag-
ar skemmtilegastir. Þeir eru
skrýtnir. Töfrar eru samt ekki
til í alvöru. Eini galdurinn sem
er til er heimurinn.
krakkar@frettabladid.is
44
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Allir stilla sér upp framan við
gluggalausan vegg. Einhver
byrjar á að henda bolt-
anum í vegginn og
nefnir nafn ein-
hvers í hópnum:
„Upp fyrir Stínu“
og þá á Stína
að grípa bolt-
ann. Ef henni
tekst það kast-
ar hún aftur í
vegginn og nefn-
ir nafn einhvers
annars. En ef Stína
grípur ekki hlaupa allir frá
veggnum á meðan hún nær í
boltann. Þegar hún hefur náð
honum kallar hún: „Stoð“ og
þá eiga allir að stoppa. Þá
reynir Stína að hitta
einhvern með
boltanum og ef
henni tekst það
fær sá krakki
„strik“ en ann-
ars fær Stína
strikið. Þegar
einhver hefur
fengið þrjú strik
er hann úr leik. Ef
Stína hittir krakkann
á sá að kasta í vegginn
næst en annars gerir Stína það.
Boltaleikurinn Stoð og strik
TÖFRAR magic.about.com/od/libraryofsimpletricks/ig/Easy-Tricks-for-
Kids er vefsíða sem kennir krökkum auðveld töfrabrögð.
Maður hringir í öngum sínum í kvennadeildina: „Konan mín er
ófrísk og það eru aðeins tvær mínútur á milli hríða hjá henni!“
„Er þetta fyrsta barnið hennar?“ spyr læknirinn?
„Nei, vitleysingur,“ hrópar maðurinn. „Þetta er maðurinn
hennar.“
Unglingur er – manneskja sem man aldrei eftir því að fara út
með hundinn, en gleymir aldrei símanúmeri.
Unglingur er – einhver sem kann á flóknustu tölvurnar án
kennslu en getur ekki búið um rúmið.
Unglingur hefur smekk fyrir tvenns konar tónlist. Hárri og
mjög hárri.
HEIMURINN ER GALDUR
Hinn sjö ára gamli Steinar Óli Sigfússon leiddi Pedro Rodriguez, fótboltamann í
Barcelona, út á völlinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu um liðna helgi. Steinar
Óli heldur með Manchester United og hefur ágætlega mikinn áhuga á fótbolta.
Aðaláhugamálið mitt er bar-
dagi. Ég er mikið fyrir bardaga-
myndir og ég hef milljón, trilljón,
skrilljón sinnum horft á svoleiðis
myndir. Ég er ekki að tala um bann-
aðar myndir, kannski samt innan tólf.
Steinar Óli Sigfús-
son sagði Pedro
Rodriguez að hann
kæmi frá Íslandi.
Listasmiðja verður starfrækt
í Norræna húsinu um helgina í
tengslum við sýningu Myndlista-
skólans í Reykjavík, Víðáttu og
rjóður. Sýningin er unnin upp
úr þremur norrænum listbúðum
sem Myndlistaskólinn stóð fyrir
og tók þátt í og fjölluðu meðal
annars um ábyrgð okkar gagn-
vart landslaginu. Undanfarið
hafa grunnskólanemendur sótt
listasmiðjurnar heim en um helg-
ar er gestum og gangandi boðið
að spreyta sig. Listasmiðjan hefst
klukkan tíu og er þetta síðasta
helgin sem sýningin er opin.
Víðátta og rjóður
Krakkar í Listasmiðjunni.
MIKIL SALA
VANTAR EIGNIR Á SKRÁ!
www.landmark.is • sími: 512 4900 • Bolholti 4
Sveinn Eyland
sölufulltrúi
gsm: 6.900.820
VANTAR ALLAR TEGUNDIR EIGNA
Á SKRÁ.
ER MEÐ KAUPANDA AÐ 3-4 HERB.
Í 101/105/107.
VANTAR 3JA HERB ÍBÚÐ Í 101 MEÐ
STÆÐI Í BÍLG. ALLT AÐ 40 MILLJ.
•
•
•
HRINGDU NÚNA 6.900.820
Magnús
Einarsson
Lögg. fast.