Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2011, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 30.06.2011, Qupperneq 4
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR4 GENGIÐ 29.06.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,2129 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,65 115,19 183,72 184,62 165,25 166,17 22,152 22,282 21,231 21,357 17,939 18,045 1,4132 1,4214 182,99 184,09 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is FULLUR 11 KG GASKÚTUR + NÝR ÞRÝSTIJAFNARI Fullur 11 kg gaskútur þegar þú skilar tómum 9 kg kút á Olís-stöð. Að auki fylgir nýr þrýstijafnari. Takmarkað magn. www.olis.is 50 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið HÓPKAUP.IS Í DAG í krafti fjöldans hópkaup.is 2.628 kr. GILDIR Í 48 TÍMA 5.475 kr. Verð 52% Afsláttur 2.847 kr. Afsláttur í kr. DÓMSMÁL Þremenningarnir sem ákærðir voru í hinu svokallaða Exeter-máli voru allir sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær- morgun. Málið er annað mál sér- staks saksóknara sem endar með dómi, en í fyrra málinu, sem sner- ist um innherjasvik Baldurs Guð- laugssonar, var sakborningurinn fundinn sekur. Í Exeter-málinu voru fyrrver- andi æðstráðendur Byrs, spari- sjóðsstjórinn Ragnar Z. Guðjóns- son og stjórnarformaðurinn Jón Þorsteinn Jónsson, ákærðir fyrir umboðssvik. Þeim var gefið að sök að hafa brotið flestar lánareglur þegar þeir ákváðu í sameiningu að lána félaginu Exeter Holding sam- tals milljarð króna. Féð var síðan notað til að kaupa stofnfjárbréf í Byr af MP banka og starfsmönnum Byrs svo ekki yrði gengið að þeim. Dómurinn var fjölskipaður. Fyrir honum fór Arngrímur Ísberg, en meðdómendur voru Ragnheiður Harðardóttir og sérfræðingurinn Einar Ingimundarson, forstöðu- maður lögfræðisviðs Íslenskra verðbréfa. Arngrímur og Einar voru sam- mála um að sýkna bæri alla þrjá. Niðurstaða þeirra er sú að Ragnar hafi haft heimild til að veita há lán einn síns liðs, án aðkomu stjórnar eða lánanefndar, og að verulegur vafi leiki á um hvort stofnfjárbréf- in hafi verið ófullnægjandi trygg- ing fyrir láninu eins og ákæruvald- ið heldur fram. Segir í niðurstöðunni að tví- menningarnir, einkum Ragnar, hafi sannarlega farið á svig við lánareglur með því að kanna ekki stöðu lántakandans og hafi auk þess verið vanhæfir til að veita hærra lánið af tveimur. Þetta tvennt breyti því ekki að mönnunum hafi ekki mátt vera ljóst í október 2008 að með lánveit- ingunni myndu þeir skuldbinda sparisjóðinn þannig að hann biði tjón af, eins og síðar varð raunin. Ásetningur þeirra hafi því ekki staðið til þess að misnota aðstöðu sína og stefna fé sjóðsins í hættu. Ragnheiður skilar hins vegar sératkvæði og vill sakfella Jón Þorstein og Ragnar. Varúðar hafi ekki verið gætt við lánveitinguna, eins og reglur hafi kveðið á um, og mönnum hljóti að hafa verið ljóst á þessum tíma að sjóðurinn hefði beðið töluvert tjón af hruni fjár- málakerfisins og að virði stofnfjár- bréfanna hefði þar með rýrnað. Þau hafi aldrei getað talist fullnægj- andi trygging fyrir láninu. Allir dómarar eru hins vegar sammála um að sýkna beri Styrmi Þór Bragason, fyrrverandi for- stjóra MP banka, af ákæru um hlut- deild í umboðssvikum hinna fyrr- nefndu og peningaþvætti. stigur@frettabladid.is Klofinn dómur sýknaði alla sakborninga í Exeter-málinu Þremenningarnir í Exeter-máli sérstaks saksóknara voru allir sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Einn dómaranna skilaði sératkvæði og vildi sakfella fyrrverandi æðstráðendur Byrs fyrir umboðssvik. SÁTTUR Styrmir Þór Bragason mætti í dómsuppkvaðninguna í gær einn sakborning- anna. Hann var ánægður með niðurstöðuna, þótt hann hafi að eigin sögn átt von á henni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Dómurinn er nokkuð afdráttarlaus gagnvart mér og staðfestir þá trú sem ég hef alltaf haft,“ segir Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka. Allir dómarar málsins voru sammála um að sýkna bæri Styrmi í málinu. Styrmir segir niðurstöðuna létti þótt hann hafi átt von á henni. „Ég hef aldrei skilið almennilega ákæruna á hendur mér. Þetta snýst um meint umboðssvik í annarri fjármálastofnun en ég starfaði hjá. Þar voru starfs- menn og stjórnendur sem komu að þessum ákvörðunum. Ég var ekki í neinni aðstöðu til að koma að lánveitingum í annarri fjármálastofnun og finnst einkennilegt að fá á mig ákæru fyrir að standa mig of vel fyrir þá fjár- málastofnun sem ég starfaði hjá,“ segir hann. - eh Styrmir skildi aldrei ákæruna PÁFINN MEÐ IPAD Páfagarður hefur nú ákveðið að tæknivæðast og er kominn á Twitter. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VATÍKANIÐ, AP Benedikt sextándi páfi er kominn á samskiptasíðuna Twitter. Í gær skrifaði páfinn sín fyrstu skilaboð á síðuna með iPad, þar sem stóð: „Kæru vinir, ég hef nú opnað síðuna www.news.va Lof sé drottni vorum Jesú Kristi! Með blessun og virðingu, Benedictus XVI.“ Síðan er tengd fréttasíðu Vatík- ansins, sem samræmir nú í fyrsta sinn fréttir og upplýsingar úr dag- blöðum, útvarpi og sjónvarpi smá- ríkisins. - sv Vatíkanið tæknivæðist: Páfinn lofar Jesú á Twitter DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært mann fyrir glæfraakstur undir áhrifum fíkniefna og rangar sakargiftir, sem urðu til þess að bróðir hans var tvívegis ákærður fyrir brot sem sá fyrrnefndi hafði sjálfur framið. Maðurinn var tvisvar tekinn við akstur undir áhrifum fíkniefna. Í síðara skiptið ók hann á ofsahraða um höfuð- borgarsvæðið. Akstrinum lauk með því að bíll hans rann yfir á öfugan vegarhelming og reyndi hann þá að forða sér á hlaupum, en lögregla náði honum á sprett- inum. Í báðum tilvikum gaf hann up nafn og kennitölu bróður síns sem var ákærður fyrir aksturinn. - jss Ósvífinn ökuníðingur: Lét ákæra bróð- ur sinn tvisvar Arnfríður G. Arngrímsdóttir, saksóknarfulltrúi hjá sérstökum saksóknara, vildi ekki tjá sig um niðurstöðuna í héraðsdómi í gærmorgun, þar sem hún hafði ekki kynnt sér forsendur hennar. „Ákæruvaldið ákærir ekki nema að telja meiri líkur á sekt en sýknu,“ sagði hún spurð hvort dómurinn væri vonbrigði. Það er ríkissaksóknara að ákveða hvort málinu verður áfrýjað til Hæstaréttar. Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir að nú muni hún skoða for- sendur dómsins ásamt sérstökum saksóknara. „Við förum vandlega yfir það og tökum ákvörðun fljótlega,“ segir hún, en bendir á að héraðsdómur hafi verið klofinn í málinu. Ákvörðun um áfrýjun fljótlega EGYPTALAND, AP Meira en þúsund manns hafa meiðst í hörðum átök- um lögreglu við mótmælendur í miðborg Kaíró tvo daga í röð. Hundruð ungmenna hafa safn- ast saman á götum miðborgarinn- ar til að krefjast þess að málaferl- um gegn lögreglumönnum, sem sakaðir eru um hrottaskap, verði hraðað. Mótmælendum þykir herfor- ingjastjórnin, sem tók við völd- um eftir að Hosni Mubarak for- seti hraktist úr embætti snemma á árinu, hafa farið sér hægt í upp- gjöri við ofbeldið, sem lögreglan er sökuð um að hafa beitt meðan Mubarak reyndi enn að berja niður mótmælin. Aðfarir lögreglu og hers þá urðu til þess að um 850 mótmælendur létu lífið. Aðgerðir lögreglunnar núna gegn mótmælendum þykja minna óþægilega mikið á aðfarir hennar í janúr og febrúar. Lögreglan hefur notað táragas og skotið af byssum upp í loftið, en mótmælendur kasta grjóti og eldsprengjum á móti. Herforingjastjórnin hugðist stjórna til bráðabirgða og lofaði nýrri stjórnarskrá í haust. - gb Hörð átök mótmælenda og lögreglu í miðborg Kaíró tvo daga í röð: Seinlæti herforingja mótmælt ÁTÖK Í KAÍRÓ Mótmælendur krefjast þess að málaferlum verði hraðað. NORDICPHOTOS/AFP VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 28° 22° 20° 17° 20° 20° 19° 19° 27° 20° 29° 27° 30° 20° 21° 21° 23° Á MORGUN 5-10 m/s en 10-15 syðst. LAUGARDAGUR 3-8 m/s. 6 10 10 10 10 8 3 9 11 13 12 4 2 3 1 6 4 5 3 8 5 2 15 14 10 12 13 1813 14 14 12 HLÝINDI NYRÐRA Það dregur til tíðinda í veðrinu norðanlands en þar fer heldur hlýnandi og á laugardag má búast við allt að 20°C í björtu veðri. Fer að rigna syðra upp úr hádegi á morgun og má búast við vætu einkum sunnan og suðaustan til fram yfi r helgi. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður SVÍÞJÓÐ Sænsk heilbrigðisyfir- völd rannsaka nú uppruna E.coli-gerla smits á Skáni. Einstaklingur sem veiktist þar hefur engin tengsl við Þýskaland. Bakterían sem olli veikindunum er hins vegar af sömu tegund og sú sem fannst í Þýskalandi. Talið er að rekja megi veikindin til smitaðra matvæla. Meðal annars hafa strengjabaunir verið rann- sakaðar. Alls hafa 47 manns látist af völdum E.coli-sýkingarinnar sem herjaði í Þýskalandi. - ibs Veiktist af E.coli-gerlum: Svíar rannsaka nú nýtt smit
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.