Fréttablaðið - 24.06.2011, Síða 34
24. júní 2011 FÖSTUDAGUR22
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. Listastefna, 6. tveir eins, 8. iðn, 9.
smáskilaboð, 11. ónefndur, 12. vegna,
14. aurasál, 16. í röð, 17. rölt, 18.
eyrir, 20. íþróttafélag, 21. velta.
LÓÐRÉTT
1. uss, 3. frá, 4. land í Evrópu, 5. beita,
7. umhirða, 10. hallandi, 13. dvelja, 15.
listi, 16. blaður, 19. ullarflóki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dada, 6. uu, 8. fag, 9. sms,
11. nn, 12. sökum, 14. nánös, 16. mn,
17. ark, 18. aur, 20. kr, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. suss, 3. af, 4. danmörk,
5. agn, 7. umönnun, 10. ská, 13. una,
15. skrá, 16. mas, 19. rú.
Hey!
Nei, þær vilja láta
flauta á eftir sér!
Þær eru
þá svona
einfaldar.
Félagi, sástu í
hverju Sara var?
Þetta er alveg ótrúlegt...
með svona litlu...og svo
nánast...og...
Félagi, það er
ekki eðlilegt að
þú sért slefandi
yfir því að lýsa
klæðnaði.
Af hverju
er skyrtan
þín svona
blaut?
Þá GOTT UPPELDI Nú
Ég held að þú
hafir lært þína
lexíu að vera
ekki að klifra í
trjám.
Við þurfum
að óska eftir
því að tré
verði gerð
örugg.
Tvær fréttir vöktu sérstaka athygli mína síðustu daga, þegar blöðunum var flett
yfir fyrsta kaffibolla dagsins. Fréttirnar
eru annars vegar að sjötíu prósentum
dýrara er að aka hringinn um Ísland og
hins vegar að kjördæmapot hafi nú verið
upprætt af fjárlaganefnd.
TENGJAST fréttirnar í raun báðar fjár-
málum og Alþingi. Önnur fjallaði um að
lítrinn af bensíni hafi kostað 124 krónur
árið 2007 en kosti nú 234 krónur enda hafa
skattar á bensínlítra hækkað úr 64 í 114
krónur á sama tímabili. Hin fréttin var um
að Alþingi muni ekki úthluta styrkjum til
samtaka, félaga og einstaklinga frá og með
næsta ári heldur ætli það að ákveða hversu
háar upphæðir renni til einstakra mála-
flokka en láta lögbundnum sjóðum, sveitar-
félögum, ráðuneytum og fleirum eftir
að úthluta styrkjunum. Áhugavert er að
velta fyrir sér tengslum þessara tveggja
frétta eða öllu heldur hvernig þær gætu
tengst.
BENSÍNIÐ hefur á undanförnum
árum hækkað talsvert sem rekja má
til aukinnar skattlagningar og hækk-
unar heimsmarkaðsverðs á eldsneyti.
Leiðir þessi hækkun óhjákvæmilega
til þess að margir landsmenn hugsa
meira um bensíneyðsluna sem aftur
verður til þess að það dregur úr
umferð á landinu. Meirihluti þjóðar-
innar býr á höfuðborgarsvæðinu og
því dregur úr ferðalögum meirihlutans
út fyrir borgarmörkin sem aftur bitnar á
ferðaþjónustuaðilum landsbyggðarinnar.
KJÖRDÆMAPOT er skilgreint í íslenskri
orðabók á heimasíðunni snara.is á þann
hátt: (óviðeigandi) störf þingmanns að
hagsmunamálum kjördæmis síns. Með
kjördæmapotinu eru þingmenn því að
hygla kjósendum í sínu eigin kjördæmi á
kostnað annarra kjördæma, til dæmis með
því að veita styrki eins og umrædd frétt
fjallar um eða stuðla að auknum fram-
kvæmdum í heimabyggð.
ÞEGAR dregur úr ferðalögum landans,
vegna mikillar hækkunar eldsneytis-
verðs, hagnast landsbyggðin minna þar
sem færri ferðamenn eiga leið um svæðið.
Því má einnig segja að kjördæmapot
landsbyggðarþingmanna minnki á sama
tíma, en á móti kemur að þingmenn
Reykjavíkurkjördæmanna tveggja og Suð-
vesturkjördæmis vinna að því að meiri-
hluti þjóðarinnar dvelji heima við, á höfuð-
borgarsvæðinu, og því aukast tekjur helstu
afþreyingastaða svæðisins. Kjördæma-
potararnir lifa því góðu lífi á höfuðborgar-
svæðinu þrátt fyrir að þeir séu í útrým-
ingarhættu á landsbyggðinni. Háir skattar
á eldsneyti og að Alþingi hætti að úthluta
styrkjum til samtaka, félaga og einstak-
linga frá og með næsta ári, verður því til
þess að þessi ákveðna tegund manna, kjör-
dæmapotararnir, deyr út. Eða hvað?
Tegundinni útrýmt?
BAKÞANKAR
Mörtu Maríu
Friðríks-
dóttur
Meðal annars efnis:
Íslendingar dafna
Nýjar kannanir benda til að þrátt fyrir allt sé þjóðarsálin að
rétta úr kútnum.
Rýnt í ráðherraráðið
Í stað þess að fórna ungmennum sínum á vígvellinum eins
og áður fyrr leysa Evrópuríki ágreining með því að læsa
embættismenn í gluggalausum herbergjum og hleypa þeim
ekki út fyrr en samkomulagi hefur verið náð.
Jakkafötin skipta um kyn
Jakkaföt og bindi eru ekki bara fyrir
fyrir herra, eins og sést á sumartískunni.
Veruleikinn kemur raun-
sæinu á óvart
Einar Már Guðmundsson ræðir Banka-
stræti núll og spyr hvers vegna þeir sem
áður gagnrýndu kerfi nýfrjálshyggjunnar
eru orðnir verjendur þess í dag.