Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 30. júní 2011 23
Eins og prófessorarnir Sigurður Líndal og Svanur Kristjánsson
hafa lýst öðrum betur í ræðu og
riti, hafa margir haft rangar hug-
myndir um stjórnarskrárbreyt-
inguna, sem samþykkt var í þjóð-
aratkvæðagreiðslu 1944. Sumir
hafa haldið því fram, og margir
virðast enn halda, að stjórnar-
skrárbreytingin 1944 hafi verið
gerð í skyndingu og án vandlegrar
umræðu; að fyrir og eftir breyt-
inguna hafi landið í megindráttum
haft sömu stjórnskipun, þingræð-
isstjórn; og að forseti Íslands væri
valdalítill þjóðhöfðingi samkvæmt
stjórnarskránni og einnig í reynd.
Ekkert af þessu er þó rétt.
Þjóðin reis upp ...
Fyrir stjórnarskrárbreytinguna
1944 fór fram á Alþingi og utan
þess rækileg og upplýst umræða
um lýðræði og stjórnskipun
Íslands eins og lesa má í Alþingis-
tíðindum. Meiri hluti stjórnar-
skrárnefndar Alþingis lagði til, að
þingið kysi forseta Íslands og gæti
vikið honum frá. Tillagan var í
samræmi við ríkjandi lýðræðis-
hugmyndir í Vestur-Evrópu um
alvald lýðkjörins þjóðþings milli
kosninga og gerði ekki ráð fyrir
sjálfstæðum þjóðhöfðingja. Þorri
þjóðarinnar hafnaði þessari til-
lögu um alvald Alþingis og ósjálf-
stæðan forseta. Tímaritið Helga-
fell birti 1943 skoðanakönnun,
sem Torfi Ásgeirsson hagfræð-
ingur sá um, en hann var fyrsti
sérfræðingur landsins í gerð skoð-
anakannana. Þar lýstu 70 pró-
sent þeirra 581, sem spurðir voru
um allt land, fylgi við þá tillögu,
að forseti Íslands yrði þjóðkjör-
inn, en aðeins 20 prósent vildu, að
Alþingi kysi forsetann. Ríkjandi
skoðun meðal þjóðarinnar var
þá og er enn, að ólýðræðislegt sé
og óheilbrigt að hafa allt vald á
einni hendi, hendi Alþingis. Með
þjóðina að baki sér tókst Sveini
Björnssyni ríkisstjóra að sann-
færa forustumenn stjórnmála-
flokkanna um réttmæti þess, að
forsetinn yrði þjóðkjörinn. Landið
var í reyndinni stjórnlaust 1942,
þar eð stjórnmálaflokkarnir höfðu
ekki getað komið sér saman um
myndun stjórnar. Ríkisstjórinn
taldi sig því ekki eiga annan kost
en að skipa utanþingsstjórn, og sat
hún frá 1942 til 1944.
... og hafði sitt fram
Þjóðin fékk því með þessu móti
framgengt, að í stjórnarskránni
1944 væri vörðuð ný leið til lýð-
ræðis á þann veg, að þjóðin kysi
sér forseta í kosningum, þar
sem landið er eitt kjördæmi og
atkvæðisréttur er jafn og óháður
búsetu. Forsetinn sækir umboð
sitt og vald til þjóðarinnar, en
hvorki til Alþingis né ríkisstjórn-
ar. Alþingi getur samþykkt van-
traust á forsetann, en þjóðin ein
getur vikið honum frá. Fyrstu
þrjár greinar gildandi stjórnar-
skrár lýsa forsetaþingræðinu, en
í því felst, að forseti og Alþingi
fara saman með löggjafarvaldið
og forseti og önnur stjórnvöld með
framkvæmdarvaldið. Stjórnskip-
un Íslands er því forsetaþingræði
(e. semi-presidential government),
sem er millistig milli þingræðis
og forsetaræðis. Allt var þetta
með ráðum gert á sínum tíma til
að tryggja, að þjóðkjörinn forseti
gæti temprað vald Alþingis og rík-
isstjórnar, ef á þyrfti að halda.
Þannig varð gagnger breyt-
ing með lýðveldisstjórnarskránni
1944. Í stað konungsþingræðis að
forminu til og þingræðis í reynd
kom forsetaþingræði, þar sem
Alþingi og ríkisstjórn deildu valdi
sínu með þjóðkjörnum forseta. Á
þessari breytingu var skilning-
ur meðal stjórnmálamanna, þótt
annað væri jafnan látið í veðri
vaka. Ólafur Thors, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sendi ásamt
Bjarna Benediktssyni og Jóhanni
Hafstein flokksmönnum sínum
bréf fyrir forsetakosningarnar
1952 og sagði þar, „að forseta-
embættið sé „pólitísk staða“ og á
„örlagaríkustu augnablikum“ fari
forseti Íslands „með meira vald og
getur því ráðið meiru um fram-
tíðarheill þjóðarinnar en nokkru
sinni hefur verið á eins manns
færi að gera, allt frá því land
byggðist ....““ (Matthías Johann-
essen (1981), Ólafur Thors II, bls.
211-212). Svo sem til var stofnað,
hefur forseti Íslands haft umtals-
verð áhrif á vettvangi stjórnmál-
anna, bæði við stjórnarmyndanir
(1958-59 og oftar) og með beitingu
málskotsréttar síns samkvæmt 26.
grein stjórnarskrárinnar 2004 og
tvisvar síðan.
Temprandi áhrif forsetans
Því er þessi saga rifjuð upp hér, að
Stjórnlagaráð fjallar nú um verka-
skiptingu Alþingis, ríkisstjórnar
og forseta Íslands við vinnu sína
að tillögum um nýja stjórnarskrá.
Ég tel í ljósi sögunnar þörf á að
halda í og efla temprandi áhrif
forsetans á Alþingi með því að (a)
varðveita frumkvæði forsetans að
stjórnarmyndunum, (b) veita for-
setanum skýra heimild til að skipa
utanþingsstjórn við sérstakar
aðstæður líkt og Ólafur Jóhannes-
son prófessor mælti með 1945, (c)
halda í málskotsréttinn og færa
hann út með því að láta hann ná
einnig til þingmála, sem ná ekki
fram að ganga, og (d) fela forset-
anum að skipa, helzt að fengnum
tillögum lögbundinnar nefndar,
dómara og ef til vill einnig for-
stjóra fáeinna ríkisstofnana, sem
brýnt er, að séu sjálfstæðar gagn-
vart Alþingi og ríkisstjórn. Þörfin
fyrir valdmörk og mótvægi hefur
sjaldan verið ríkari en nú, þar eð
ófriður milli stjórnmálaflokka og
innan þeirra hefur sjaldan verið
meiri en nú eftir hrun. Rösklega
tuttugu nýjar stjórnarskrár hafa
litið dagsins ljós í Mið- og Austur-
Evrópu frá 1990. Flestar þjóð-
anna þar hafa kosið forsetaþing-
ræði með gagnkvæmu aðhaldi og
eftirliti til að halda flokksræði í
skefjum.
Forsetaþingræði á Íslandi
Í DAG
Þorvaldur Gylfason
prófessor
Forsetinn sækir
umboð sitt og
vald til þjóðarinnar, en
hvorki til Alþingis né
ríkisstjórnar.
AF NETINU
Hjólafólk svikið
Kúvending virðist hafa orðið á
stefnu borgarinnar í uppbyggingu
Reykjavíkur sem hjólaborgar, eftir
að meirihluti Samfylkingar og
Besta flokksins tók við völdum.
Áætlun hans um lagningu 1,6 km
af hjólastígum á þessu ári er blaut
tuska í andlit þeirra sem hjóla
og trúað hafa á uppbyggingu
Reykjavíkur sem framúrskarandi
hjólaborgar.
Fyrir liðlega ári samþykktu allir
flokkar í borgarstjórn að árlega
skyldi 10 km af hjólastígum bætt
við kerfið, næstu 3 árin.
http://eyjan.is/goto/gislimar-
teinn
Gísli Marteinn Baldursson
Skammarlegt
Það að auglýsingar frá hvalavinum
hafi verið teknar niður á Kefla-
víkurflugvelli er ekki bara grín.
Nei, þetta er atlaga að tjáningar-
frelsinu. Framganga stjórnenda
flugvallarins í þessu máli er til
háborinnar skammar.
Auglýsingarnar sem ganga út á
að fólk skuli skoða hvali en ekki
éta þá eru ljómandi kurteislegar
– brjóta ekki gegn neinu velsæmi.
Það skiptir engu máli hvort maður
er sammála boðskap þeirra eða
ekki, hann á fullan rétt á sér.
Það er sjálfsögð krafa að þessar
auglýsingar verði settar upp aftur.
http://silfuregils.eyjan.is
Egill Helgason
3 Smárar Smáralind • 578 0851
Útsalan í 3 smárum
er hafi nn
Opið til 21 í Kringlu og Smáralind
30-50% afsl 3 smárar
Smáralind Kringlunni
og Laugarvegi.