Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 66
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR
Vinur við veginn
FJÓR
-
FALD
IR
VILD
ARPU
NKTA
R
ICELA
NDAI
R
HJÁ
OLÍS
30. J
ÚNÍ–3
. JÚL
Í
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-S
ÍA
Á sunnudag verða fjörutíu
ár liðin síðan Jim Morr-
ison, söngvari The Doors,
lést í París aðeins 27 ára.
Fréttablaðið tók saman
tíu áhugaverð ummæli frá
þessum mikla áhrifavaldi í
rokksögunni.
Ég man ekki eftir að
hafa fæðst. Það hlýtur
að hafa gerst í einhverju
óminnisástandi.
Dauðinn breytir okkur
í engla og gefur okkur
vængi í stað axla, silkimjúka
eins og arnarklær.
Þú skalt horfast í augu
við það sem þú
hræðist mest. Eftir það hefur
óttinn engin völd yfir þér og
óttinn við frelsið hverfur. Þú
verður frjáls.
Ástin getur ekki
bjargað þér frá ör-
lögum þínum.
Um leið og þú kemst í
sátt við yfirvöld
breytist þú sjálfur í yfirvald.
Ofbeldi er ekki alltaf
það sama og illska.
Illska er að heillast af ofbeldi.
Fólk óttast dauðann
meira en sársauka.
Það er skrítið því lífið er
sársaukafyllra en dauðinn.
Þegar maður deyr hverfur
sársaukinn. Ég myndi segja
að dauðinn sé vinur manns.
Vinur er sá sem veitir
þér algjört frelsi til að
vera þú sjálfur.
Eiturlyf eru veðmál við
hugann.
Ég lít á sjálfan mig
sem gáfaða, við-
kvæma manneskju með
trúðssál sem lætur mig
klúðra hlutunum á mikil-
vægum augnablikum.
40 ár frá dauða Morrison
LÉST Í PARÍS Fjörutíu ár eru liðin síðan Jim Morrison lést í París, aðeins 27 ára.
Kanadíska hljómsveitin The Saga
spilar í Vodafonehöllinni 4. nóvem-
ber. Sveitin naut töluverðra vin-
sælda á níunda áratugnum og
hennar þekktustu lög eru Wind
Him Up, On the Loose og Humble
Stance.
„Þetta er búinn að vera tveggja
ára prósess,“ segir tónleikahaldar-
inn Björgvin Rúnarsson um komu
The Saga til landsins. „Um leið
og Michael Sadler, söngvarinn úr
upprunalega bandinu, kom inn í
þetta aftur ákváðum við að slá til.“
Hann segir tónlistina höfða
meira til eldri tónlistarunnenda en
vonast til að fólk úr öllum aldurs-
hópum láti sjá sig í Vodafonehöll-
inni. „Ég er búinn að hlusta á þetta
band í mörg ár,“ segir Björgvin en
The Saga hefur gefið út tuttugu
hljóðversplötur á ferli sínum.
Björgvin stóð síðast fyrir komu
rokkaranna í Whitesnake hingað
til lands árið 2008. Tónleikarnir
gengu ágætlega og á fjórða þús-
und manns mættu. Engu að síður
töpuðu Björgvin og félagar tölu-
vert á ævintýrinu. „Mönnum féll-
ust hendur eftir það gigg. Gengis-
hrunið og allt fór með það út um
gluggann. Menn eru búnir að vera
að sleikja sárin eins og ýmsir í
þessum bransa. Núna gerir maður
öðruvísi samninga með útgöngu-
leið ef þér finnst giggið ekki vera
að skila sér.“
Miðasala á tónleika The Saga
hefst á Midi.is 5. júlí og eru 2.600
sæti í boði. - fb
The Saga til Íslands í nóvember
TIL ÍSLANDS Michael Sadler og félagar
í The Saga spila í Vodafonehöllinni 4.
nóvember.
Fyrirsætan Kate Moss
ætlar nú loks að ganga upp
að altarinu en sá heppni er
rokkarinn Jamie Hince.
Brúðkaupið fer fram á
heimili Moss á laugardag-
inn. Það er enginn annar en
hönnuðurinn John Galliano
sem hannar brúðarkjólinn
en þeim upplýsingum hefur
verið haldið leyndum hing-
að til.
Galliano hefur heldur betur verið
í sviðsljósinu á árinu en hann er
þessa dagana fyrir rétti vegna niðr-
andi ummæla í garð minnihluta-
hópa. Galliano byrjaði að hanna
kjólinn áður en hann kom sér í
vandræði og var rekinn frá
Dior tískuhúsinu.
Fyrirsætan og hönnuð-
irinn eru góðir vinir og
hafa starfað saman í mörg
ár. Talið er að Moss sé að
launa Galliano greiða því
þegar Moss þurfti að tak-
ast á við eiturlyfjavanda-
mál sín opinberlega árið
2005 stóð hönnuðurinn eins
og klettur við hlið fyrirsætunnar.
Þar sem Galliano er í meðferð á
stofnun í Sviss, er það teymi á hans
vegum undir stjórn kærasta hans,
Alexis Roche, sem sér um að leggja
lokahönd á kjólinn fyrir stóra dag-
inn.
Galliano hannar
brúðarkjólinn
JOHN GALLIANO
Rokksveitin Saktmóðigur gefur
á föstudag út tíu laga plötu sem
nefnist Guð hann myndi gráta.
Sveitin var stofnuð árið 1991
og hefur gefið út fimm titla í
ýmsu formi, eða eina kassettu,
tvær tíu tommu vínylplötur og
tvær geislaplötur sem heita Ég á
mér líf og Plata. Auk þess hefur
hljómsveitin gefið út lög á safn-
plötum. Útgefandi nýju plötunnar
er Logsýra og verður gripurinn
fáanlegur á helstu sölustöðum
tónlistar. Saktmóðigur spilar
næst á rokkhátíðinni Eistnaflugi
í júlí. Formlegir útgáfutónleikar
eru fyrirhugaðir í sumar.
Saktmóðigur
með plötu
NÝ PLATA Hljómsveitin Saktmóðigur
gefur á föstudag út plötuna Guð hann
myndi gráta.
GAMLIR
FÉLAGAR Kate
Moss gengur
að eiga Jamie
Hince um
næstu helgi
en hún valdi
John Galliano
til að hanna
brúðarkjólinn.
NORDICPHOTO/GETTY