Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 38
2 • POPP er fylgirit Fréttablaðsins. POPP kemur út einu sinni í mánuði. Ritstjóri: Atli Fannar Bjarkason atlifannar@frettabladid.is Útlitshönnun: Arnór Bogason Sölustjóri auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is • sími 512 5411 Útgefandi: 365 hf. Strákarnir í hljómsveitinni Agent Fresco ferðast nú um Evrópu. Þeir hafa komið víða við og krefjast þess að komast í sturtu eftir hverja tón- leika, sem gerir lyktina í rútunni bærilegri. „Maður er alltaf pínu hellaður þegar maður er búinn að sofa í bílnum,“ segir Arnór Dan Arnar- son, söngvari Agent Fresco. Agent Fresco er á tónleika- ferðalagi um Evrópu og Popp náði í Arnór rétt áður en hljóm- sveitin tróð upp á Hróarskeldu- hátíðinni í Danmörku. Þar byrjuðu upprennandi hljómsveitir að troða upp í byrjun vikunnar, en hátíðin hefst með formlegum hætti í dag. Agent Fresco fór út um miðjan júní og hefur þegar komið fram í Þýskalandi, Sviss, Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi, Austurríki, Hol- landi og Danmörku. „Þetta er búið að vera brjálað stuð og sjúklega skrautlegt,“ segir Arnór. „Þetta er fyrsti túrinn þannig að við vissum að við yrðum að vera tilbúnir að spila fyrir hvern sem er, hvar sem er. Við erum búnir að spila á stórum stöðum og allt niður í venjulega bari eins og í Reykjavík.“ Arnór segir viðtökurnar hafa verið mjög góðar og að margir Evrópubúar hafi augljóslega kynnt sér hljómsveitina áður en þeir mættu á tónleika. „Það jákvæða er að það er sama hversu margir mæta, fólk syngur alltaf eitthvað með í lögunum þannig að fólk hefur greinilega hlustað á okkur áður en við mættum. Það er besta tilfinningin, þegar fólk er að syngja með í löndum þar sem þeir kunna ekki að tala ensku,“ segir Arnór í léttum dúr. Agent Fresco ferðast um í níu manna langferðabíl ásamt hljóðmanni og fararstjóra. „Þetta er búið að vera sjúklega mikið ferðalag. Við keyrum stundum í tíu klukkutíma í senn,“ segir hann. En hvernig er lyktin? „Lyktin er sjúklega hressandi. Hluti af kröfunum okkar á tón- leikastöðunum eru sturtur, þannig að við höfum verið duglegir við að þrífa okkur. Við erum því miður voða lítið rokk og ról, held ég. En við erum samt rennandi sveittir hérna.“ Arnór og félagar leggja mikla áherslu á að fá góða gistingu þar sem þeir koma fram, en hingað til hafa þeir þurft frá að hverfa einu sinni vegna þess að að- staðan var ekki nógu góð. „Það var gististaður sem við þurftum að yfirgefa í Sviss. Þetta var eins og neðanjarðarbyrgi,“ segir hann og hlær. „30 dýnur og nokkrar sturtur, ekkert net og járnhurð. Við neituðum að gista þar vegna þess að Vignir [bassaleikari] sá könguló.“ Og hvað gerðuð þið? „Við fengum hótel.“ atlifannar@frettabladid.is FERSKIR Á FERÐ UM EVRÓPU TROÐIÐ Fullt af fólki mætti á tónleika Agent Fresco í Waldmeister í Þýskalandi. HLUSTAÐU á sumarpoppið hans Jóns Jónssonar. Kappinn var að gefa út plötuna Wait For Fate og viljum við stinga upp á því að næsta plata fái nafnið Of Fate fyrir mig. Ekki? Jæja, Jón ætti allavega að ná að ylja Íslendingum í sumarhretinu, en á plötunni eru smellir á borð við Lately og When You‘re Around, sem hafa notið talsverðra vinsælda á öldum ljósvakans. LIFÐU AF Í JÚLÍ FARÐU Á EISTNAFLUG Þungarokkshátíðin Eistnaflug er haldin í Neskaupstað á hverju ári. Flestar af helstu þungarokkshljómsveitum og rokkhljóm- sveitum landsins koma fram og þar má meðal annars nefna Skálmöld, Sólstafi, Mammút, Benny Crespo‘s Gang og ætlum við að hvetja lesendur til að kíkja á sunnlensku pönkhljóm- sveitina Elínu Helenu. GRILLAÐU Í guðs bænum settu eitthvað safaríkt á grillið. Það er svo fáránlega gott að fá sér góða steik eftir erfiðan dag í sólinni. Mælum með að fólk versli við kjötbúðir til að fá ferska vöru og svo er það bara að muna að grilla ekki of mikið. Rare, takk! 6 FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS • JÚLÍ 2011 GÍSLI PÁLMI„EF EINHVERN LANGAR AÐ FARA YFIR STRIKIÐ GAGNVART MÉR ER ÉG ENNÞÁ TIL ALLS LÍKLEGUR“ 4 FERSKIR Strákarnir í Agent Fresco fara ávallt í sturtu eftir tónleika. GK REYKJAVÍK ÚTSÖLUGLEÐI 20-60% AFSLÁTTUR ÞÉR OG ÞÍNUM ER BOÐIÐ Í ÚTSÖLUPARTÝ FRÁ 18:00 – 20:00 Í KVÖLD. HAPPADRÆTTI, LÉTTAR VEIGAR OG DÚNDRANDI FJER. LAUGAVEGI 66 –– 101 REYKJAVÍK –– S. 565 2820
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.