Fréttablaðið - 24.06.2011, Page 26
6 föstudagur 24. júní
Sjálfsfróun og kynhneigð
?Hæ Sigga, mig langar að vita hvað er að vera bi-curious og hversu mörg-um líður þannig? Er þetta algeng tilfinning og fylgir fólk henni eftir?
Svar: Til að svara flókinni spurningu á einfaldan hátt þá er mjög algengt
að hugsa kynferðislega um aðila af sama kyni. Kynhneigð og kynhegðun fer
ekki alltaf saman. Kynhneigð er flókið fyrirbæri sem þarf að skoða út frá
hegðun og tilfinningum, sérstaklega ef viðkomandi er óviss um kynhneigð
sína. Það virðist vera algengara að konur séu forvitnar um kynlíf með öðrum
konum. Þá telja sumir að um þriðjungur gagnkynhneigðra kvenna hafi haft
kynferðislegar hugsanir og/eða upplifanir með öðrum konum. Það sama
virðist ekki gilda um karlmenn og eru þeim settar töluvert þrengri skorður.
Þetta getur haldist í hendur við hversu opinskátt fjallað er um málið í sam-
félaginu. Einnig spila inn í viðhorf líkt og fordæming, til dæmis að gagn-
kynhneigðir karlar geti ekki verið með öðrum körlum, og tískubylgjur, líkt
og að það sé „flippað“ að gagnkynhneigðar stelpur fari í sleik hver við
aðra. Þá eru til þeir sem neita að flokkast undir ákveðna kyn-
hneigð og verða ástfangnir af viðkomandi einstaklingi, óháð
líffræðilegu kyni hans.
?Sæl Sigga Dögg, Fyrst vil ég hrósa þér fyrir skemmti-lega og fræðandi pistla. Mig langaði að athuga hvort þú
sætir á einhverjum ráðum fyrir konur á miðjum aldri
sem finna til lítillar kynlífslöngunar? Ég er ein slík og
er dagamunur á hvort það pirrar mig eða ekki, stund-
um langar mig að finna fyrir þessari nánd með manni
mínum sem kemur í kjölfar samlífs, aðra daga leiði ég
hugann lítið að þessu.
Svar: Margt getur spilað inn í kynlífs löngun. Ein rann-
sókn sýnir að líkamsímynd hafði sterkari áhrif á kyn-
lífslöngun og kynferðislega ánægju en breytingaskeiðið!
Því gæti verið áhugavert fyrir þig að skoða þína líðan í
því samhengi. Umdeildur ástralskur kynfræðingur líkti
kynferðislegri löngun kvenna við hringrás sem byggir
á samspili tíðni kynferðislegrar hegðunar og hugsana.
Því oftar sem þú stundar ánægjulegt kynlíf, hvort sem
er ein eða með maka, því meiri verður löngunin. Þannig
skapast jákvæð endurgjöf því jákvæðar afleiðingar kyn-
lífs, líkt og afslöppun, nánd og vellíðan, auka líkurnar
á að þú viðhaldir hegðuninni. Sami kynfræðingur taldi
einnig að konur ættu að leyfa sér að hugsa um kyn-
líf og njóta þess þegar þær finndu til löngunar. Hér er
sjálfsfróun mikilvæg. Rannsóknir hafa sýnt að konur
stunda síður sjálfsfróun en karlar og það getur á viss-
an hátt útskýrt minni kynlífs löngun. Þá vil ég mæla
með að þú prófir sleipiefni með næstu atlotum þar
sem það hefur sýnt sig að það geti bætt kynferðis-
legan unað beggja aðila. Nú er mál að leyfa sér að
eiga notalega stund með sjálfri þér og þegar þú ert
tilbúin, að bjóða makanum með.
Ofurfyrirsætan Naomi Camp-bell hefur verið fengin til að
hanna gallabuxnalínu fyrir ít-
alska tískumerkið Fiorucci. Sögur
herma að línan verði frumsýnd á
herratískuvikunni í Mílanó sem
fram fer um þessar mundir.
Fiorucci náði miklum vin-
sældum á áttunda áratugnum
en vinsældir fyrirtækisins hafa
dalað síðan þá og mun þetta
vera liður í því að blása svolitlu
lífi í merkið. Fiorucci var ný-
verið keypt af ítalska fyrirtækinu
Ittierre sem rekur meðal annars
tískuhúsin Balmain og Galliano.
Mörgum kann þó að þykja undar-
legt að Fiorucci hafi valið Camp-
bell til starfsins þar sem fyrir-
sætan klæðist sárasjaldan galla-
buxum. Enn er ekki vitað hvort
línan verður á herra eða hvort
hún verður fáanleg utan Ítalíu.
Campbell reyndi síðast fyrir sér
sem hönnuður árið 2008 þegar
hún hannaði línu fyrir brasilískt
fatamerki. Sú lína var aðeins seld
í Brasilíu og vakti ekki mikla at-
hygli. Það verður því forvitnilegt
að sjá afrakstur samstarfs Camp-
bell og Fiorucci. - sm
Naomi Campbell hannar gallabuxnalínu:
Fyrirsæta í nýtt hlutverk
Nýtt hlutverk Ofurfyrirsætan hefur tekið að sér að hanna gallabuxnalínu fyrir ítalska
tískumerkið Fiorucci. NORDICPHOTOS/GETTY
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Tískumerkin Mundi, Forynja, E-
Label og Birna halda lagersölu í
Fellsmúla 28, við hliðina á góða
hirðinum, í dag og á morgun.
Til sölu verða sýnishorn af
hönnun tískumerkjanna, bæði ný
og gömul, og verður allt að átta-
tíu prósent afsláttur af vörunum.
Áhugafólk um íslenska hönnun
ætti því að gera sér ferð í Fells-
múlann um helgina og gera góð
kaup. Gamanið hefst klukkan 10.
Lagersala í Fellsmúla:
Hönnun
fyrir alla
Góð kaup Hægt er að gera góð kaup í
Fellsmúlanum um helgina. Tískumerkin
Mundi, Forynja, E-Label og Birna halda
þar lagersölu.
OPNUNART
ÍMI
MÁN-FÖS 1
0-18
LAU 11-17
S. 572 3400
Sumarsprengja
50 - 70%
afsláttur
Engin vara á yfir 9.990 kr
Firði, Hafnarfirði • Sími 572 3400