Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 40
4 • BÚINN AÐ LIFA LÍFINU NÓG Gísli Pálmi hefur ekki farið hefð- bundnu leiðina í gegnum lífið. Frá barnsaldri voru ávallt mikil læti í kringum hann að eigin sögn. Á unglingsárunum fór líf hans svo úr böndunum, hann hætti í skóla og fetaði vafasama braut. Hann hefur verið að rappa síðasta áratug, eða helming ævi sinnar en hann er fæddur árið 1991, árið sem ís- lenska landsliðið í bridds vann sigur á heimsmeistaramóti í Yokohama í Japan og bófarappið í Bandaríkj- unum blómstraði með nýjum plötum frá þá grjóthörðum Ice Cube og hljómsveitinni N.W.A. Gísli Pálmi vinnur tónlistina ásamt félaga sínum sem kallar sig FROSTY, en hann er nýkominn heim til Íslands frá Amsterdam þar sem hann lærði hljóðvinnslu. „Hljómgæðin í þessu lagi voru ekki einu sinni fullkomin. Ég var svo æstur í að henda upp myndbandi að ég fékk hann til að hljóðblanda lagið á tæpum hálftíma og sagði svo: „Ókei, flott!“,“ segir Gísli um smellinn þeirra Set mig í gang. Gísli og FROSTY hyggjast gefa út lög vikulega á næstunni og framleiða myndbönd við þau öll. Myndböndin eru birt á Youtube og hægt er að hala öllum lögunum niður frítt. Þessar aðferðir eru vel þekktar vestanhafs til að byggja upp aðdáendahóp, en rapparinn Lil‘ Wayne gerði aðferðina að list þegar hann dældi frá sér lögum í aðdraganda plötunnar Tha Carter III árið 2008. Meira en milljón eintök af plötunni seldust í vikunni sem hún kom út. Plötuútgáfa heillar hins vegar ekki Gísla Pálma — að minnsta kosti ekki á Íslandi. „Við þekkjum nokkra stráka sem hafa gefið út hipphopp-plötur á klakanum. Þetta er bara basl. Það er ekki eins og þeir séu á samningi í Bandaríkjunum og platan sé allt í einu gefin út án þess að þeir lyfti putta. Þeir eru hlaupandi á milli staða með plakötin og myndirnar og eru að vinna alla vinnuna. Svo leggja þeir út fyrir þessu og vona að þeir komi út í plús. Það er enginn að kaupa geisladiska í dag. Ég hef ekki labbað inn í Skífuna með gjafabréf sem ég fékk í jólagjöf frá því að ég var átta ára,“ segir Gísli. „Við stefnum á að fara með tónlistina lengra, hvort sem það verður peningur til eða ekki. Við ætlum að senda frá okkur tónlist sem er núna í gangi. Eftir sumarið byrja ég að semja texta á ensku og eftir það getum við kannski komið okkur á framfæri á heimsvísu. Þetta er sama tónlist og er spiluð í útvarpinu — það kemur alltaf versta tónlistin í íslenskt útvarp. Óútpældustu lögin.“ Gísli Pálmi er sonur athafnamanns- ins Sigurðar Gísla Pálmasonar, en hefur að eigin sögn ávallt unnið fyrir sínu og ekki notið fjárhags- lega góðs af fjölskyldutengslum sínum. Hann er maður með fortíð og hefur innistæðu til að nota orðið „gangster“ til að lýsa tónlist sinni, þar sem hann rappar um eigið líf og segist ekki ljúga neinu. „Ég segi aldrei ósatt. Ég er ekki að fara að segja frá dýpstu leyndarmálunum mínum, en þetta er meira og minna allt satt. Ég geri þetta fyrir alla og sérstaklega hópinn minn, sem finnst gaman að hlusta á tónlist. En „gangster“ er frekar asnalegt orð. Við erum bara venjulegir gaurar og erum búnir að ganga í gegnum margt. Búnir að taka þennan vesenspakka sundur og saman. Við erum samt ekki jafn grófir í dag, en ef einhvern langar að fara yfir strikið gagnvart mér er ég enn þá til alls líklegur.“ Aðspurður um viðbrögð við Set mig í gang segir Gísli kokhraustur að allir elski lagið og bætir við, ekki minna kokhraustur, að hreinlega allir hafi beðið eftir laginu. „Það vantaði svona tónlist. Það er búið að vera svo mikið píkudæmi í gangi. Það vantaði alvöru rapp. Á Íslandi eru þeir sem eru góðir í að skrifa texta ekki búnir að vera með nógu góða ÉG VAR ALVEG FARINN Í HAUSNUM O ALLS STAÐAR, TÓK ALLT ÓFRJÁLSR Í BULLANDI NEYSLU AUÐVITAÐ, RÆ TIL AÐ RÚNTA. Orð: Atli Fannar Bjarkason Myndir: Valli Ef þú hefur heyrt um rapparann Gísla Pálma eru góðar líkur á því að þú hafir fyrst heyrt um hann nýlega. Hann sendi frá sér lagið Set mig í gang á þjóðhátíðardaginn og annar hver maður hefur deilt myndbandinu við lagið á Facebook-vegg sínum undanfarnar vikur. Þar sést Gísli ber að ofan, hnykla vöðvana og í bakgrunni hefur Range Rover-jeppa verið lagt. Hann er reyndar í eigu vinar Gísla Pálma, sem er rétt að skríða yfir tvítugt. „Annar af tveimur,“ segir Gísli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.