Fréttablaðið - 24.06.2011, Blaðsíða 4
24. júní 2011 FÖSTUDAGUR4
DANMÖRK Lögreglan í Kaup-
mannahöfn bjargaði í gær nítján
ára litháískri stúlku sem hafði
verið neydd til að stunda vændi.
36 ára samlandi hennar var hand-
tekinn og verður kærður fyrir
mansal.
Stúlkan var ginnt til að yfir-
gefa land sitt viku fyrr og var
flutt til Kaupmannahafnar þar
sem henni var komið fyrir í nið-
urníddu húsnæði, lokuð inni og
seld vændiskaupendum.
Stúlkan komst þó loks á netið
þar sem hún náði sambandi við
vin sinn sem gerði lögreglunni
viðvart. Út frá lýsingum hennar
réði danska lögreglan í staðsetn-
ingu og frelsaði hana. - þj
Litháísk stúlka í Danmörku:
Frelsuð úr kyn-
lífsþrælkun
EFNAHAGSMÁL Þjóðskrá Íslands
kynnti í gær nýtt fasteignamat sem
tekur gildi um áramótin. Heildar-
mat fasteigna á landinu hækkar um
6,8 prósent milli ára. Á höfuðborgar-
svæðinu hækkar fasteignamatið um
6,3 prósent en mest hækkun er á
Norðurlandi vestra, 11,9 prósent.
„Heildarniðurstöðurnar eru þær
að fasteignamat á landinu sem heild
hækkar um tæp sjö prósent. Hækk-
anirnar eru mestar á þeim svæðum
sem segja má að hafi verið kaldari
í þenslunni fyrir hrun en hækk-
anirnar eru minni á þeim svæðum
sem urðu fyrir miklum áhrifum af
þenslunni,“ segir Þorsteinn Arnalds,
aðstoðarframkvæmdastjóri mats-
og hagsviðs Þjóðskrár. Þá segir Þor-
steinn ljóst að fasteignamarkaður-
inn sé að glæðast aftur eftir hrun og
bætir við að virkari markaður renni
styrkari stoðum undir matið.
Um 83 prósent eigna á landinu
hækka um á bilinu 0 til 15 prósent.
Mestar eru breytingarnar á mati
íbúða og jarða í dreifbýli en það má
skýra að stórum hluta með breyting-
um á matsaðferð.
Á höfuðborgarsvæðinu hækkar
mat fasteigna í grónum hverfum
mest en hækkanir eru litlar í þeim
nýju hverfum þar sem enn er tölu-
vert af tómu eða ókláruðu húsnæði.
Þannig hækkar fasteignamatið í
Vesturbæ, vestan Bræðraborgar-
stígs, um 14,9 prósent en lækkar um
0,2 í Akrahverfi í Garðabæ.
Fasteignamatið leiðir í ljós að á
Íslandi eru nú tæplega 125 þúsund
íbúðir. Heildarverðmæti þeirra er
2.900 milljarðar króna en heildar-
verðmæti allra fasteigna er 4.400
milljarðar.
Íbúðir í sérbýli hækka mest milli
ára, eða um 10,4 prósent en íbúð-
ir í fjölbýli hækka um 7,3 prósent.
Atvinnueignir standa hins vegar
næstum í stað, lækka um 0,1 prósent.
Fasteignamatið byggir á rúmum
34 þúsund kaupsamningum frá júlí
2005 til apríl 2011. Breytingar hafa
verið gerðar á matsaðferðum og er
þeim ætlað að endurspegla markaðs-
verð fasteigna betur en verið hefur.
Miðað er við að sambærilegar fast-
eignir á sama stað hafi hliðstætt mat.
Fjölmargir þættir hafa áhrif á fast-
eignamatið. Má þar nefna staðsetn-
ingu fasteignar, stærð hennar, fjölda
herbergja og hæða, byggingarár og
fjölda íbúða í húsi.
Fasteignamatið verður nú birt í
fyrsta sinn á netinu en nálgast má
upplýsingar um mat fasteigna á vef-
síðunni Island.is.
Breytingar á fasteignamati hafa
töluvert að segja fyrir sveitarfélög
þar sem skattar eru lagðir á fast-
eignir eftir matinu. Karl Björns-
son, framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra sveitarfélaga, segir hins
vegar of snemmt að segja til um
hvaða áhrif breytt fasteignamat hafi
á fasteignagjöld.
magnusl@frettabladid.is
Fasteignamatið hækkar
umtalsvert frá í fyrra
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar um 9 prósent milli ára samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár.
Rúmlega 80 prósent eigna á landinu hækka um 0 til 15 prósent. Mat á atvinnuhúsnæði stendur í stað.
Dæmi um breytingar
Sveitarfélag/hverfi Meðalbreyting
Reykjavík 6,4%
Vogar 1,1%
Stykkishólmur 23,6%
Akureyri 8,5%
Hveragerði 2,7%
Fljótsdalshérað 5,9%
Hlíðar 9,4%
Neðra-Breiðholt 3,9%
Ártúnsholt/Höfðar 13,9%
Kópavogur/Kórar 4,2%
Hafnarfjörður 7,9%
Höfuðborgarsvæðið
6,3%
Suðurnes
4,3%
Vesturland
9,6%
Vestfirðir
9,9%
Norðurland vestra
11,9%
Norðurland eystra
9,3%
Austurland
2,8%
Suðurland
9,9%
Meðaltalshækkun á mati
Meðalbreyting á fasteignamati er mest á Norðurlandi vestra eða 11,9 prósent.
Hækkunin er hins vegar minnst á Austurlandi, einungis 2,8 prósent.
DÓMSMÁL Karlmaður á sextugsaldri, Ólafur Barði
Kristjánsson, hefur verið dæmdur í fimm mánaða
fangelsi fyrir vörslu á miklu magni af efni sem
sýnir barnaníð. Hæstiréttur hafði árið 2007 dæmt
manninn í átján mánaða fangelsi fyrir kynferðislegt
athæfi gegn þremur stúlkubörnum og að hafa haft
í fórum sínum myndir sem sýndu níð gegn tveimur
öðrum litlum stúlkum, auk fleiri mynda sem sýndu
börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt.
Að því er fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur, sem kveðinn var upp í gær, geymdi maður-
inn á hörðum diski í tölvu sinni níu hreyfimyndir og
15.327 myndir sem sýndu börn. Efnið fannst eftir að
lögreglu hafði borist nafnlaus ábending, sem leiddi
til húsleitar. Maðurinn játaði fyrir dómi, en kvað
ekkert af þessu vera barnaklám.
Ljósmyndirnar voru nær allar af sömu stúlkum,
sem voru augljóslega börn að aldri og fæstar kyn-
þroska. Myndirnar voru misjafnlega grófar og
sumar flokkaði dómurinn ekki sem barnaníð einar
og sér. Myndskeið í hreyfimyndunum voru einnig
misjafnlega gróf. Dómurinn taldi brot mannsins
stórfellt. - jss
Karlmaður á sextugsaldri dæmdur í annað sinn fyrir barnaníð:
Með þúsundir barnaníðsmynda
Ranghermt var í Fréttablaðinu í gær
að maður sem dæmdur var fyrir
kynferðislega áreitni gegn stjúp-
dætrum sínum hafi verið skólastjóri í
Mývatnssveit. Maðurinn starfaði sem
skólastjóri í Reykjadal.
LEIÐRÉTTING
er fjöldi mynda
sem sýndu börn
og fundust í tölvu
hins dæmda. Auk þess fundust níu hreyfi-
myndir í sömu tölvu.
15.327
VESTURBÆRINN Verðmat fasteigna í grónum hverfum höfuðborgarsvæðisins
hækkaði mest. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
UMHVERFISMÁL Vel hefur gengið
að hreinsa upp olíu í fjörunni
á Garðskaga. Olíuflekkur var
í sjónum á miðvikudag og var
afmarkað svæði í fjörunni þakið
olíu.
Starfsmenn Brunavarna Suður-
nesja hreinsuðu olíuna burt í gær
að beiðni bæjaryfirvalda í Garði.
Von er á fjölda fólks á Garð-
skaga yfir helgina þegar sólset-
urshátíð fer þar fram. Fylgifiskur
hátíðarinnar er yfirleitt göngu-
ferðir og leikir í fjörunni og því
þurfti að hreinsa olíuna burt
fljótt. - þeb
Sólseturshátíð um helgina:
Hreinsa upp
olíu í fjörunni
REYKJAVÍK Leikjadagur verður
haldinn í Nauthólsvík á morgun
í tilefni af 25 ára afmæli Íþrótta-
og tómstundasviðs Reykjavíkur
(ÍTR).
Boðið verður upp á ýmsa leiki
og annars konar afþreyingu,
meðal annars bátsferðir í Siglu-
nesi. Þá verða sýndir munir úr
starfi ÍTR og boðið upp á aðstöðu
til að grilla.
ÍTR hvetur borgarbúa til að
koma í Nauthólsvík og leika sér
og eiga skemmtilegan frítíma
með starfsfólki ÍTR. - þeb
Haldið upp á 25 ára afmæli:
ÍTR býður borg-
arbúum í leiki
GENGIÐ 23.06.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,3572
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,84 116,4
185,17 186,07
164,69 165,61
22,079 22,209
21,081 21,205
17,961 18,067
1,4365 1,4449
183,99 185,09
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
26°
20°
19°
16°
19°
20°
17°
17°
23°
18°
28°
27°
34°
16°
19°
16°
16°Á MORGUN
víða hæg N-læg eða
breytileg átt.
SUNNUDAGUR
5-10 m/s,
hvassara NV- og SA til.
8
8
12
6 7
5
7
9
10
9
3
5
4
25
5
5
3
3
4
2
5
10
9
8
8
9
12
8 9
8
10
HELGIN Fremur
hæg N-læg eða
breytileg átt í dag
og á morgun en
hvessir til sunnu-
dags. Úrkoma
með köfl um N- og
NA-lands í dag og
einhver væta þar
á morgun. Búast
má við stöku síð-
degisskúrum víða
annars staðar.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður