Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 40
4 •
BÚINN AÐ
LIFA LÍFINU
NÓG
Gísli Pálmi hefur ekki farið hefð-
bundnu leiðina í gegnum lífið. Frá
barnsaldri voru ávallt mikil læti
í kringum hann að eigin sögn. Á
unglingsárunum fór líf hans svo
úr böndunum, hann hætti í skóla
og fetaði vafasama braut. Hann
hefur verið að rappa síðasta áratug,
eða helming ævi sinnar en hann
er fæddur árið 1991, árið sem ís-
lenska landsliðið í bridds vann sigur
á heimsmeistaramóti í Yokohama í
Japan og bófarappið í Bandaríkj-
unum blómstraði með nýjum plötum
frá þá grjóthörðum Ice Cube og
hljómsveitinni N.W.A. Gísli Pálmi
vinnur tónlistina ásamt félaga sínum
sem kallar sig FROSTY, en hann
er nýkominn heim til Íslands frá
Amsterdam þar sem hann lærði
hljóðvinnslu.
„Hljómgæðin í þessu lagi voru
ekki einu sinni fullkomin. Ég var svo
æstur í að henda upp myndbandi
að ég fékk hann til að hljóðblanda
lagið á tæpum hálftíma og sagði
svo: „Ókei, flott!“,“ segir Gísli um
smellinn þeirra Set mig í gang. Gísli
og FROSTY hyggjast gefa út lög
vikulega á næstunni og framleiða
myndbönd við þau öll. Myndböndin
eru birt á Youtube og hægt er að
hala öllum lögunum niður frítt. Þessar
aðferðir eru vel þekktar vestanhafs
til að byggja upp aðdáendahóp, en
rapparinn Lil‘ Wayne gerði aðferðina
að list þegar hann dældi frá sér
lögum í aðdraganda plötunnar Tha
Carter III árið 2008. Meira en milljón
eintök af plötunni seldust í vikunni
sem hún kom út. Plötuútgáfa heillar
hins vegar ekki Gísla Pálma — að
minnsta kosti ekki á Íslandi.
„Við þekkjum nokkra stráka sem
hafa gefið út hipphopp-plötur á
klakanum. Þetta er bara basl. Það
er ekki eins og þeir séu á samningi
í Bandaríkjunum og platan sé allt í
einu gefin út án þess að þeir lyfti
putta. Þeir eru hlaupandi á milli staða
með plakötin og myndirnar og eru
að vinna alla vinnuna. Svo leggja þeir
út fyrir þessu og vona að þeir komi
út í plús. Það er enginn að kaupa
geisladiska í dag. Ég hef ekki labbað
inn í Skífuna með gjafabréf sem ég
fékk í jólagjöf frá því að ég var átta
ára,“ segir Gísli. „Við stefnum á að
fara með tónlistina lengra, hvort sem
það verður peningur til eða ekki. Við
ætlum að senda frá okkur tónlist sem
er núna í gangi. Eftir sumarið byrja
ég að semja texta á ensku og eftir
það getum við kannski komið okkur
á framfæri á heimsvísu. Þetta er
sama tónlist og er spiluð í útvarpinu
— það kemur alltaf versta tónlistin í
íslenskt útvarp. Óútpældustu lögin.“
Gísli Pálmi er sonur athafnamanns-
ins Sigurðar Gísla Pálmasonar, en
hefur að eigin sögn ávallt unnið
fyrir sínu og ekki notið fjárhags-
lega góðs af fjölskyldutengslum
sínum. Hann er maður með fortíð
og hefur innistæðu til að nota orðið
„gangster“ til að lýsa tónlist sinni,
þar sem hann rappar um eigið líf og
segist ekki ljúga neinu. „Ég segi aldrei
ósatt. Ég er ekki að fara að segja frá
dýpstu leyndarmálunum mínum, en
þetta er meira og minna allt satt. Ég
geri þetta fyrir alla og sérstaklega
hópinn minn, sem finnst gaman að
hlusta á tónlist. En „gangster“ er
frekar asnalegt orð. Við erum bara
venjulegir gaurar og erum búnir að
ganga í gegnum margt. Búnir að
taka þennan vesenspakka sundur
og saman. Við erum samt ekki jafn
grófir í dag, en ef einhvern langar
að fara yfir strikið gagnvart mér er
ég enn þá til alls líklegur.“
Aðspurður um viðbrögð við Set
mig í gang segir Gísli kokhraustur
að allir elski lagið og bætir við, ekki
minna kokhraustur, að hreinlega allir
hafi beðið eftir laginu. „Það vantaði
svona tónlist. Það er búið að vera
svo mikið píkudæmi í gangi. Það
vantaði alvöru rapp. Á Íslandi eru
þeir sem eru góðir í að skrifa texta
ekki búnir að vera með nógu góða
ÉG VAR ALVEG FARINN Í HAUSNUM O
ALLS STAÐAR, TÓK ALLT ÓFRJÁLSR
Í BULLANDI NEYSLU AUÐVITAÐ, RÆ
TIL AÐ RÚNTA.
Orð: Atli Fannar Bjarkason Myndir: Valli
Ef þú hefur heyrt um rapparann Gísla Pálma eru góðar líkur
á því að þú hafir fyrst heyrt um hann nýlega. Hann sendi frá
sér lagið Set mig í gang á þjóðhátíðardaginn og annar hver
maður hefur deilt myndbandinu við lagið á Facebook-vegg
sínum undanfarnar vikur. Þar sést Gísli ber að ofan, hnykla
vöðvana og í bakgrunni hefur Range Rover-jeppa verið
lagt. Hann er reyndar í eigu vinar Gísla Pálma, sem er rétt
að skríða yfir tvítugt. „Annar af tveimur,“ segir Gísli.