Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 12
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR12
Maður setur ekki
verðmiða á börnin sín
FINNUR INGÓLFSSON
EIGANDI SPUNA
KRINGLAN OG SMÁRALIND
Útsalan er hafin
40% afsláttur
af öllum vörum*
*Nema af grunnvörunni/basic.
STEYPTUR Í BRONS Stytta af Ronald
Reagan, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seti, var afhjúpuð á Frelsistorginu í
Búdapest nú í vikunni. NORDICPHOTOS/AFP
HEIMSMEISTARI OG EIGANDI HANS Finnur segir að heyra hefði mátt saumnál detta
meðan beðið var eftir tölum dómara. Síðan brutust fagnaðarlætin út í brekkunni.
FRETTABLADID/HILDA KAREN
HESTAMENNSKA „Þetta var mögn-
uð stund,“ segir Finnur Ingólfs-
son, þegar hann lýsir því er tölur
kynbótadómara voru lesnar upp
á Landsmótinu á Vindheimamel-
um og til varð nýr heimsmeistari,
Spuni frá Vesturkoti, fimm vetra,
en hann fékk 8,87 í aðaleinkunn,
hæstu einkunn í heimi sem stóð-
hestur hefur fengið.
Að sögn forráðamanna Lands-
móts 2011 fjölgaði gestum mótsins
ört í gær og á góð veðurspá næstu
daga vafalaust sinn þátt í því.
Hesturinn Spuni er fyrsti kyn-
bótagripurinn sem Finnur og fjöl-
skylda hans rækta. Finnur segir
hann með einstakt og frábært
geðslag, auk annarra kosta.
Spurður um hvort verðmiði sé
kominn á hestinn svarar hann
stutt og laggott: „Maður setur
ekki verðmiða á börnin sín. Spuni
er ekki falur.“ - jss
Besti stóðhestur heims á Landsmóti:
Spuni Finns ekki falur
SAMGÖNGUR Kristján Möller, þing-
maður og fyrrum samgönguráð-
herra, deildi hart á eftirmann sinn
og félaga í stjórnarliðinu, Ögmund
Jónasson, á opnum fundi sem Sam-
tök atvinnulífsins efndu til um
fjárfestingar í samgöngumálum.
Kristján gagnrýndi meinta kyrr-
stöðu í samgönguframkvæmd-
um og einnig að samgönguáætl-
un fyrir næstu ár lægi ekki enn
fyrir. Beindi Kristján meðal ann-
ars spurningu til aðstoðarmanns
Ögmundar, sem var viðstaddur
fundinn, um það af hverju áætlun-
in hafi ekki verið lögð fyrir vor-
þing.
„Þetta er mjög alvarlegt mál,“
sagði Kristján, „því að fjölmörg
ríkisverkefni eru tilbúin og hægt
væri að bjóða þau út á morgun.“
Kristján minntist einnig á
umræðu um fjármögnun fram-
kvæmda með veggjöldum. Þótti
honum sem hún hafi mótast af mis-
skilningi og rangtúlkunum. Ekki
hafi staðið til, frá hans hálfu, að
veggjöld yrðu lögð ofan á aðrar
álögur á vegfarendur.
Hann minnti á að nýleg lög um
samgönguframkvæmdir, þar sem
meðal annars er kveðið á um heim-
ild til að innheimta veggjöld, hafi
verið samþykkt
með miklum
meirihluta. Það
virtist honum
nú hafa verið
slegið út af
borðinu.
„Ég harma
mjög að þessum
áformum hafi
ekki verið fylgt
betur eftir af eftirmanni mínum,
en raun ber vitni,“ sagði Kristján
og bætti því við að í nýlegri grein
Ögmundar í Fréttablaðinu mætti
lesa skilaboð um að ekkert yrði
gert í þessum stórframkvæmdum.
Að mati Kristjáns eru hagvöxtur
og framkvæmdir það sem þarf til
að komast út úr kreppunni. Hluti
lausnarinnar lægi í því að fá alla
hagsmunaaðila, sveitarfélög og
fleiri, saman til að mynda sátt um
tekjukerfi til framtíðar.
Aðrir frummælendur á fund-
inum voru Orri Hauksson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
og Þorvarður Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri Sambands sunn-
lenskra sveitarfélaga.
Orri sagði að þó skiljanlega sé
fjárhagsstaða hins opinbera slæm,
sé það ekki afsökun fyrir því að
hafna tækifærum til framkvæmda
sem fjármögnuð séu með öðrum
hætti en áður hafi verið gert.
„Við þurfum að fjárfesta í arð-
bærum verkefnum sem auka hag-
vöxt. Samgöngumannvirki eru
aðgengileg, markviss og fram-
kvæmanleg og því þarf ekki mikið
til að koma þeim í gang.“
Loks lagði Þorvarður til að
mörkuð yrði tólf ára stefna um
120 milljarða stórframkvæmdir í
samgöngumálum, sem fjármagn-
aðar yrðu með láni frá lífeyris-
sjóðunum. Þessi áform þyrftu að
hefjast sem fyrst með samstilltu
átaki allra þeirra sem eiga aðild að
málinu. thorgils@frettabladid.is
Fyrrverandi ráðherra ósáttur
við aðgerðaleysi Ögmundar
Fyrrum samgönguráðherra gagnrýndi Ögmund Jónasson innanríkisráðherra vegna stefnu hans í fjár-
mögnun framkvæmda í samgöngumálum. Frummælendur á fundi SA kölluðu eftir samstilltu átaki.
FRÁ SUÐURLANDSVEGI Framkvæmdir standa yfir á kafla af Suðurlandsvegi, en
háværar kröfur eru um að þær verði settar á fullt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KRISTJÁN MÖLLER
DANMÖRK Maður sem rændi banka
í Óðinsvéum í gær komst ekki
langt eftir glæpinn.
Hann ruddist inn í banka í mið-
bænum að morgni dags, ógnaði
starfsfólki með hnífi og hafði á
brott með sér óþekkta peninga-
upphæð.
Flóttinn var þó ekki farsæll að
því er fram kemur á vef Jótlands-
póstsins. Starfsmaður bankans
elti ræningjann niður götuna og
lögregla bættist fljótt í hópinn.
Eltingaleiknum lauk á þaki Radis-
son hótels í nágrenninu og ræn-
inginn, ásamt ránsfengnum, var
kominn í hendur lögreglu sjö mín-
útum eftir að ránið var framið. - þj
Seinheppinn bankaræningi:
Náðist eftir sjö
mínútna eftirför
BRETLAND, AP Þúsundir breskra
skóla verða lokaðir og ferðamenn
mega búast við töfum og löngum
biðröðum nú í vikunni, þegar um
750 þúsund manns fara í verkfall.
Þetta er þó aðeins fyrsta verk-
fallið af mörgum, sem Bretar
eiga í vændum nú í sumar.
Ástæðan er meðal annars mót-
mæli launafólks gegn skatta-
hækkunum bresku stjórnarinnar
og niðurskurði í ríkisfjármálum,
sem meðal annars bitnar á bóta-
þegum. - gb
Bretar í verkfall í dag:
Búa sig undir
verkfallssumar
AKUREYRI Icelandair opnaði formlega nýtt hótel
á Akureyri í gær, Icelandair hótel Akureyri.
Félagið hefur gert leigusamning til næstu 20 ára
um rekstur heilsárshótels í húsinu að Þingvalla-
stræti 23, en húsið hýsti áður meðal annars Iðn-
skóla Akureyrar og Háskólann á Akureyri.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, hótelstjóri og fyrr-
um bæjarstjóri Akureyrar, segir hótelið kær-
komna viðbót fyrir bæinn.
„Þetta er yndislegur staður og umhverfið
eins og best verður á kosið,“ segir hún, og bætir
við að hún kunni afar vel við sig í nýja starf-
inu. „Þetta er það sem ég gerði í gamla daga og
nýt þess mjög.“ Varðandi ferðamenn yfir sum-
arið segist Sigrún þó hafa áhyggjur af ferðalög-
um Íslendinga og það sé ómögulegt að sjá fyrir
hvernig þeir muni skila sér.
Hótelið er það sjöunda sem
Icelandair hótelkeðjan opnar.
Magnea Þórey Hjálmars-
dóttir, framkvæmdastjóri
Flugleiðahótela ehf., segir
fyrirtækið lengi hafa haft
augastað á Akureyri sem
vænlegri staðsetningu fyrir
nýtt hótel.
„Icelandair hótel Akur-
eyri er því kærkomin viðbót í
okkar rekstur og við hlökkum til að leggja okkar
af mörkum við að byggja enn frekar upp það
góða starf sem átt hefur sér stað í ferðaþjónustu
Akureyrarbæjar fram til þessa.” - sv
Nýtt Icelandair hótel opnar í gamla húsnæði Iðnskólans á Akureyri:
Fyrrverandi bæjarstjóri stýrir nýju hóteli
SIGRÚN BJÖRK
JAKOBSDÓTTIR
ICELANDAIR HÓTEL AKUREYRI Hótelið er með upphit-
aða skápa og geymslur í kjallara fyrir fatnað skíðafólks.