Fréttablaðið - 30.06.2011, Síða 22
22 30. júní 2011 FIMMTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
D
eilan um auglýsingar alþjóðlegu dýraverndunarsam-
takanna IFAW og Samtaka hvalaskoðunarfyrirtækja
í Leifsstöð er áhugaverð. Í auglýsingunum voru ferða-
menn hvattir til að skoða hvali fremur en að leggja sér
þá til munns. Fólk var hvatt til að yfirgefa ekki Ísland
með óbragð í munni.
Auglýsingarnar voru samþykktar af Isavia, sem rekur Leifsstöð,
og héngu þar uppi í nokkrar vikur. Eftir kvartanir frá Hrefnu-
veiðimönnum ehf., sem sögðu
auglýsingarnar áróður og árás á
eina atvinnugrein, endurskoðaði
Isavia afstöðu sína til auglýsing-
anna. IFAW var boðið að breyta
þeim í samráði við fyrirtækið. Því
boði var ekki tekið og auglýsing-
arnar hafa því verið teknar niður.
Isavia vísar til ákvæða í samn-
ingi sem var gerður um birtingu auglýsinganna, en þar segir meðal
annars að auglýsingar skuli vera samkvæmt siðareglum um auglýs-
ingar og á engan hátt stríða gegn almennri siðferðisvitund. „Leigu-
sala er heimilt að koma með greinargóðar athugasemdir vegna
auglýsinga eða kynningarmuna leigutaka ef honum sýnist sem útlit
þeirra brjóti í bága við ímynd flugstöðvarinnar. Athugasemdirnar
skulu vera málefnalegar og rökstuddar. Leigutaki skal leitast við að
taka tillit til athugasemdanna,“ segir í samningstextanum.
Ekki verður séð að auglýsingar IFAW og hvalaskoðunarmanna
hafi á nokkurn hátt brotið gegn almennri siðferðisvitund. Og greini-
lega hafa þær ekki brotið gegn siðferðisvitund starfsmanna Isavia
heldur, þ.e. ekki fyrr en hagsmunaaðilar kvörtuðu undan þeim. Hafi
athugasemdir Isavia verið málefnalegar og rökstuddar hefur sá
rökstuðningur að minnsta kosti ekki komið fram opinberlega.
Hugsanlega getur Isavia hangið á því að auglýsingarnar hafi
farið í bága við „ímynd flugstöðvarinnar“. Flugstöðvar víða um
heim eru vissulega oftast eins og útstillingarkassar fyrir land og
þjóð; birta áferðarfallegar glansmyndir af blómlegum héruðum,
stórfenglegum náttúrufyrirbærum og brosandi fólki. Á Entebbe-
flugvelli í Úganda var í vetur mikið af kosningaplakötum með
myndum af hinum ástsæla Museweni forseta en engar auglýsingar
frá mótframbjóðendunum.
Er það ekki einmitt þessi glansmynd sem er áróður? Er eitthvað
að því að ferðamenn sem hingað koma, sem sennilega eru flestir
með einhverja hugsun í kollinum, viti að ekki eru allir sammála um
til dæmis hvalveiðar og þátt þeirra í ferðaþjónustu? Ef umhverfis-
verndarsamtökum dytti í hug að birta auglýsingar í Leifsstöð þar
sem ferðamenn væru hvattir til að ganga vel um náttúru Íslands, af
því að hún lægi víða undir skemmdum vegna átroðnings hundraða
þúsunda ferðamanna, væri það þá óæskilegt kusk á glansmyndinni,
áróður sem ætti að banna?
Það er orðið ögn klisjukennt að rifja upp hvað bankahrunið átti
að hafa kennt okkur – en samt ástæða til að minna á að eitt af því er
að það er ekki æskilegt að þjóðarsamstaða ríki um að ein atvinnu-
grein sé æðisleg, hafi bókstaflega enga galla og um hana séu engar
deilur. Þá gildir einu hvort það er fjármálaþjónusta, hvalveiðar eða
ferðaþjónusta. Útlendingar hljóta að mega vita að á Íslandi fari
fram frjálsar og opinskáar umræður.
HALLDÓR
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Af hverju þurfti að banna auglýsingar gegn
hvalkjötsáti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar?
Hvað er áróður?
Hinn 4. júlí næstkomandi verður sýndur hjá RÚV fyrsti þátturinn af
sex sem fólk með þroskahömlun hefur
unnið undir heitinu „Með okkar augum“.
Þættir þessir eru með blönduðu efni og
hafa að leiðarljósi að vera bæði fræðandi
og skemmtilegir.
Fólk með þroskahömlun sá um þátta-
gerðina, bæði tæknivinnu að stórum
hluta svo og efnisöflun og viðtöl, undir
leiðsögn fagfólks. Þáttunum er ætlað að
sýna að í þessum hópi eru margir hæfi-
leikaríkir einstaklingar. Annar tilgang-
ur með þáttagerðinni er að stuðla að
auknum fjölbreytileika í gerð sjónvarps-
efnis þar sem efnistökum og umfjöllun
er stýrt af fólki sem hefur ef til vill aðra
lífsreynslu, áhugamál og sýn á samfélag
sitt.
Í nýjum samningi Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi fatlaðs fólk eru mörg
ákvæði um skyldur þjóðríkja til að vinna
gegn staðalímyndun og fordómum gagn-
vart fólki með fötlun, svo og skyldur
fjölmiðla í þeim efnum. Landssamtökin
Þroskahjálp telja að gerð þessara þátta
sé áhrifarík aðferð til að uppfylla þau
ákvæði. Vonandi verður því framhald á
þessari þáttagerð.
Landssamtökin Þroskahjálp hafa að
undanförnu unnið í samvinnu við fleiri
aðila að nokkrum verkefnum sem stuðla
að þátttöku og sýnileika fólks með
þroskahömlun. Samtökin telja að með því
móti stuðli þau að betra og skemmtilegra
samfélagi fyrir alla.
Góða skemmtun með þeim Andra
Frey, Bjarna, Eiði, Katrínu Guðrúnu,
Richard, Skúla Steinari og Steinunni Ásu
á mánudögum kl. 18.30 í sumar.
Með okkar augum
Samfélags-
mál
Friðrik
Sigurðsson
framkvæmdastjóri
Landssamtakanna
Þroskahjálpar
Fólk með þroskahömlun sá um þáttagerðina,
bæði tæknivinnu að stórum hluta svo og efnis-
öflun og viðtöl, undir leiðsögn fagfólks.
ums.is
SÍÐASTI DAGUR FYRIR
GREIÐSLUSKJÓL NÝRRA UMSÓKNA
UM GREIÐSLUAÐLÖGUN ER
30. JÚNÍ 2011
Tollfrelsi í tollfrelsinu
Össur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra tilkynnti stoltur um „hörku-
samning“ sem náðst hefði við yfirvöld
í Hong Kong. Nú nytu Íslendingar til
framtíðar algjörs tollfrelsis á iðnaðar-
vörur og sjávarfang flutt til markaða í
Hong Kong. Þetta er hið besta mál og
ekki nema von að ráðherra sé stoltur.
Lausleg yfirferð um tollaumhverfi
Hong Kong sýnir hins vegar, svart
á hvítu, að þar á bæ eru ekki inn-
flutningstollar á neinar vörur, nema
áfengi, tóbak, kolvetnisolíu og
metílalkóhól. Samningatækni
Össurar er greinilega við
brugðið að semja um toll-
frelsi á tollfrjálsum vörum.
Góður ásetningur
Í samstarfssamningi Besta flokksins
og Samfylkingarinnar er kveðið á um
að gera hjólreiðar að raunhæfum
ferðamáta í borginni. Í maí í fyrra
samþykktu jafnframt allir flokkar
í borgarstjórn að lagðir skyldu tíu
kílómetrar af hjólreiðastígum næstu
þrjú ár, samtals 30 kílómetrar.
Minna um efndir
Á fundi umhverfis- og sam-
gönguráðs í vikunni kom
fram að aðeins
1,6 kílómetrar
af hjólreiða-
stígum
verða
lagðir í ár. Gísli Marteinn Baldursson
borgarfulltrúi skrifar um þetta á
blogg sitt: „Ég veit að innan meiri-
hlutans er fólk sem trúir í einlægni
á nýjar lausnir í samgöngu og
skipulagsmálum borgarinnar, en
ekki verður annað séð en að það
fólk hafi orðið undir og gamaldags
hugmyndafræði um uppbygg-
ingu borga hafi orðið ofan
á. Það á því miður eftir að
skila sér í meiri umferð, meiri
mengun og þar með lakari
lífsgæðum borgarbúa.“
Er nokkru við það að
bæta?
kolbeinn@frettabladid.is
bergsteinn@frettabladid.is