Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.06.2011, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 24.06.2011, Qupperneq 26
6 föstudagur 24. júní Sjálfsfróun og kynhneigð ?Hæ Sigga, mig langar að vita hvað er að vera bi-curious og hversu mörg-um líður þannig? Er þetta algeng tilfinning og fylgir fólk henni eftir? Svar: Til að svara flókinni spurningu á einfaldan hátt þá er mjög algengt að hugsa kynferðislega um aðila af sama kyni. Kynhneigð og kynhegðun fer ekki alltaf saman. Kynhneigð er flókið fyrirbæri sem þarf að skoða út frá hegðun og tilfinningum, sérstaklega ef viðkomandi er óviss um kynhneigð sína. Það virðist vera algengara að konur séu forvitnar um kynlíf með öðrum konum. Þá telja sumir að um þriðjungur gagnkynhneigðra kvenna hafi haft kynferðislegar hugsanir og/eða upplifanir með öðrum konum. Það sama virðist ekki gilda um karlmenn og eru þeim settar töluvert þrengri skorður. Þetta getur haldist í hendur við hversu opinskátt fjallað er um málið í sam- félaginu. Einnig spila inn í viðhorf líkt og fordæming, til dæmis að gagn- kynhneigðir karlar geti ekki verið með öðrum körlum, og tískubylgjur, líkt og að það sé „flippað“ að gagnkynhneigðar stelpur fari í sleik hver við aðra. Þá eru til þeir sem neita að flokkast undir ákveðna kyn- hneigð og verða ástfangnir af viðkomandi einstaklingi, óháð líffræðilegu kyni hans. ?Sæl Sigga Dögg, Fyrst vil ég hrósa þér fyrir skemmti-lega og fræðandi pistla. Mig langaði að athuga hvort þú sætir á einhverjum ráðum fyrir konur á miðjum aldri sem finna til lítillar kynlífslöngunar? Ég er ein slík og er dagamunur á hvort það pirrar mig eða ekki, stund- um langar mig að finna fyrir þessari nánd með manni mínum sem kemur í kjölfar samlífs, aðra daga leiði ég hugann lítið að þessu. Svar: Margt getur spilað inn í kynlífs löngun. Ein rann- sókn sýnir að líkamsímynd hafði sterkari áhrif á kyn- lífslöngun og kynferðislega ánægju en breytingaskeiðið! Því gæti verið áhugavert fyrir þig að skoða þína líðan í því samhengi. Umdeildur ástralskur kynfræðingur líkti kynferðislegri löngun kvenna við hringrás sem byggir á samspili tíðni kynferðislegrar hegðunar og hugsana. Því oftar sem þú stundar ánægjulegt kynlíf, hvort sem er ein eða með maka, því meiri verður löngunin. Þannig skapast jákvæð endurgjöf því jákvæðar afleiðingar kyn- lífs, líkt og afslöppun, nánd og vellíðan, auka líkurnar á að þú viðhaldir hegðuninni. Sami kynfræðingur taldi einnig að konur ættu að leyfa sér að hugsa um kyn- líf og njóta þess þegar þær finndu til löngunar. Hér er sjálfsfróun mikilvæg. Rannsóknir hafa sýnt að konur stunda síður sjálfsfróun en karlar og það getur á viss- an hátt útskýrt minni kynlífs löngun. Þá vil ég mæla með að þú prófir sleipiefni með næstu atlotum þar sem það hefur sýnt sig að það geti bætt kynferðis- legan unað beggja aðila. Nú er mál að leyfa sér að eiga notalega stund með sjálfri þér og þegar þú ert tilbúin, að bjóða makanum með. Ofurfyrirsætan Naomi Camp-bell hefur verið fengin til að hanna gallabuxnalínu fyrir ít- alska tískumerkið Fiorucci. Sögur herma að línan verði frumsýnd á herratískuvikunni í Mílanó sem fram fer um þessar mundir. Fiorucci náði miklum vin- sældum á áttunda áratugnum en vinsældir fyrirtækisins hafa dalað síðan þá og mun þetta vera liður í því að blása svolitlu lífi í merkið. Fiorucci var ný- verið keypt af ítalska fyrirtækinu Ittierre sem rekur meðal annars tískuhúsin Balmain og Galliano. Mörgum kann þó að þykja undar- legt að Fiorucci hafi valið Camp- bell til starfsins þar sem fyrir- sætan klæðist sárasjaldan galla- buxum. Enn er ekki vitað hvort línan verður á herra eða hvort hún verður fáanleg utan Ítalíu. Campbell reyndi síðast fyrir sér sem hönnuður árið 2008 þegar hún hannaði línu fyrir brasilískt fatamerki. Sú lína var aðeins seld í Brasilíu og vakti ekki mikla at- hygli. Það verður því forvitnilegt að sjá afrakstur samstarfs Camp- bell og Fiorucci. - sm Naomi Campbell hannar gallabuxnalínu: Fyrirsæta í nýtt hlutverk Nýtt hlutverk Ofurfyrirsætan hefur tekið að sér að hanna gallabuxnalínu fyrir ítalska tískumerkið Fiorucci. NORDICPHOTOS/GETTY Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur Tískumerkin Mundi, Forynja, E- Label og Birna halda lagersölu í Fellsmúla 28, við hliðina á góða hirðinum, í dag og á morgun. Til sölu verða sýnishorn af hönnun tískumerkjanna, bæði ný og gömul, og verður allt að átta- tíu prósent afsláttur af vörunum. Áhugafólk um íslenska hönnun ætti því að gera sér ferð í Fells- múlann um helgina og gera góð kaup. Gamanið hefst klukkan 10. Lagersala í Fellsmúla: Hönnun fyrir alla Góð kaup Hægt er að gera góð kaup í Fellsmúlanum um helgina. Tískumerkin Mundi, Forynja, E-Label og Birna halda þar lagersölu. OPNUNART ÍMI MÁN-FÖS 1 0-18 LAU 11-17 S. 572 3400 Sumarsprengja 50 - 70% afsláttur Engin vara á yfir 9.990 kr Firði, Hafnarfirði • Sími 572 3400

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.