Fréttablaðið - 14.06.2011, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 14.06.2011, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 14. júní 2011 Við veltum því stundum fyrir okkur hvaðan þeir komu útrásarvíkingarnir, hvernig þeir urðu svona miklir asnar. Hvaðan komu þeir? Því er jafn fljótsvar- að og það er erfitt að horfast í augu við það: Útrásarvíkingarnir komu úr íslenska þjóðardjúpinu en ekki frá tunglinu. Þetta voru krakkar aldir upp í Vesturbæn- um og Breiðholtinu, frá Stykkis- hólmi, Ísafirði, Garðabæ. Úr íslenska skólakerfinu. Þeir koma úr alls konar fjölskyldum og upp til hópa voru þetta vel menntaðir, vel gefnir krakkar. En með höfuðið fullt af órum og ranghugmyndum; grillum um eitthvert áskapað ágæti Íslend- inga, ágæti þess að fylgja ekki mannasiðum, ágæti þess að taka alltaf lán en greiða aldrei neitt, ágæti þess að hugsa ekki áður en maður tekur ákvarðanir. Lestir voru gerðir að dyggðum í þeirri hugmyndafræði sem þeim var innrætt. Bláu varðliðarnir Afdrifaríkust var sú ranghug- mynd þessara krakka að alla hluti ætti að leysa á forsend- um markaðskerfisins og engum öðrum; annar dóm- ari væri óhugsandi en markaðurinn, aðrar lausnir óhugsandi en markaðslausnir, annar þankagangur óhugs- andi en markaðs- hyggjan. Markaðurinn væri vegurinn, sann- leikurinn og lífið. Þau streymdu út úr skólun- um uppfull af þessum hugsjónum eins og litlir bláir varðliðar. Þessi tryllta markaðshyggja lá að sumu leyti í loft- inu en hún átti sér sína talsmenn, sína páfa. Í bókinni Ævintýra- eyjan eftir Ármann Þorvaldsson – einn æðsta mann Kaup- þings og útrásarfursta í Bretlandi – er að finna kafla þar sem Ármann segir frá mótunarár- unum fyrir útrásina. Meðan Ármann var leitandi sál og badmintonstjarna stundaði hann nám við Háskóla Íslands í sagnfræði – eins og sumir gera til að leysa lífsgátuna – og þar segir hann frá því að einn kennarinn hafi öðrum fremur haft áhrif á það í hverja átt hugur hans hneigðist: Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Hannes hefur um árabil verið mikill æskulýðsfrömuður innan Háskólans – ekki síst í stjórn- málafræði þar sem margir árgangar af ungmennum hafa setið við fótskör hans og numið af honum fræðin: sem er ofsafengin markaðshyggja, reiðareksstefna í efnahagsmálum, samkvæmt þeirri hugmynd að markaður- inn leiðrétti sig ævinlega sjálfur vegna síns guðlega eðlis; pening- araflið – auðvaldið – skuli ævin- lega ráða enda leiti peningarnir þangað sem þeir nýtast best. Hannes Hólmsteinn hefur þannig innprentað heilu árgöng- unum af nemendum við Háskóla Íslands að þeir geti gert það sem þeim sýnist í viðskiptum, svo fremi sem þeir gangi á vegum hins frjálsa markaðar – enda muni hann refsa þeim ef þau víki af rétta veginum, vegna síns guð- lega eðlis. En ekki nóg með það: Hannes var líka áhrifamesti ráð- gjafi ríkisstjórna Íslands um efnahagsmál á síðasta áratug 20. aldar og fram eftir nýrri öld, var sá maður sem að öðrum ólöstuð- um átti ríkastan þátt í að leggja grunninn að því þjóðfélagi sem hrundi í október árið 2008 – og því andrúmslofti sem var allsráð- andi fram að falli, sjálfumglaðri, hrokafullri og allt að því nautna- sjúkri auðhyggjunni. Hann var páfi auðhyggjunnar. Eru mannætur í VG? Frá hruni hefur Hannes verið við sama heygarðshornið. Hann hefur skrifað reglulega pistla á vefsvæði sem heitir pressan.is og mun á vegum einhverra útrás- arvíkinga. Mér telst svo til að pistlar Hannesar á þessu tímabili séu lauslega talið um það bil þrír og er þá ótalið ýmisleg orðarusl og smælki – en hann hefur verið þeim mun duglegri að birta þá aftur og aftur. Fyrsti pistillinn fjallar um kaupmann úr Sjálf- stæðisflokknum á Seltjarnar- nesi sem stofnaði lágvöruverslun sem þróaðist svo samkvæmt lög- málum hins óhefta markaðskerf- is á undraskjótum tíma yfir í að verða einokunarhringur í nánast öllu sem hægt er að versla með á Íslandi; grein Hannesar um þenn- an kaupmann og son hans fjallar samt ekki um það hversu dásam- legur vitnisburður þetta sé um skilvirkni markaðarins, heldur að téðir kaupmannsfeðgar hafi mis- notað sér góðar gjafir Davíðs og markaðarins, sem í huga Hannes- ar jafngildir sennilega því sama. Grein númer tvö eftir Hannes á pressan. is fjallar um að VG sé Rússneski kommún- istaflokkurinn og að forráðamenn VG séu mannætur og stundi hér stalínískar hreins- anir: hyggist þannig skjóta Geir Haarde að afloknum sýndarrétt- arhöldum, rétt eins og íslenskir kommúnistar hafi gert um árabil líkt og Þór Whitehead hafi sannað. Þriðja grein- in fjallar svo um það hversu góður rithöf- undur Einar Már Guð- mundsson sé – ólíkt öðrum höfundum sem ekki hafa fallist á að Davíð Oddsson sé sólin og hugmyndir hans jafngildi hinstu rökum tilverunnar. Það hlýtur að vera gaman fyrir Einar Má að hafa slíka loftungu sér við eyra. Eitt er að Hannes Hólmsteinn skuli enn vera svona staffír- ugur. Að hann skuli enn þver- skallast við að horfast í augu við guðinn sem brást – markaðinn – gjaldþrot þeirrar stefnu sem hann átti drýgstan þátt í sjálfur að koma hér á. Væri maður jafn ófyrirleitinn og hann í að draga upp sögulegar hliðstæður mætti líkja þessu við að Goebbels hefði eftir fall nasismans haldið áfram iðju sinni og reynt að sannfæra fólk um að allt hefði þetta verið Krupp-samsteypunni að kenna. Hitt er verra, og satt að segja óskiljanlegt, að Háskóli Íslands láti sér sæma að veita þessum manni óheftan aðgang að æsku- fólki þessa lands, til að fylla höfuð þess af órum og ranghug- myndum – ekki síst eftir að hann varð uppvís að einhverjum stór- felldasta ritstuldi Íslandssögunn- ar – en það var víst allt bara frá kommúnistum. Nú geisar orrustan um söguna. Hvernig hrunið skal túlkað: brást kerfið sem Hannes og félagar komu hér á eða brugðust einstak- lingar í fullkomnu kerfi? Því er auðsvarað. Útrásardólgarnir voru ekki óvinir markaðshyggjunnar. Hannes Hólmsteinn hefur þannig innprentað heilu ár- göngunum af nemendum við Háskóla Íslands að þeir geti gert það sem þeim sýnist í viðskiptum Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Góð aðstaða og veitingar á hátíðarsvæðinu. Kjörorð sumarsins er NÚNA FER ÉG VESTUR! Dagskrá 10:00 Hátíðarsvæðið opnað, sölubásar og veitingatjöld. 11:00 Útskriftarathöfn Háskólaseturs Vestfjarða. 12:30 Hópsigling smábáta frá Bíldudal, lending kl. 12:30. 13:00 Hátíðarmessa í Minningarkapellu Jóns Sigurðssonar að Hrafnseyri. Séra Agnes M. Sigurðardóttir sóknarprestur í Bolungarvík og prófastur í Vestfjarðaprófastsdæmi prédikar. Séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir sóknarprestur Hrafnseyrarkirkju þjónar fyrir altari. Kirkjukór Þingeyrar syngur. Organisti: Margrét Gunnarsdóttir. Meðhjálpari: Davíð H. Kristjánsson. 14:00 Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar. Stjórnandi: Dagný Arnalds. 14:30 Hátíðardagskrá á útisviði - Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, leggur blómsveig að Minningarsteini Jóns Sigurðssonar. - Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, setur hátíðina. - Hátíðarræða: Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. - Kveðja frá Vestur-Íslendingum: David Gislason. - Fjallkona Vestfjarða. - Elfar Logi Hannesson: Brot úr einleik um Jón Sigurðsson. - Ávarp: Sólveig Pétursdóttir, formaður afmælisnefndar. - Tónlistardagskrá: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Björgvin Halldórsson, Karlakórinn Ernir, Karlakórinn Vestri, Eyþór Gunnarsson og Þórir Baldursson. Stjórnandi: Guðni Franzson. Brimlending - Lag: Áskell Jónsson, ljóð: Davíð Stefánsson. Nú sefur jörðin - Lag: Þorvaldur Blöndal, ljóð: Davíð Stefánsson. Sjá dagar koma - Lag: Sigurður Þórðarson, ljóð: Davíð Stefánsson. Ég bið að heilsa! - Lag: Ingi T. Lárusson, ljóð: Jónas Hallgrímsson. Íslandslag - Lag: Björgvin Guðmundsson, ljóð: Grímur Thomsen. Rósin - Lag: Friðrik Jónsson, ljóð: Guðmundur G. Halldórsson. Lofsöngur, Ó guð vors lands, með þátttöku hátíðargesta. Lag: Sveinbjörn Sveinbjörnsson, ljóð: Matthías Jochumsson. - Ávarp: Eiríkur Finnur Greipsson, formaður Hrafnseyrarnefndar. - Sýningin “Líf í þágu þjóðar - Jón Sigurðsson 1811-1879” opnuð. Formlegri hátíðardagskrá lýkur. Kynnir er Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð. 17:00 Elfar Logi Hannesson frumflytur einleik sinn um Jón Sigurðsson í fullri lengd í Minningarkapellunni. Glímumenn frá Glímufélaginu Herði á Ísafirði sýna íslenska glímu. Verðlaunagripurinn Vestfjarðabeltið verður til sýnis. Í burstabænum verða sýndar teikningar af Jóni Sigurðssyni eftir nemendur 6. bekkjar grunnskólanna á Vestfjörðum. Hrafnseyrarhátíð 17. júní 2011 Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar og Hrafnseyrarnefnd bjóða til þjóðhátíðar á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní n.k. í tilefni af opnun sýningarinnar „Líf í þágu þjóðar“ í Safni Jóns Sigurðssonar og þess, að tvöhundruð ár verða þá liðin frá fæðingu hans. Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar og Hrafnseyrarnefnd Sjá nánar: www.jonsigurdsson.is Aðgangur að hinni nýju sýningu á Hrafnseyri er ókeypis í allt sumar! Guðinn sem brást

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.